Svört skýrsla gefur eignasölu Landsbankanum falleinkunn

Íslensku bank­arnir þrír, sem end­ur­reistir voru með handafli eftir banka­hrunið, tóku við miklu magni eigna. Með sam­komu­lagi við kröfu­hafa þeirra á árinu 2009 um fjár­mögnun og eign­ar­hald þeirra var bönk­unum þremur falið að end­ur­skipu­leggja íslenskt atvinnu­líf og sam­fé­lag. Um var að ræða risa­stórt verk­efni. Sam­keppn­is­eft­ir­litið leit til að mynda svo á að 70 pró­sent stærstu fyr­ir­tækja lands­ins þyrftu á fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu að halda og að það hlut­fall end­ur­spegl­aði lík­ast til stöð­una í atvinnu­líf­inu öllu. Þess utan þurfti að end­ur­skipu­leggja skuldir heim­ila og ein­stak­linga. Í þeirri end­ur­skipu­lagn­ingu gengu bank­arnir að veðum í fjöl­mörgum til­fellum og eign­uð­ust þar með enn fleiri eignir.

Einn bank­anna, Lands­bank­inn, hefur allt frá árinu 2009 verið að nær öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins. Það hefur því borið ábyrgð á fram­ferði hans við að losa um þær gríð­ar­legu eignir sem hann fékk í vöggu­gjöf við banka­hrunið. Sölu­ferli bank­ans á lyki­l­eignum hefur verið gagn­rýnt mjög harð­lega, jafnt í fjöl­miðlum, af eft­ir­lits­stofn­unum og af stjórn­mála­mönnum, sér­stak­lega í kjöl­far sölu bank­ans á hlut sínum í greiðslu­korta­fyr­ir­tæk­inu Borgun árið 2014. Sölu sem fram fór bak við luktar dyr.

Þessi gagn­rýni náði hámarki í mars 2016, þegar banka­ráð Lands­bank­ans greindi frá því að Banka­sýsla rík­is­ins hafi farið fram á það við sig að banka­stjóri Lands­bank­ans, Steinþór Pálsson, yrði sagt upp störfum vegna Borg­un­ar­máls­ins. Enn fremur hafi stofn­unin farið fram á að for­maður og vara­for­maður banka­ráðs­ins myndu víkja. Ráðið varð ekki við því að segja upp banka­stjóra Lands­bank­ans. Þess í stað til­kynntu fimm af sjö banka­ráðs­mönnum Lands­bank­ans að þeir myndu ekki gefa kost á sér til end­ur­kjörs. Banka­sýslan hafn­aði því síðar að upp­sögn Stein­þórs hafi verið til skoð­unar hjá henni.

Í ljósi þeirrar stöðu sem uppi hefur verið, og þeirrar orð­spors­á­hættu sem Lands­bank­anum hafði verið skapað vegna Borg­un­ar­máls­ins, barst Rík­is­end­ur­skoðun form­legar og óform­legar beiðnir frá ein­staka þing­mönnum, Lands­bank­anum sjálfum og Banka­sýslu rík­is­ins um að taka eigna­sölur bank­ans síð­ustu ár til skoð­unar. Rík­is­end­ur­skoðun varð við þeirri beiðni og ákvað að skoða alla eigna­sölu Lands­bank­ans frá árinu 2010 til 2016.

Nið­ur­staða Rík­is­end­ur­skoð­unar liggur nú fyrir og er sett fram í skýrslu sem birt var í dag. Þar eru gerðar fjöl­margar athuga­semdir við sölu Lands­bank­ans á mörgum eignum á umræddu tíma­bili. Einkum er kast­ljós­inu beint að sölu­ferli sex eigna. Sölurnar hafi farið fram í lok­uðu ferli og í sumum til­vikum hafi feng­ist „lægra verð fyrir eign­ar­hlut­ina en vænta mátti miðað við verð­mætin sem þeir geymdu.“

Salan á Vestia og Icelandic Group

Á árinu 2010 hafði eign­ar­hlutum sem Lands­bank­inn hafði tekið yfir eftir hrunið verið komið fyrir inni í eign­ar­um­sýslu­fé­lag­inu Vestia, sem bank­inn átti að öllu leyti. Stærsti bit­inn var Icelandic Group, alþjóð­legt sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki með alls 30 dótt­ur­fé­lög og starf­semi í 14 lönd­um. Á meðal ann­arra fyr­ir­tækja voru Vodafone, fyr­ir­tækin sem síðar runnu saman í Advanía, Húsa­smiðjan og Plast­prent. Í ljósi þess að sala rík­is­eigna á Íslandi á sér ekki mjög fal­lega sögu, og hafið er yfir allan vafa að fyr­ir­tækjum í eigu rík­is­ins var oft á tíðum stýrt í „rétt­ar“ hendur á árunum fyrir hrun, var lögð áhersla á að allt ætti að vera uppi á borð­unum þegar nýju íslensku bank­arn­ir, reistir á grunni gjald­þrota banka, seldu þær fjöl­mörgu eignir sem höfðu fallið þeim í skaut vegna efna­hags­hruns­ins. Einn þáver­andi ráð­herra sagði við grein­ar­höf­und að það mætti ekki verða neinn „mon­key business“ í end­ur­sölu á þessum eign­um. Þeim átti ekki að stýra upp í hend­urnar á ein­hverjum útvöld­um.

Í lok ágúst 2010 var skyndi­lega til­kynnt um að Fram­taks­sjóður Íslands, umbreyt­inga­sjóður í eigu íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna, hefði keypt Vestia. Fyrir þennan pakka greiddi Fram­taks­sjóð­ur­inn 19,5 millj­arða króna auk þess sem Lands­bank­inn eign­að­ist 27,5 pró­sent hlut í hinum ætl­aða umbreyt­ing­ar­sjóði. Með þessum gern­ingi var íslenska rík­ið, sem átti Lands­bank­ann að mestu, orð­inn óbeint stærsti ein­staki eig­andi Fram­taks­sjóðs­ins. Það var aldrei mein­ingin að svo yrði.

Ákvörð­unin um þennan gern­ing var líka tekin af þáver­andi æðstu stjórn­endum Lands­bank­ans og Fram­taks­sjóðs­ins, þeim Stein­þóri Páls­syni og Finn­boga Jóns­syni. Stein­grímur J. Sig­fús­son, þá fjár­mála­ráð­herra, varði við­skiptin opin­ber­lega en bak við luktar dyr varð hann, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, gjör­sam­lega brjál­aður yfir sam­ein­ing­unni. Að hans mati fólst í þess­ari sam­ein­ingu klárt brot á reglum sem Lands­bank­inn hafði sjálfur sett sér um með­ferð eigna sem lent höfðu í hönd­unum á honum eftir banka­hrun­ið.

Stein­grímur J. Sig­fús­son, þá fjár­mála­ráð­herra, varði við­skiptin opin­ber­lega en bak við luktar dyr varð hann gjör­sam­lega brjál­aður yfir sölunni á Vestia.
Stein­grímur J. Sig­fús­son, þá fjár­mála­ráð­herra, varði við­skiptin opin­ber­lega en bak við luktar dyr varð hann gjör­sam­lega brjál­aður yfir söl­unni á Vestia.

Rík­is­end­ur­skoðun kemst að þeirri nið­ur­stöðu í skýrslu sinni að rétt og eðli­legt hefði verið að fylgja reglum bank­ans um sölu fulln­ustu­eigna og starfs­reglum Vestia um ráð­stöfun eigna við söl­una. Það hafi hins vegar ekki verið gert. Enn fremur eru gerðar athuga­semdir við að ekki hafi feng­ist sann­virði fyrir Icelandic Group. „ Söluverð Icelandic Group var 13,9 ma.kr. sem var um 55% af bók­færðu eigin fé þess í lok júní 2010. Á þessum tíma átti það félag alls 31 dótt­ur­fé­lag. Ári síðar seldi Fram­taks­sjóður Íslands 12 þeirra fyrir sama verð og hann hafði keypt alla sam­stæð­una. Þess ber að geta að meðan Icelandic Group var enn í eigu Lands­bank­ans óskaði það félag sem keypti 10 þess­ara 12 dótt­ur­fé­laga eftir við­ræðum við bank­ann um kaup á eign­ar­hlutum hans en fékk synjun,“ segir í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar. Þar er enn fremur til­tekið að salan á Vestia og Icelandic Group í lok­uðu ferli hefði orðið til þess að „ skaða orð­spor bank­ans þótt Banka­sýslan teldi hana á rökum reista. Þessi reynsla hefði því átt að hvetja bank­ann til að beina eigna­sölum í opið ferli í enn rík­ara mæli en gert var og banka­ráðið til að fylgja þeirri stefnu eftir. Sú varð þó ekki raunin og gagn­rýnir Rík­is­end­ur­skoðun það.“

Salan á Promens

Við­skipti Lands­bank­ans við Fram­taks­sjóð Íslands héldu þó áfram, þrátt fyrir mikla opin­bera gagn­rýni. Árið 2011 seldi bank­inn 49,5 pró­sent hlut sinn í Promens til sjóðs­ins.

Fyrri salan fór fram árið 2011 þegar Lands­bank­inn seldi, í tvennu lagi, sam­tals 49,5 pró­sent hlut í Promens á 7,9 millj­arða króna. Salan fór fram í gegnum dótt­ur­fé­lag Lands­bank­ans, Horn. Sölu­verðið var 5,5 sinnum hærra en rekstr­ar­hagn­aður Promens á árinu 2011 og ein­ungis 84 pró­sent af bók­færðu virði eign fjár þess. Rík­is­end­ur­skoðun telur því að verðið hafi verið „fremur lágt“.

Árið 2014 seldi bank­inn afgang­inn af hlut sínum í Promens, einnig í lok­uðu ferli þótt að margir aðilar hafi átt í sam­keppni um að kaupa hlut­ina í það sinn. Þá feng­ust 18 millj­arðar króna fyrir sem var 7,8 sinnum meira en rekstr­ar­hagn­aður Promens árið 2014 og 30 pró­sent umfram bók­fært virði eigin fjár fyr­ir­tæk­is­ins. Rík­is­end­ur­skoðun til­greinir að ytri aðstæður höfðu vissu­lega breyst nokkuð frá árinu 2011 en segir að „hvorki yfir­færsla eign­ar­innar frá Lands­bank­anum til Horns né salan árið 2011 var borin undir banka­ráð þótt miklir fjár­munir væru í húfi. Rík­is­end­ur­skoðun telur þetta aðfinnslu­vert og ekki í sam­ræmi við starfs­reglur banka­ráðs.“

Borgun og Valitor

Ástæða þess að Rík­is­end­ur­skoðun rann­sak­aði eigna­sölur Lands­bank­ans er fyrst og síð­ast gagn­rýni vegna sölu á hlut bank­ans í greiðslu­korta­fyr­ir­tæk­inu Borgun haustið 2014. Þá var 31,2 pró­sent hlutur í fyr­ir­tæk­inu seldur til hóps fjár­festa og stjórn­enda Borgunar á 2,2 millj­arða króna á bak­við luktar dyr. Miðað við það verð var heild­ar­virði Borgunar um sjö millj­arðar króna. Ekkert opið sölu­ferli fór fram.

Í byrjun árs 2016 var greint frá því að kaup Visa Inc. á Visa Europe gætu skilað Borgun og öðru íslensku greiðslu­korta­fyr­ir­tæki, Valitor, á annan tug millj­arða króna. Lands­bank­inn átti hlut í bæði Borgun og Valitor. Þeg­ar ­bank­inn seldi hlut sinn í Borgun gerði hann ekki sam­komu­lag um hlut­deild í sölu­and­virði Visa Europe. Þegar hann seldi hlut sinn í Valitor í apríl 2015 ­gerði hann hins vegar sam­komu­lag um við­bót­ar­greiðslu vegna þeirrar hlut­deildar Valitor í sölu­and­virði Visa Europe. Samkvæmt virð­is­mati sem KPMG vann fyrir stjórn­endur Borgunar í febr­úar 2016 var heild­ar­virði fyr­ir­tæk­is­ins þá áætlað á bil­inu 19-26 millj­arðar króna.

Borgun hefur fengið 6,2 ,milljarða króna í sinn hlut vegna sölu á Visa Europe til Visa Inc.
Borgun hefur fengið 6,2 ,millj­arða króna í sinn hlut vegna sölu á Visa Europe til Visa Inc.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar kemur fram að Borgun hafi fengið í sinn hlut 6,2 millj­arða króna vegna hlut­deildar fyr­ir­tæk­is­ins í þeim fjár­munum sem runnu til þeirra félaga sem áttu aðild að Visa Europe. Erfitt sé að meta þá fjár­hæð sem Lands­bank­inn fór á mis við þar sem hagn­aður Borgunar varð að nokkru leyti til eftir sölu eign­ar­hlut­ar­ins. Að auki hefur hann ekki að öllu leyti verið inn­leystur.

Rík­is­end­ur­skoðun segir að bank­inn hafi haft nægan tíma til að kynna sér starf­semi Borg­unar áður en hlutur hans í fyr­ir­tæk­inu var seldur auk þess sem tími hefði verið til að hafa sölu­ferlið opið. Bank­inn hafi ekki gætt að hugs­an­legum verð­mætum sem fylgdu hlutn­um, sem var hlut­deild í fjár­munum sem fyr­ir­tækið fékk þegar Visa Inc. tók yfir Visa Europe. Starfs­menn Lands­bank­ans sem komu að söl­unni á Borgun vissu af þessu, og bank­inn vissi frá því í jan­úar 2013 að það voru veru­leg verð­mæti fólgin í þessu. Sér­fræð­ingar bank­ans um greiðslu­korta­við­skipti upp­lýstu banka­ráðið á fundi í jan­úar 2013 um mögu­legan hagnað Valitors af val­rétt­in­um, en full­trúar bank­ans segj­ast ekki hafa vitað að Borgun væri aðili að Visa Europe líka. Þetta gagn­rýnir Rík­is­end­ur­skoðun og segir að aðild Borg­unar að Visa Europe hafi staðið frá árinu 2010 og hafi verið for­senda þess að fyr­ir­tækið var með færslu­hirð­ingu vegna Visa­korta.

Rík­is­end­ur­skoðun segir að greiðslu­korta­sér­fræð­ingar Lands­bank­ans hafi ekki átt hlut að máli þegar hlut­ur­inn í Borgun var seld­ur, þar sem ekki var leitað til þeirra. Þá hefði bank­inn getað fengið vit­neskju um þetta ef gerð hefði verið áreið­an­leika­könnun upp úr gögn­unum sem bank­anum stóð til boða í gagna­her­bergi. Það hefði að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar verið eðli­legur hluti af sölu­ferl­in­u.

Lands­bank­inn hefur und­an­farna mán­uði und­ir­búið mál­sókn á hendur Borgun vegna þess að hann telur sig hafa farið á mis við verð­mæti þegar hlutur hans í fyr­ir­tæk­inu var seldur.

Þótt að Lands­bank­inn hafi fengið meira fyrir hlut sinn í Valitor en Borgun, og að bank­inn hafi tryggt sér hlut­deild í hagn­aði Valitor vegna sölu á Visa Europe, þá gagn­rýnir Rík­is­end­ur­skoðun hann samt sem áður fyrir söl­una á hlutnum til Arion banka árið 2014. Ástæðan er sú að salan fór fram í lok­uðu ferli.

Staða Hamla athugunarverð

Að lokum gerir Rík­is­end­ur­skoðun athuga­semdir við stöðu eign­ar­halds­fé­lags Lands­bank­ans, Hamla ehf. sem selt hefur fjölda mik­il­vægra fulln­ustu­eigna bank­ans á und­an­förnum árum. Í skýrsl­unni segir: „Í stjórn Hamla sitja banka­stjóri Lands­bank­ans og tveir fram­kvæmda­stjórar sem eru um leið næstu und­ir­menn banka­stjór­ans. Svo virð­ist þó sem Hömlur hafi í reynd verið starf­ræktar eins og hver önnur deild innan bank­ans. Bankinn hefur t.d. séð um launa­vinnslu fyrir Hömlur og starf­semin fer að öllu leyti fram innan húsa­kynna bank­ans. Einnig eru Hömlur með sama síma­númer og Lands­bank­inn. Rík­is­end­ur­skoðun gerir athuga­semdir við skipun stjórnar Hamla og telur að hún sé ekki í sam­ræmi við kröfur Eig­anda­stefnu rík­is­ins (2009) um ábyrgð­ar­skil stjórn­enda. Að mati stofn­un­ar­innar er óæski­legt að banka­stjóri sé bæði virkur þátt­tak­andi í eigna­sölu Hamla og hafi einnig það hlut­verk sem banka­stjóri að sam­þykkja sölu slíkra eigna.

Við vinnslu þess­arar skýrslu hvatti Rík­is­end­ur­skoðun Lands­bank­ann til að taka þetta fyr­ir­komu­lag til end­ur­skoð­unar. Bankinn hefur nú ákveðið að leggja Hömlur niður og flytja starf­sem­ina til Lands­bank­ans.“

Grípa þarf til aðgerða til að endurreisa orðspor bankans

Rík­is­end­ur­skoðun beinir því til banka­ráðs Lands­bank­ans að gripið verði til ráð­staf­ana til að end­ur­reisa orð­spor Lands­bank­ans. „Rík­is­end­ur­skoðun hvetur banka­ráð Lands­bank­ans til að grípa til nauð­syn­legra ráð­staf­ana til að end­ur­heimta og efla það traust og þann trú­verð­ug­leika sem bank­inn hefur á und­an­förnum árum stefnt í hættu með verk­lagi sínu við sölu á verð­mætum eignum. Stofn­unin telur sér­stak­lega mik­il­vægt að banka­ráðið tryggi að bank­inn fylgi eig­anda­stefnu rík­is­ins og öðrum reglum sem eiga að stuðla að góðum stjórn­ar­háttum og heil­brigðum og eðli­legum við­skipta­háttum á fjár­mála­mark­aði.“

Ekki er til­greint til hvaða aðgerða banka­ráðið ætti að grípa til.

Banka­ráðið fékk tæki­færi til að bregð­ast við drögum að skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar. Í við­brögðum þess segir að það sé mat banka­ráðs­ins að nú þegar hafi verið gripið til ráð­staf­ana til að bæta úr flestum þeirra þátta sem ábend­ingar Rík­is­end­ur­skoð­unar nái til. Í frétta­til­kynn­ingu frá Lands­bank­anum sem send var í kjöl­far birt­ingar skýrsl­unnar var haft eftir Helgu Björk Eiríks­dóttur, for­manns banka­ráðs Lands­bank­ans, að það sé mark­mið bank­ans að læra af reynsl­unni og gera ávallt betur. „Í því ljósi munum við kynna okkur efni end­an­legrar skýrslu ítar­lega og meta hvort frek­ari aðgerða er þörf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár