Þvingun og meðferð fara aldrei saman

Héðinn Unn­steins­son, for­maður Lands­sam­taka Geð­hjálpar, segir sam­tökin vilja afnema nauð­ung­ar­vistun og þving­anir í með­ferð sjúk­linga sem eiga við geð­rænar áskor­anir að stríða.

„Enga ætti að beita nauð­ung eða þvingun en samt á að halda mögu­leik­anum á slíku áfram opnum gagn­vart ein­stak­lingum með geð­rask­anir.“ Á þennan hátt lýsir Héðinn Unn­steins­son, for­maður Lands­sam­taka Geð­hjálpar, afstöðu sinni til frum­varps heil­brigð­is­ráð­herra um breyt­ingu á lögum um rétt­indi sjúk­linga hvað varðar nauð­ung­ar­vistun og þving­aða lyfja­gjöf inni á lok­uðum geð­deildum Land­spít­al­ans. 

Með þessum orðum er hann að vísa í gagn­rýni Geð­hjálpar á að frum­varpið leggi til bann við nauð­ung og þving­unum, nema í und­an­tekn­ing­ar­til­fellum. Þau til­felli eru ann­ars vegar: „Að koma í veg fyrir að sjúk­lingur valdi sjálfum sér eða öðrum lík­ams­tjóni eða stór­felldu eigna­tjóni. Það á einnig við fyr­ir­byggj­andi aðgerðir sem ætlað er að forða því að aðstæður komi upp sem leitt geta til lík­ams­tjóns eða stór­fellds eigna­tjóns“, og hins vegar: „Að upp­fylla grunn­þarfir við­kom­andi ein­stak­lings, svo sem varð­andi mat, heilsu og hrein­læti, eða til þess að draga úr hömlu­leysi sem af sjúk­leika kann að leiða“, …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár