Ný Tesla tilbúin á næstu dögum

Fyrstu ein­tök Model 3 frá Teslu verða afhent í þessum mán­uði. Nýi bíll­inn er ætl­aður almenn­ingi.Fyrstu ein­tök Model 3 frá Teslu verða afhent í þessum mán­uði. Nýi bíll­inn á að koma á markað á við­ráð­an­legu verði.

Model 3 verður þriðja kynslóð rafbíla frá Tesla.
Model 3 verður þriðja kyn­slóð raf­bíla frá Tesla.

Ný gerð raf­bíls­ins Teslu mun renna af færi­band­inu í þess­ari viku, sam­kvæmt því sem Elon Musk, stofn­andi og yfir­maður fyr­ir­tæk­is­ins, skrifar á Twitter.

Tesla Model 3 er ætlað að vera fram­lag fyr­ir­tæk­is­ins á hinn almenna bíla­markað. Bíllinn á að vera sam­keppn­is­hæfur við aðra milli­stærðar fjöl­skyldu­bíla og kosta um 35.000 banda­ríska dali (rúm­lega 3,5 millj­ónir íslenskra króna). Það er helm­ingi minna en Model S-bíll­inn sem kom á markað um mitt ár 2012.

Model 3 er til­bú­inn tveimur vikum á undan áætl­unum fyr­ir­tæk­is­ins. Musk bætti við að fyrstu 30 ein­tökin af nýja bílnum verði afhent í lok þessa mán­aðar.

[adspot]

Fjöldi fram­leiddra ein­taka af raf­bílum Teslu eykst hratt um þessar mundir. Musk segir um það bil 100 bíla verða fram­leidda í ágúst og meira en 1.500 bíla í sept­em­ber. Í des­em­ber verði svo búið að smíða 20.000 Model 3-bíla. Meira en 400.000 pant­anir hafa borist.

Model 3 er þriðja kyn­slóð Tesla-raf­bíl­anna, eins og nafn­giftin ber vitni um. Síðasta útgáfan, Model X, var gríð­ar­lega flókin í fram­leiðslu og seink­aði afhend­ingu fyrsta ein­taks­ins um 18 mán­uði. Model X er lúxus-smá­jeppi og bauðst við­skipta­vinum Tesla að velja úr miklu úrvali auka­hluta sem flækti fram­leiðslu­ferlið gríð­ar­lega.

Nýi bíll­inn verður fyrsta bíl­gerðin undir merkjum Tesla sem fram­leiddur verður í miklu magni. Árið 2015 fram­leiddi Tesla aðeins sam­tals 84.000, miðað við keppi­nauta sína á mark­aði, eins og General Motors sem smíð­uðu meira en 10 millj­ónir ein­taka.

Með auk­inni fram­leiðslu mun álagið á þjón­ustu­hluta Tesla stækka mikið. Nú þegar hefur 30 pró­sent meira fjár­magni verið veitt til versl­ana og þjón­ustu­stöðva Tesla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár