Raunveruleikinn bankar á dyrnar

Alþjóða­mál koma öllum við með einum eða öðrum hætti. Ísland er þar ekki eyland, þrátt fyrir ein­angr­aða land­fræði­lega eyrík­is­stöðu í Atl­ants­haf­inu. Miklar svipt­ingar í alþjóða­stjórn­málum og alþjóða­við­skiptum koma upp að Íslands­ströndum.

Það hefur stundum verið sagt um alþjóða­væð­ing­una að hennar helsta ógn sé hún sjálf og afleið­ingar hennar. Banda­ríkin má segja að end­ur­spegli alþjóða­væddan heim betur en nokkur annar staður í ver­öld­inni.

Þar eru kraftar úr öllum áttum og flest af stærstu og áhrifa­mestu alþjóða­væddu fyr­ir­tækjum heims­ins. En á stórum svæðum, ekki síst í hinum svo­nefndu mið­ríkjum, hefur efna­hags­vandi verið við­var­andi á stórum svæðum, sem rekja má til þess að störf hafa færst frá þeim svæðum til ann­arra landa. Þetta á ekki síst við um verk­smiðju- og fram­leiðslu­störf.

Á mörgum svæðum hefur und­an­far­inn ára­tugur verið sér­stak­lega erf­iður bæði félags- og efna­hags­lega. Þrátt fyrir hátt atvinnustig, þá hefur engu að síður verið erfitt fyrir stóra hópa að ná endum saman og lifa með reisn. Fjár­málakreppan fyrir ára­tug hafði mikil áhrif á lífs­kjör í mið­ríkj­unum og hafa und­an­farin tíu ár verið eyði­merk­ur­ganga fyrir marga.

Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, gerði þessa þróun að umtals­efni í grein í Vís­bend­ingu á dög­unum, og sagði meðal ann­ars að upp­gangur ein­angr­un­ar­stefnu í stjórn- og efna­hags­málum ætti meðal ann­ars rætur í þessum erf­iðu aðstæðum. „Orsakir vin­sælda þjóð­ern­is­hreyf­ing­anna hafa verið rann­sak­aðar und­an­farin ár og hefur komið í ljós að fylgi þeirra má rekja til hópa kjós­enda sem van­treysta hinum hefð­bundnu flokkum og hræð­ast breyt­ing­ar. Þessir kjós­endur eru yfir­leitt eldri, búsettir í strjál­býli, minna mennt­aðir og telja hags­munum sínum ógnað af inn­flutn­ingi vinnu­afls og alþjóða­við­skipt­um. Þetta á einnig við í Banda­ríkj­un­um. Hlut­skipti hvíta minni­hlut­ans í Banda­ríkj­unum sem ekki hefur háskóla­próf er ekki gott. Dán­ar­tíðni innan hóps­ins hefur farið hækk­andi um nokk­urt skeið, þannig eru dán­ar­líkur fimm­tugs hvíts manns sem ekki hefur háskóla­próf nú hærri en föður hans þegar hann var á sama aldri. Ástæð­una má rekja til lyfja­notk­unar, mis­notk­unar á áfengi og sjálfs­morða. Þannig hafa hvítir Banda­ríkja­menn sem ekki hafa háskóla­próf það að jafn­aði slæmt og verra en kyn­slóð for­eldra hafði það. Á meðan for­eldr­ar, afar og ömmur höfðu betur launuð störf í iðn­aði þá þarf núlif­andi kyn­slóð að láta sér nægja lágt launuð störf í þjón­ustu­geir­an­um. Heilsu­kvillar er algengir, t.d. er tíðni krónískra verkja há, og lyfjum er þá beitt til þess að bæta líð­an, t.d. opíóðar og heróín. Lyfja­mis­notkun fylgir oft í kjöl­far­ið,“ sagði í grein Gylfa.

Seðlabankinn galinn?

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur inn­leitt alveg nýja tíma í efna­hags­lífi heims­ins. Þó einn maður stjórni ekki alþjóða­væddum heimi við­skipta þá eru áhrif Banda­ríkj­anna miklu meiri en allra ann­arra ríkja. Sér­stak­lega ef litið er til þeirrar stað­reyndar, að meira en 60 pró­sent af gjald­eyr­is­forða heims­ins er í Banda­ríkja­dal. Vaxta­stig í Banda­ríkj­unum hefur því mikil áhrif á fjár­magns­kostnað þjóð­ríkja og fyr­ir­tækja, og þannig óbeint almenn­ings. Hag­stjórnin í Banda­ríkj­unum er ekk­ert einka­mál Banda­ríkj­anna heldur mik­il­vægt mál fyrir heim­inn allan, og Ísland er að sjálf­sögðu inn í því mengi.

Donald Trump hefur innleitt nýja tíma í efnahagslífi heimsins.
Donald Trump hefur inn­leitt nýja tíma í efna­hags­lífi heims­ins.

Við­skipta­sam­band Íslands og Banda­ríkj­anna hefur marg­fald­ast á und­an­förnum fimm árum og má ekki síst rekja það til tíðra heim­sókna erlendra ferða­manna frá Banda­ríkj­unum til Íslands. Banda­rískir ferða­menn eru nú lang­sam­lega stærsti ein­staki hópur ferða­manna sem heim­sækir landið og standa undir nærri fjórð­ungi heild­ar­fjöld­ans þessi miss­erin. Þetta skiptir veru­lega miklu máli fyrir hag­kerfið og má sem dæmi nefna að erlend korta­velta í hag­kerf­inu hefur þre­fald­ast frá árinu 2013, farið úr rúm­lega 90 millj­örðum í rúm­lega 260 millj­arða í fyrra, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Ferða­mála­stofu.
Vöru­við­skipti hafa einnig farið vax­andi en ljóst er þó að mikil tæki­færi liggja í því fyrir mörg útflutn­ings­fyr­ir­tæki að ná betri árangri á þeim stóra og fjöl­breytta mark­aði sem Banda­ríkin eru.

Fyrsta efnahagshöggið

Nú þegar kjör­tíma­bil Trump er að verða hálfnað hefur hann og starfs­lið hans verið að upp­lifa fyrstu „slæmu“ hag­töl­urnar. Ávöxtun á hluta­bréfa­mark­aði er nú komin aftur fyrir það sem hún var fyrir ári síðan og miklar blikur á lofti á fjár­mála­mörk­uðum. Seðla­banki Banda­ríkj­anna er mitt inn í vaxta­hækk­un­ar­ferli, sam­kvæmt spá bank­ans, og það er Trump for­seta ekki að skapi. „Seðla­bank­inn er orð­inn gal­inn,“ sagði hann með hendur á lofti í við­tali á dög­unum, og sagði vext­ina þurfa að lækka. Jerome Powell, núver­andi seðla­banka­stjóri, átti að vera hans maður, en Trump hefur nú látið hafa eftir sér í tvígang á skömmum tíma, að hann sé far­inn að sjá eftir að skipa hann. „Obama fékk að njóta þess að vera með núll pró­sent vexti,“ sagði Trump í við­tali við Fox News, og kvart­aði sáran yfir vaxta­stig­inu.

Allt bendir til þess að vext­irnir, sem nú eru 2,25 pró­sent, muni halda áfram að hækka, eftir næstum ára­tuga­langt tíma­bil þar sem vextir voru við núllið. Þetta þýðir að fjár­magns­kostn­aður eykst í hag­kerf­inu, sem getur leitt til kóln­unar, ekki síst á fast­eigna­mark­aði. Þau ein­kenni eru víða þegar komin fram.

Spá Seðla­banka Banda­ríkj­anna gerir ráð fyrir að vaxta­stig geti hækkað í þrjú pró­sent næsta árið, ekki síst þar sem verð­bólgu­þrýst­ingur hefur farið vax­andi í Banda­ríkj­unum eftir olíu­verðs­lækk­anir og einnig aukna eft­ir­spurn almennt í Banda­ríkj­unum.

Tölu­verðrar spennu hefur því gætt í efna­hags­bú­skap Banda­ríkj­anna að und­an­förnu og hafa skatta­lækk­an­irnar virkað eins og skamm­tímainn­spýt­ing inn í hag­kerfið. Veru­legur halli á rekstri rík­is­sjóðs er áfram við­var­andi. Ljóst er að þann vanda vilja yfir­völd í Banda­ríkj­unum ekki takast á við og ætla að senda reikn­ing­inn inn í fram­tíð­ina. Það er ekki breyt­ing frá því sem verið hefur und­an­farin ár, en hall­inn hefur þó sjaldan eða aldrei verið meiri en nú.

Atvinnu­leysi í Banda­ríkj­unum er með minnsta móti, og hefur mælst í kringum 4 pró­sent að und­an­förnu. Í raun svipar hag­tölum Banda­ríkj­anna veru­lega mikið til taln­anna sem sáust á milli 1965 og 1975. Það má einnig segja að hug­mynda­bar­áttan sé í algleym­ingi nú eins og þá, með þá Richard Nixon og Donald Trump í umdeildum for­seta­hlut­verkum.

Skammtíma innspýting

Skatta­lækk­anir hafa haft veru­lega mikil áhrif á banda­rískt efna­hags­líf að und­an­förnu og hafa þau komið fram með ýmsum hætti.

Áhrifa­mesta breyt­ingin er lækkun á skatti á fyr­ir­tæki úr 35 pró­sent í 21 pró­sent. Mark­miðið með breyt­ing­unni var að fá fyr­ir­tæki til að fjár­festa meira, einkum þau sem hafa verið með mikið fjár­magn utan Banda­ríkj­anna, en auk þess verður heldur ekki fram­hjá því horft að þessi lækkun kemur sér afar vel fyrir hlut­hafa og ríkt fólk.

Það ein­fald­lega situr meira eftir í vas­anum hjá því eftir þessa breyt­ingu, og það munar veru­lega miklu frá því sem áður var. Hjá milli­tekju­fólki og fátækum hafa skatta­breyt­ing­arnar lítil áhrif, en þó þyng­ist staða þeirra sem allra verstu kjörin hafa, þar sem breyt­ing­arnar eru taldar ýta veru­lega undir eft­ir­spurn til skamms tíma með til­heyr­andi verð­lags­hækk­unum.

Áhrifin af þessum breyt­ingum - einkum lækk­unar fyr­ir­tækja­skatts­ins - eru óljós til fram­tíðar litið. Það sem flækir grein­ingar á þeim áhrifum eru ekki síst aðrar aðgerðir stjórn­valda sem geta vegið á móti því sem að var stefnt. Þar kemur ekki síst tolla­stríðið til sög­unnar.

Risarnir berjast

Nú þegar hafa banda­rísk yfir­völd gripið til stór­tækra aðgerða sem ætlað er að styrkja stöðu Banda­ríkj­anna til fram­tíðar. Deildar mein­ingar eru um hvort það tekst með þeim vopnum sem nú er beitt, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Trump og stjórn hans hefur sér­stak­lega beint spjót­unum að Kína og hefur þegar sett á inn­flutn­ings­tolla á þús­undir vöru­teg­unda.

Þeir tollar sem vega þyngst eru 10 og 25 pró­sent tollar á ál og stál. Samtals eru upp­hæð­irnar upp á um 300 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 36 þús­und millj­arða króna.
Í byrjun vik­unnar kom þó í ljós að stöku fyr­ir­tæki í Kína hafa fengið und­an­þágur á þessum tollum, og fá að flytja inn vörur til Banda­ríkj­anna fram­hjá þessum tollum. Ekki hafa verið gefnar skýr­ingar á þessum form­legum und­an­þágum en Elizabeth Warren, þing­maður Demókrata, lagði fram fyr­ir­spurnir varð­andi þær til við­skipta­ráðu­neytis Banda­ríkj­anna í vik­unni.

Samkvæmt umfjöllun Wall Street Journal leikur grunur á því að und­an­þág­urnar séu til félaga sem eru með kín­versk dótt­ur­fé­lög, en enda­eig­endur séu aðrir en kín­verskir aðilar. Það mun eflaust skýr­ast síðar hvað þarna er á ferð­inni.

Hótanir um fleiri aðgerðir, til að styrkja hag Banda­ríkj­anna í við­skiptum við Kína, eru síðan á borð­inu. Það eru ekki öll kurl komin til grafar enn. Óhætt er að segja að fjár­festar í Banda­ríkj­unum hafi tekið þessum aðgerðum illa, sé horft til hluta­bréfa­mark­aðar og fjár­fest­ingar inn­an­lands. Hún hefur verið að dala, þrátt fyrir að einka­neysla auk­ist í takt við vænt­ingar þar um.

Í skrifum Gylfa Zoega um áhrifin af við­skipta­stríði Kína og Banda­ríkj­anna kemur fram að ekk­ert bendi til ann­ars, en að áfram verði eytt um efni fram. Og þá bendir hann einnig á að tolla­stríð séu oftar en ekki til bölv­unar, fyrir heild­ina: „Rík­is­stjórn Trump hefur lagt á tolla á inn­flutn­ing frá Kína, Kanada og Evr­ópu­sam­band­inu. Þessi lönd hafa síðan svarað í sömu mynt. Með toll­unum á að minnka við­skipta­halla Banda­ríkj­anna við Kína og flytja störf frá Kína til Banda­ríkj­anna. Ekki er lík­legt að toll­arnir bæti hag Banda­ríkj­anna. Í fyrsta lagi er veru­legur hluti af inn­flutn­ingi frá Kína fram­leiddur af banda­rískum fyr­ir­tækjum í Kína sem þá nota ódýrt vinnu­afl. Far­símar Apple fyr­ir­tæk­is­ins eru fram­leiddir í Kína og verða þá tollar til þess að hækka verð á þeim fyrir banda­ríska neyt­end­ur. Í öðru lagi geta banda­rísk fyr­ir­tæki brugð­ist við toll­unum með því að flytja fram­leiðslu til þriðja rík­is, t.d. Víetnam. Í þriðja lagi gætu þau flutt fram­leiðsl­una til Banda­ríkj­anna en látið vélar og tölvur um fram­leiðsl­una en ekki inn­lent vinnu­afl. Það sem mestu máli skiptir er þó að við­skipta­halli þjóðar felur í sér að hún eyðir um efni fram, þjóð­ar­út­gjöld eru meiri en þjóð­ar­fram­leiðsla. Tollar breyta hér engu um. Við­skipta­halli Banda­ríkj­anna minnkar ein­ungis ef Banda­ríkja­menn fara að spara meira, opin­ber sparn­aður er auk­inn eða fjár­fest­ing minnk­ar. Minni sparn­aður í við­skipta­löndum hefur sömu áhrif, aukin útgjöld í Þýska­landi, svo dæmi sé tek­ið, myndi minnka við­skipta­af­gang þess lands og þá einnig við­skipta­halla Banda­ríkj­anna, sparn­aður í síð­ar­nefnda land­inu myndi aukast. Skatta­lækk­anir Trump minnka opin­beran sparnað sem að öðru óbreyttu eykur á við­skipta­hall­ann.“

Hvernig eiga íslensk stjórnvöld að snúa sér?

Umfang þess­ara breyt­inga á alþjóða­væddu við­skipta­lífi er óþekkt í seinni tíð, og því mun miklu skipta fyrir lítil ríki með opin tengsl við umheim­inn, eins og Ísland, að greina stöðu mála rétt og leita tæki­færa. Að und­an­förnu hafa íslensk stjórn­völd stigið við­bót­ar­skref til að styrkja við­skipta­sam­band við Kína, meðal ann­ars með sér­stökum samn­ingum á sviði orku­mála, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­aðar. Upp­hæð­irnar eru miklar og hlaupa tugum millj­arða, ef það tekst að styrkja við­skipta­sam­bandið. Orku­samn­ingar Carbon Recycling og Arctic Energy eru upp á 25 millj­arða króna, svo dæmi sé tekið. Kín­verskur mark­aður hefur verið ört vax­andi og með auknum tengslum þangað getur Ísland styrkt efna­hag lands­ins.

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, stendur fyrir Arctic Circle ráðstefnunni.
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seti Íslands, stendur fyrir Arctic Circle ráð­stefn­unni.

Fleiri tæki­færi eru einnig á borð­inu og mátti greina það á Arctic Circle ráð­stefn­unni, sem Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seti, stendur fyrir, að aukin við­skipti á norð­ur­slóðum í fram­tíð­inni yrðu með einum eða öðrum hætti með aðkomu Kínverja og einnig Rússa. Ísland er þarna í mið­punkti sam­bands við ríki sem lengi hafa átt í stirðu sam­bandi við Banda­ríkin, og kannski aldrei eins og nú. Í þess­ari stöðu fel­ast bæði tæki­færi og hættur því raun­veru­leik­inn ber alltaf að dyrum að lokum og það er ekki til neitt sem heitir að vera vinur allra á tímum þar sem vax­andi spennu gætir í alþjóða­mál­unum. Ísland er hins vegar um margt í merki­legri stöðu. Við­skipta­sam­bandið við Banda­ríkin eru marg­fald­ast á sama tíma og stigin hafa verið stór skref í átt að frek­ari við­skiptum við Kína. Þó Evrópa sé okkar stærsti mark­aður, og EES samn­ing­ur­inn mik­il­væg­asti við­skipta­samn­ingur Íslands í þeim skiln­ingi, þá liggja mikil tæki­færi í því að renna sterk­ari stoðum undir við­skiptin til risanna í austri og vestri. Það kann að vera að þeir séu óvinir, í augna­blik­inu og eigi í við­skipta­stríði, en litla Ísland virð­ist hafa góða mögu­leika til rækta sam­bandið með sjálf­stæðum hætti í báðar áttir. Og þannig styrkja við­skipta­lífið til fram­tíðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár