Mynd: Kjarninn.

Startup-stemmning hjá risanum

Stærsta skráða fyr­ir­tæki lands­ins, Marel, er sann­kallað flagg­skip íslenskrar nýsköp­unar. Fyr­ir­tækið er nú að renna inn í mikið vaxt­ar­skreið, miðað við kynnt áform.

Stærsta fyr­ir­tæki Íslands, Marel, hefur yfir að ráða miklum fjölda starfs­manna vítt og breitt um heim­inn. Samtals eru starfs­menn nú um 6.000 í yfir 33 löndum. Það er tala sem nemur tvö­földum sam­an­lögðum starfs­manna­fjölda Arion banka, Íslands­banka og Lands­bank­ans. Umfangið er mikið og fyr­ir­tækið er nú á tíma­mótum. Óhætt er að tala um risa, á íslenskan mæli­kvarða, því ekk­ert fyr­ir­tæki með íslenskar rætur er með hærri verð­miða en Marel þessi miss­erin.

Tvíhliða skráning

Tvíhliða skrán­ing félags­ins er í burð­ar­liðnum og þar horft til kaup­hall­anna í Kaup­manna­höfn, Amster­dam og London, en það mun skýr­ast á næsta ári hvaða kaup­höll verður fyrir val­inu.

Nýlega var tekin ákvörðun um að lækka hlutafé félags­ins um 7 pró­sent, en félagið hefur á und­an­förnum árum eign­ast sífellt stærri hlut af eigin bréfum og má slá því föstu að til­gangur þess hafi meðal ann­ars verið sá að und­ir­búa félagið fyrir næsta fasa í sögu fyr­ir­tæk­is­ins. Það er skrán­ingu á markað erlendis og mik­inn og hraðan vöxt.

Árni Oddur Þórð­ar­son, for­stjóri félags­ins, hefur kynnt vaxt­ar­á­form fyrir kom­andi ár, og er þar meðal ann­ars horft til 12 pró­sent vaxtar að með­al­tali á ári næsta ára­tug­inn.

Spennandi tímar framundan

Nýlega sendi fyr­ir­tækið Stockviews í London frá sér grein­ingu á félag­inu sem ber heitið Too Hot For Iceland, þar sem félagið er verð­metið langt yfir núver­andi stöðu á mark­aði.

Þegar verð­matið kom út mat Stockviews Marel á um 433 millj­arða króna, horft til næstu 12 til 18 mán­aða, en mark­aðsvirðið var á sama tíma tæp­lega 290 mill­lj­arðar.

Í grein­ing­unni á félag­inu segir meðal ann­ars að mark­aðs­að­ilar hafi margir hverjir horft fram hjá Marel þrátt fyrir að fyr­ir­tækið sé leið­andi á sínu sviði, og við­skipti með hluta­bréfin ein­skorð­ast við fá íslensk verð­bréfa­fyr­ir­tæki og líf­eyr­is­sjóði. „Það kemur okkur á óvart í ljósi mark­aðsvirðis upp á tvo millj­arða evra, arð­semi heild­ar­fjár­magns upp á 40 pró­sent og sjálf­bærs vaxtar upp á 6 pró­sent,“ segir í verð­mat­inu.

Samkvæmt verð­mat­inu og for­sendum þess um skrán­ingu erlendis þá spáir Stockviews því að gengið hækki upp í 588,48 krónur á næstu 12 til 18 mán­uðum en það hefur verið á bil­inu 370 til 390 und­an­farin miss­eri.

Gangi spá Stockviews eftir um yfir­töku­gengi á Marel upp á um 630 krónur á hlut, eða um 60 pró­sentum hærra en núver­andi gengi, þá jafn­gildir það því að mark­aðsvirði Marels sé um 470 millj­arðar, eða um fjórir millj­arðar Banda­ríkja­dala, sé miðað við gengi krón­unnar eins og það var þegar verð­matið kom út.

Mynd: Marel
Mynd: Marel

Vaxandi eftirspurn

Á und­an­förnum árum hefur Marel styrkt veru­lega stöðu sína á mark­aði fyrir tækni­lausnir fyrir mat­væla­geir­ann. Fyr­ir­tækið var stofnað árið 1983 og hefur alla tíð verið hátækni­fyr­ir­tæki, með hug­bún­að­ar­lausnir í sínu vöru­fram­boði. Á 35 ára afmæl­is­ári sínu er það orðið full­orðið, en mögu­lega þó að fara inn í sitt mesta vaxt­ar­tíma­bil.

Íslenskur sjáv­ar­út­vegur hefur verið eins konar til­rauna­stöð fyrir fyr­ir­tækið og hjálpað því að þróa lausnir sínar á sviði fisk­vinnslu­bún­aðar, bæði í land­vinnslu og vinnslu á sjó. Í dag er fyr­ir­tækið einnig leið­andi í kjöt­vinnslu, bæði kjúklingi og kjöti. Vinnslu­tæknin hjálpar fram­leiðslu­fyr­ir­tækj­unum að fylgj­ast með gæða­starf­inu og ná fram hag­kvæmni.

Vöxt­ur­inn inn í fram­tíð­ina liggur ekki síst í hug­bún­að­ar­hluta fyr­ir­tæk­is­ins, eins og komið hefur fram í máli Árna Odds for­stjóra Marel.

Í útjaðri Seattle, á miklu nýsköp­un­ar­svæði í Bellevue, er teymi á vegum Innova, hug­bún­að­ar­deildar Marel, en hjá því starfa nú um 200 starfs­menn og fer þeim hratt fjölg­andi.

Það má með sanni segja að þar hafi verið startup-stemmn­ing þegar blaða­maður leit við á starfs­stöð­inni, í skrif­stofu­hús­næði WeWork í miðbæ Bellevue. Helstu nágrannar eru margir risar á sviði tækni. Microsoft með umfangs­mikla starf­semi, Amazon einnig og fleiri fyr­ir­tæki, eins tölvu­leikja­fram­leið­and­inn Bungie og hug­bún­að­ar­ris­inn Sales Force.

Á meðal stórra og smárra fyr­ir­tækja er meðal ann­ars Pokémon fyr­ir­tækið, sem Nintendo á að stórum hluta, með starfs­stöð í sama húsi og Innova. Frum­kvöðlar sjást að vinnu og lítil hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæki sem aug­ljós­lega eru að stíga sín fyrstu skref inn í ver­öld­ina.

Innova
Innova

Startup-andi

Það sama má segja um nýja starfs­stöð hug­bún­að­ar­deild­ar­innar. Þar eru vín­yl­plötu­umslög á veggjum, plötu­spil­ari í horn­inu og raf­magns­gítar til þjón­ustu reiðu­bú­inn, ef það kemur sá andi yfir starfs­menn. Þetta má segja að hafi yfir sér dæmi­gert yfir­bragð Startup-fyr­ir­tækis.

Hjalti Þór­ar­ins­son, fram­kvæmda­stjóri Innova, segir mikil tæki­færi í því fólgin að byggja upp starf­semi á þessu svæði. Hann starf­aði sjálfur um ára­bil hjá Microsoft, meðal ann­ars við við­skipta­þróun á sviði gervi­greindar, og þekkir því mannauð­inn vel frá fyrstu hendi. Microsoft er með höf­uð­stöðvar sínar í Redmond, í næsta nágrenni, og þar eru sam­tals um 45 þús­und starfs­menn.

Hann segir þörf­ina fyrir lausnir Innova fara vax­andi, og það sé mik­ill akkur í því fyrir fyr­ir­tæki eins og Marel að fá til liðs við hug­bún­að­ar­hluta fyr­ir­tæks­ins reynslu­mikið og hæft fólk sem þekkir alþjóð­lega mark­aði. „Marel hefur verið í hug­bún­aði frá upp­hafi en í ár eru 40 ár liðin síðan fyrsta raf­einda sjó­vogin var þróuð af stofn­endum Marel sem var útbúin hug­bún­aði sem safn­aði saman gögnum. Hátækni, hug­bún­aður og gögn hefur því alltaf verið sér­staða Marel. Fyrir nokkrum árum er hins­vegar tekin sú ákvörðun að auka fjár­fest­ingu í hug­bún­aði og hug­bún­að­ar­þróun til að efla og auka en frekar sam­keppn­is­for­skot Marel á þessu sviði og gera við­skipta­vinum okkar kleift að vera með virka fram­leiðslu­stýr­ingu frá upp­hafi til enda. Þörfin fyrir slíkar lausnir er ört vax­andi. Þessi fjár­fest­ing hefur auk­ist með ári hverju og vegur Innova hug­bún­að­ar­ins auk­ist en í dag eru um það bil 2.000 verk­smiðjur útbúnar slíku kerfi út um allan heim,“ segir Hjalti.

Ein ástæða þess að þörfin fer vax­andi eru sífellt strang­ari gæða- og örygg­is­kröfur sem mat­væla­iðn­aður í heim­inum býr við. Hann telur Marel vera með ein­stakt tæki­færi í hönd­unum með Innova hug­bún­að­inum til að stækka og ná til enn fleiri við­skipta­vina um allan heim. „Við sjáum það á okkar við­skipta­vinum að það eru mörg vanda­mál sem þeir eru að glíma við, þar sem okkar lausnir geta hjálpað mikið til við að gera fram­leiðslu­ferlið hag­kvæmara. Í Banda­ríkj­unum hafa komið upp alvar­leg til­felli, með reglu­legu milli­bili, þar sem inn­kalla þarf vörur. Það gerð­ist t.d. árið 2011 þegar listería barst með melónum (kantalúp­melónum) sem leiddi til þrjá­tíu og þriggja dauðs­falla. Þegar þessi til­felli hafa komið upp þá hefur það leitt til reglu­breyt­inga og strang­ara eft­ir­lits. Við­skipta­vinir Innova eru að nýta gögn til þess að finna leiðir til að betrumbæta fram­leiðslu­ferla, ná fram betri nýt­ingu á hrá­efni og auka gæði fyrir neyt­endur og tryggja rekj­an­leika. Þeir eru að óska eftir mun meiri þjón­ustu og ítar­legri úrvinnslu á gögnum til að takast á við þessar áskor­anir, heldur en áður. Í þessu umhverfi fel­ast mikil tæki­færi fyrir okkur,“ segir Hjalti.

Snýst um rétta fólkið

Eitt af því sem ein­kennir tækni­geir­ann í Banda­ríkj­unum er hörð sam­keppni um hæfi­leik­a­ríkt og reynslu­mikið fólk. Meðal ann­ars þess vegna hefur mynd­ast einn stærsti tækniklasi í heimi á Seattle svæð­inu. Microsoft og Amazon eru með sínar höf­uð­stöðvar þar, og stór fyr­ir­tæki eins og Facebook og Google hafa ákveðið að styrkja starf­semi sína á svæð­inu, til þess að fá til liðs við sig gott fólk.

Hjalti segir að vissu­lega sé það nokkuð erfitt verk­efni, að berj­ast við ris­ana um rétta fólkið, en samt séu margir til­búnir að breyta til, einmitt til að fá meira krefj­andi verk­efni og reynslu af upp­bygg­ingu. „Það er mikið af fólki sem vill kom­ast inn í aðeins minni fyr­ir­tæki þar sem það getur látið meira til sín taka og fær tæki­færi til þess móta stefnu á ört vax­andi mark­aði. Við höfum sann­ar­lega fundið fyrir þessu, og náð að fá til liðs við okkur fram­úr­skar­andi fólk með mikla reynslu,“ segir Hjalti. „Það hjálpar einnig til að Marel er starf­andi á mjög áhuga­verðum og lif­andi vaxt­ar­mark­aði, alþjóð­lega mat­væla­mark­að­inum sem flestir geta tengt sig við þar sem við borðum jú öll mat. Verkefni Marel er m.a. að mæta þeirri áskorun í sam­starfi við sína við­skipta­vini, að fæða ört stækk­andi heims­byggð á sama tíma og nátt­úru­auð­lindir fara þverr­andi, það er göf­ugt og verð­ugt verk­efni sem margir vilja leggja lið,“ bætir Hjalti við.

Að und­an­förnu hefur Innova fengið fólk með reynslu meðal ann­ars frá Microsoft, til liðs við starf­stöð­ina í Bellevue. „Hópurinn verður ekki settur upp sem sjálf­stæð vöru­þró­un­ar­ein­ing heldur er hann ætl­aður til að styrkja mjög öfl­uga hug­bún­að­ar­hópa á Íslandi, Danmörku og í Hollandi með auk­inni sér­þekk­ingu og reynslu,“ segir Hjalti.

Hópurinn gegnir jafn­framt mik­il­vægu hlut­verki við mark­aðs­sókn Marel í Banda­ríkj­unum. Sem dæmi um stóra við­skipta­vini Marel þar í landi er Costco, sem flestir Íslend­ingar kann­ast nú við eftir að félagið kom eins og storm­sveipur inn á íslenskan smá­sölu­markað.

Costco er með höf­uð­stöðvar á Seattle svæð­inu, nánar til tekið í Issaquah. Fyr­ir­tækið er með umsvifa­mikla starf­semi á sviði mat­væla­fram­leiðslu og sölu og nýtir sér Innova hug­bún­að­inn til að styrkja hana og bæta. Mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins er tæp­lega 100 millj­arðar Banda­ríkjdala, eða sem nemur um 12.500 millj­örðum króna. Ekki síst af þessum sökum, er mik­il­vægt að vera með starfs­stöð á Seattle svæð­inu, til að vinna náið með við­skipta­vinum.

Sterkar rætur í tækni

Eitt af því sem kemur mörgum á óvart, sem rýna í stöðu Marel, er hversu djúpar rætur félagið á í tækni. Alveg frá byrjun hefur fyr­ir­tækið verið í far­ar­broddi í tækni og hug­bún­aði, og segir Hjalti að margir sem hafi mikla reynslu hafi upp­lifað ýmis­legt á löngum starfs­ferli. „Einn af okkar lyk­il­starfs­mönnum, Björn Þor­valds­son, var að tengja saman 150 tæki í Suður-Afríku á sama tíma og Nelson Mandela er að taka við sem for­seti. Þannig að hug­bún­aður Innova teygir sig langt aftur og hefur verið hluti af Marel stóran hluta af sögu fyr­ir­tæk­is­ins,“ segir Hjalti. Þannig hafi Marel verið byrjað að starfa í hluta­neti (Internet Of Things) löngu áður en margir aðrir byrj­uðu á því, með því að tengja saman tæki og tól, og fá þannig heild­stæða yfir­sýn á fram­leiðslu­ferla.

Á tímum þar sem vax­andi kröfur eru um umhverf­is­væna og hag­kvæma fram­leiðslu, þá sé hug­bún­að­ar­þjón­usta Marel afar mik­il­væg og ein­stök. Gögnin eru hrá­vara nýrrar iðn­bylt­ingar og með þeim má ná miklum árangri við mörg þau sam­fé­lags­legu mál sem eru hvað brýn­ust í okkar sam­tíma, segir Hjalti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár