Bandaríkin gætu reynst Íslandi erfið innan Norðurskautsráðsins vegna loftslagsmála

Banda­ríkin neit­uðu að skrifa undir vilja­yf­ir­lýs­ingu ráðs­ins vegna klausu um lofts­lags­breyt­ingar. Lofts­lags­mál eru hins vegar horn­steinn stefnu Íslands í nýju for­mennsku­sæti innan ráðs­ins.

Baráttan gegn lofts­lags­breyt­ingum er horn­steinn for­mennsku­á­ætl­unar Íslands í Norð­ur­skauts­ráð­inu. Utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna neit­aði að skrifa undir sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu ráðs­ins í maí síð­ast­liðnum vegna þess að þar var minnst var á lofts­lags­breyt­ingar. Því er ljóst að Banda­ríkin gætu reynst Íslandi fjötur um fót þegar kemur að stefnu Íslands á norð­ur­slóðum.

Ísland tók við for­mennsku til tveggja ára í Norð­ur­skauts­ráð­inu 7. maí síð­ast­lið­inn þegar Ísland tók við af Finn­landi og verður við for­mennsku næstu tvö árin. Í kynn­ing­ar­ræðu sinni á for­mennsku­á­herslum Íslands sagði Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra, mál­efni norð­ur­slóða vera for­gangs­at­riði utan­rík­is­stefnu Íslands.

Norð­ur­skauts­ráðið skipa átta aðild­ar­ríki, það eru Norð­ur­löndin fimm, Banda­ríkin, Rússland og Kanada, auk sex sam­taka frum­byggja á norð­ur­slóðum. Enn fremur eiga þrettán ríki áheyrn­ar­að­ild að ráð­inu auk fjöl­margra sam­taka og stofn­ana.

Hvað ætlar Ísland að gera?

Ljóst er að hlut­verk norð­ur­slóða í lífi Íslend­inga mun stækka á næstu árum. Það er einna helst vegna vegna áhrifa lofts­lags­breyt­inga og hop­unar íss. Hopun íss auð­veldar skipa­flutn­inga um norð­ur­slóðir sem gæti stytt flutn­ings­tíma vara frá Asíu til Evrópu til muna. Kínversk fyr­ir­tæki eru til að mynda farnir að huga að frek­ari sigl­ingum um norð­ur­slóðir.

Áherslu­mál Íslands í for­mennsku­sæti eru þrjú: lofts­lags­mál og grænar orku­lausnir, mál­efni hafs­ins og að lokum fólkið og sam­fé­lög á norð­ur­slóðum. Enn fremur verður sér­stak­lega unnið að því að styrkja Norð­ur­skauts­ráðið.

Í for­mennsku­á­ætlun Íslands segir að Ísland muni leggja áherslu á grein­ingu og vöktun á breyt­ing­unum, enda valdi hlýnun „nú þegar áþreif­an­legum og víxl­verk­andi breyt­ingum á nátt­úru­fari. Nefna má hopun íss og snævar, inn­streymi ferskvatns til Norður-Íshafs­ins og súrnun sjávar” sem hafi bæði áhrif á sam­fé­lög og efna­hags­líf á svæð­inu. Enn fremur sé mik­il­vægt að skipta úr jarð­efna­elds­neyti yfir í end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa.

Hvað varðar mál­efni hafs­ins ætla íslensk stjórn­völd að efna til alþjóð­legrar vís­inda­ráð­stefnu í Reykja­vík vorið 2020. Meg­in­efnið verður eðli og útbreiðsla plast­meng­unar í sjó, áhrif á líf­ríkið og mögu­legar lausnir.

Áherslumál Íslands í formennskusæti eru þrjú: loftslagsmál og grænar orkulausnir, málefni hafsins og að lokum fólkið og samfélög á norðurslóðum. Enn fremur verður sérstaklega unnið að því að styrkja Norðurskautsráðið.
Áherslu­mál Íslands í for­mennsku­sæti eru þrjú: lofts­lags­mál og grænar orku­lausnir, mál­efni hafs­ins og að lokum fólkið og sam­fé­lög á norð­ur­slóðum. Enn fremur verður sér­stak­lega unnið að því að styrkja Norð­ur­skauts­ráðið.

Í áætl­un­inni segir varð­andi fólkið á norð­ur­slóðum að umhverf­is­breyt­ingar orki „með marg­vís­legum hætti á sam­fé­lög og lífs­af­komu þeirra. Styrkja verður við­náms­þol við­kvæmra byggða í norðri en sam­fé­lög frum­byggja eru að ýmsu leyti ber­skjald­aðri en önnur fyrir þessum breyt­ingum.“

Því er hægt að segja að öll áherslu­málum for­mennsku­á­ætl­unar Íslands í Norð­ur­skauts­ráð­inu við komi lofts­lags­málum.

Hvernig munu íslensk stjórnvöld tækla Bandaríkin?

Vaninn innan Norð­ur­skauts­ráðs­ins er að gefa út sam­eig­in­lega form­lega yfir­lýs­ingu allra með­lima­ríkja ráðs­ins við lok for­mennsku ríkis. Við lok for­mennsku Finna í Norð­ur­skauts­ráð­inu í maí síð­ast­liðnum var hins vegar staðan önnur því ekki var skrifað undir sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu. Í stað­inn var gefin út yfir­lýs­ing for­manns­ins og ráð­herra­yf­ir­lýs­ing. Aldrei hefur það gerst áður að ekki hafi náðst sam­komu­lag um ályktun af þessu tagi.

Ástæðan var sú að Pompeo, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, neit­aði að skrifa undir yfir­lýs­ingu sem nefndi lofts­lags­breyt­ingar. 

Í við­tali við Morg­un­blaðið sagði Guð­laugur Þór að ekki væri hægt að taka við Norð­ur­skauts­ráð­inu á meiri krefj­andi tíma heldur en núna. Þegar hann var spurður út í yfir­lýs­ing­una sem ekki var gefin út sagði hann að nið­ur­staðan væri sú „að fara þessa leið að vera með sam­eig­in­lega ráð­herra­yf­ir­lýs­ingu, sömu­leiðis var yf­ir­lýs­ing frá for­manni og við höf­um fengið mjög góð við­brögð við okk­ar áhersl­um. Þannig að þetta er gott vega­nesti fyr­ir okk­ur næstu árin.“

Ekki ástæða að gera of mikið úr ágreiningi

Í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að innan Norð­ur­skauts­ráðs­ins sé sneitt hjá þeim mál­efnum sem vitað er að aðild­ar­ríkin deila um og fisk­veiðar og hern­að­ar­ör­yggi tekin sem dæmi. Alþjóð­legt sam­starf um að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda færi ekki fram á vett­vangi ráðs­ins, að því er segir í svar­inu. Fremur miði starf ráðs­ins sem teng­ist lofts­lags­breyt­ingum að vakta breyt­ingar á svæð­inu og miðla upp­lýs­ingum.

Ekki er því ástæða til að gera of mikið úr ágrein­ingi þar enda eru aðild­ar­ríkin átta og frum­byggja­sam­tökin í grunn­inn sam­mála um að stuðla að sjálf­bærri þróun á norð­ur­slóðum og hag­sæld íbú­anna sem þar búa

Varðandi Banda­ríkin segir í svar­inu að „allar ákvarð­anir Norð­ur­skauts­ráðs­ins eru teknar með sam­hljóða sam­þykki og þegar átta ríki eiga í hlut blasir við að gera þarf mála­miðl­anir til að kom­ast að sam­eig­in­legri nið­ur­stöðu. Á ráð­herra­fund­inum í Rovaniemi í Finn­landi 6.-7. maí sl. und­ir­rit­uðu allir utan­rík­is­ráð­herrar Norð­ur­skauts­ráðs­ins sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu og sam­þykktu verk­efna­á­ætl­anir sem m.a. gera Íslandi kleift að fram­kvæmda for­mennsku­á­ætlun Íslands. Afstaða Banda­ríkja­manna í lofts­lags­málum sem fram kom á fund­inum í Rovaniemi breytir engu þar um. Ekki er því ástæða til að gera of mikið úr ágrein­ingi þar enda eru aðild­ar­ríkin átta og frum­byggja­sam­tökin í grunn­inn sam­mála um að stuðla að sjálf­bærri þróun á norð­ur­slóðum og hag­sæld íbú­anna sem þar búa.“

Í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins segir enn fremur að enn sé of snemmt að segja til um hvort og þá hvaða mála­miðl­anir verði gerðar við lok for­mennsku Íslands. Enn fremur sé Ísland sann­ar­lega ekki að sneiða hjá umræðu um lofts­lags­breyt­ingar á þessum vett­vangi.

Andstaða gegn umræðu um loftslagsmál ekkert nýtt

Andstæða stjórnar Trump við nokkru sem við kemur lofts­lags­breyt­ingum er ekki nýtt af nál­inni. Trump dró Banda­ríkin úr Par­ís­ar­sátt­mál­anum og hefur Land­bún­að­ar­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna lagt bann við að minn­ast á lofts­lags­breyt­ingar í opin­berum skjölum.

Í öllu falli er ljóst er að sam­skipti Banda­ríkj­anna og Íslands eru enn sterk. Til að mynda kom utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, Mike Pompeo, í óvænta heim­sókn til Íslands í febr­úar síð­ast­liðnum. Ræddi hann við Guðlaug Þór um norð­ur­slóðir, öryggi, varnir og við­skipti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár