Mynd: Arne Feuerhahn

Hver langreyður safnar um 33 tonnum af kolefni á lífsleiðinni

Hvalir binda kolefni. Eiga í sam­skiptum. Eru for­vitnir, lausn­a­mið­aðir og fórn­fúsir. Veiðar á þeim eru óþarfar, ekki hluti af menn­ingu Íslend­inga og að auki óarð­bærar. Þær snú­ast enda ekki um hagnað heldur völd. „Kristján Loftsson er síð­asti kval­ar­inn.“

Hval­veiðar Íslend­inga eru barn síns tíma, tím­arnir hafa breyst, við þurfum að sýna meiri ábyrgð og ekki bara veiða af því við getum það,“ segir Edda Elísabet Magn­ús­dóttir, doktor í sjáv­ar­líf­fræði og einn helsti hvala­sér­fræð­ingur Íslend­inga. Edda var meðal þeirra sem tóku til máls á mót­mælum gegn hval­veiðum sem fjögur sam­tök stóðu fyrir á Aust­ur­velli á föstu­dag.

Margrét Tryggva­dóttir, rit­höf­undur og fyrr­ver­andi þing­maður, rifj­aði í sinni ræðu upp að hval­veiðar hefðu fyrst og fremst verið stund­aðar af útlend­ingum við Ísland í aldir, aðeins hins síð­ari ár af Íslend­ingum og því vart hluti af íslenskri menn­ingu.

Val­gerður Árna­dóttir, for­maður Samtaka græn­kera á Íslandi, sagði hvali skutl­aða með sprengjum og að þeir hái oft langt dauða­stríð. Hún spurði hvort Íslend­ingum þætti það eitt­hvað skárra en nauta­hlaupið í Pamplona sem end­aði með pynt­ingum á naut­unum.

Þörf fyrir nýtingu þarf að vera mikil

Rök fyrir hval­veiðum á seinni árum „hafa því miður verið á lágu plani,“ sagði Edda og að oft snú­ist umræðan um nátt­úr­una sem auð­lind sem menn hefðu rétt á að nýta. „Slík orð­ræða var rétt­mæt­ari á öldum áður þegar mann­fólk þurfti almennt að hafa meira fyrir hverjum degi fyrir sig. En nú er veru­leik­inn allt annar, nátt­úr­unni hnignar og fólks­fjölgun er allt of mikil. Við eigum ekki sjálf­sagðan rétt á að nýta stofna nátt­úr­unnar. Þeir stofnar sem við nýtum þurfa að vera sterkir og þörfin fyrir nýt­ingu þeirra þarf að vera mikil.“

Í ljósi bág­bor­innar stöðu nátt­úr­unnar þurfi mann­eskjur að breyta við­horfum sínum. „Náttúran er ekki þarna fyrir okkur en til að lifa af þurfum við að lifa með henni og aðeins taka það sem við þurfum og það sem nátt­úran ræður við.“

Hvalveiðar ekki óumflýjanlegar

Edda benti á að tap líf­breyti­leika jarðar á heims­vísu ger­ist nú mun hraðar áður í 300 þús­und ára sögu manns­ins. Yfir 30 þús­und af 120 þús­und teg­undum séu nú á rauðum lista Alþjóða-nátt­úru­vernd­ar­sam­tak­anna (International Union for Conservation of Nature, IUCN) um teg­undir í útrým­ing­ar­hættu og hefur fjöldi þeirra þre­fald­ast á síð­ustu tutt­ugu árum.

„Hvers vegna? Jú fyrst og fremst vegna athafna okkar mann­anna sem hefur ger­breytt ásýnd jarð­ar­innar, valdið margs­konar mengun í líf­rík­inu, breyt­ingum á lofts­lagi, súrn­unar sjávar og öfgum í veð­ur­fari.“

Líf­breyti­leika jarðar sé því ógnað sem aldrei fyrr vegna athafna manns­ins eins og ofveiða og rösk­unar á nátt­úru­legum búsvæðum. „Sumt er jú óum­flýj­an­legt þar sem reyna þarf að tryggja fæðu­ör­yggi manns­ins,“ sagði Edda, „en svo ótal­margt sem við gerum er umflýj­an­legt og óþarft. Hval­veiðar eru þar meðal ann­ars.“

Edda Elísabet Magnúsdóttir ræðir við fréttamenn að loknum mótmælunum á föstudag.
Edda Elísabet Magn­ús­dóttir ræðir við frétta­menn að loknum mót­mæl­unum á föstu­dag.

Fjöldi þeirra lang­reyða sem til­heyrir þeim stofni sem Hvalur hf. veiðir úr telur um 45 þús­und dýr og hrefn­urnar um 150 þús­und í öllu Norður-Atl­ants­hafi. Úr þeim stofni veiða Norðmenn líka.

„Fyrir spen­dýr sem fjölga sér hægt og setja gíf­ur­lega orku í hvert afkvæmi telj­ast þetta ekki stórir spen­dýra­stofnar,“ sagði Edda. Fjöldi þeirra hvala sem má veiða sé ekki lík­legur til að valda skaða á stofn­unum eins og staðan er í dag. „En munum að umhverfi þess­ara dýra er að breyt­ast á met­hraða sem við getum ekki fylli­lega séð fyrir.“

Edda sagði að það einnig gleym­ast í umræð­unni að hinar tíð­ræddu auð­lindir séu líf­verur sem eigi sér til­veru­rétt, sumar lifi í fjöl­skyldu­hópum alla sína ævi, teng­ist djúpum böndum, læri og leiki sér. „Ef fólk sýnir af sér minnstu til­finn­inga­semi gagn­vart dýr­unum og gerir athuga­semdir við aflíf­un­ar­að­ferðir eða aðbúnað dýra, sem geta verið ómann­úð­legar, eru slíkir ein­stak­lingar afgreiddir sem órök­réttar til­finn­inga­skjóður sem hafa greini­lega aldrei verið í sveit.“

En þekk­ingu okkar fleyti hratt fram. „Og fyrir til­stuðlan rann­sókna á atferli dýra höldum við áfram að læra og skilja betur gleði þeirra og sorg, for­vitni, upp­götv­anir, nýsköpun, lausn­ar­leit, sam­kennd og fórn­fýsi og svo mætti lengi telja. Upp­lif­anir sem virð­ast ekki ýkja ólíkar okkar. Þar eru hvalir engin und­an­tekn­ing.“

Þegar við veljum að veiða villt dýr í nátt­úr­unni eða halda þeim til mann­eldis þurfa að mati Eddu að liggja sterk rök að baki og nauð­synin að vera skýr.

Skammarleg skýrsla

Rann­sóknir hafi meðal ann­ars sýnt að end­ur­koma hvala inn á ákveðin svæði geti haft jákvæð áhrif á frum­fram­leiðni sem auki frek­ari fram­leiðslu­getu og líf­breyti­leika innan vist­kerfa. Þannig sé úrgangur frá hvölum, sem er ríkur af snefil­efnum, mik­il­vægur plöntu­svifi, sem er svo aftur und­ir­staða vist­kerfa sjávar. Einnig séu hval­hræ sem falla til botns mik­il­vægur hluti botn­vist­kerfa.

„Af miklu ábyrgð­ar­leysi var því haldið fram í nýlegri skýrslu Hag­fræða­stofn­unar Háskóla Íslands um þjóð­hags­leg áhrif hval­veiða, að brott­hvarf um 40 pró­sent hvala yrði til sam­bæri­legrar fjölg­unar í nytja­stofnum í haf­inu,“ sagði Edda. „Slík rök­færsla er veru­lega óvís­inda­leg og skammar­leg fyrir íslenskt vís­inda­sam­fé­lag.“

Í skýrsl­unni hafi ekki verið tekið til greina að hvalir eru hluti af flæði orku um fæðu­vef sjávar og gegni afar mik­il­vægu hlut­verki í hringrás nær­ing­ar­efna. „Fisk­veiðar manns­ins fjar­lægja hins vegar orku og nær­ing­ar­efni út úr vist­kerf­inu sem skilar sér ekki svo glatt til baka. Því er ekki hægt að bera saman afrán hvala og manna út frá orku­þörf líkt og var gert í skýrsl­unni.“

Edda minnti enn­fremur á að stór­hveli geta bundið mikið magn kolefnis nái þeir fullum aldri. „Áætlað hefur verið að stór­hveli eins og lang­reyður og steypireyður safni um 33 tonnum af kolefni á sínum líf­tíma. Það minnir á mik­il­vægi hvala í bind­ingu kolefnis. Deyi hvalur í haf­inu á kolefnið í lík­ama hans ekki greiða leið út í and­rúms­loftið í formi koltví­sýr­ings heldur nýt­ist hann í lík­ama ann­arra sjáv­ar­líf­vera.“ Þegar hvalur sé hins vegar dreg­inn á land og verk­aður losnar mun meira af koltví­sýr­ing milli­liða­laust út í and­rúms­loftið.

Hvalir hafa við­haldið lifn­að­ar­háttum sínum í um 50 millj­ónir ára í jafn­vægi við umhverfið sitt. Jafn­vægið helst svo lengi sem þeir taka ekki meira en umhverfið þolir. Þessu sagð­ist Edda vilja vekja athygli á þar sem gjarnan hefur verið reynt að rétt­læta hval­veiðar vegna þess magns fæðu sem hvalir þurfa að inn­byrða og gefið í skyn að magnið sé ónátt­úru­legt og vont fyrir nátt­úr­una. „Slík rök eiga ekki rétt á sér við rétt­læt­ingu hval­veiða,“ sagði hún. „Náttúran þarf að fá að njóta vafans, í ljósi með­ferðar okkar á jörð­inni hefur þörfin aldrei verið meiri.“

Margrét Tryggvadóttir ræðir við fjölmiðla á mótmælunum á Austurvelli.
Margrét Tryggva­dóttir ræðir við fjöl­miðla á mót­mæl­unum á Aust­ur­velli.

Ekki menning heldur léleg stjórnsýsla

Hval­veiðar hafa sann­ar­lega verið stund­aðar í sjónum í kringum Ísland öldum saman, en fyrst og fremst af útlend­ingum. „Íslend­ingar eru hins vegar frum­kvöðlar í hval­veiði­banni,“ sagði Margrét Tryggva­dóttir, rit­höf­undur og fyrr­ver­andi þing­maður í ræðu sinni. Á meðan útlend­ingar „sóp­uðu upp hvölum“ hafi Íslend­ingar reynt af veikum mætti að hafa stjórn á veið­unum. Á þess­ari öld hafi eitt íslenskt hval­veiði­fyr­ir­tæki, Hvalur hf., fengið að veiða hund­ruð hvala bæði í svoköll­uðu „vís­inda­skyni“ og atvinnu­skyni og reynt að koma kjöt­inu í verð, „þrátt fyrir litla sem enga eft­ir­spurn“ og að kann­anir sýni að meiri­hluti lands­manna styður ekki hval­veiðar.

Til þess að hægt sé að veiða og vinna hvali þurfi að gefa und­an­þágur frá reglu­gerðum um dýra­vel­ferð og holl­ustu­hætti við fram­leiðslu mat­væla. Almennt megi t.d. ekki verka kjöt utandyra. Í ár megi Hvalur hf. veiða 161 lang­reyði og 217 hrefnur en af því að hann veiddi ekki kvóta síð­asta árs bæt­ast við 32 lang­reyðar. Samkvæmt reglu­gerð frá 2019 má fyr­ir­tækið veiða hvali til árs­ins 2023 – þrátt fyrir að kvóta sé almennt ekki úthlutað nema eitt ár í senn.

„Er þetta íslensk menn­ing? Kannski er léleg stjórn­sýsla, sér­reglur fyrir útvalda og einka­vina­væð­ing auð­linda hefð hér á landi en ég myndi ekki kalla það menn­ingu.“

Valgerður Árnadóttir tók þátt í mótmælum gegn hvalveiðum og hélt þar einnig ræðu. Hún er formaður Samtaka grænkera á Íslandi.
Val­gerður Árna­dóttir tók þátt í mót­mælum gegn hval­veiðum og hélt þar einnig ræðu. Hún er for­maður Samtaka græn­kera á Íslandi.

Val­gerður Árna­dóttir, for­maður Samtaka græn­kera, spurði í sinni ræðu hvort hval­veiðar Íslend­inga væru eitt­hvað skárri en nauta­hlaupið í Pamplona sem margir Íslend­ingar hafa for­dæmt á sam­fé­lags­miðlum og þyki hrylli­legt athæfi. „Er dauða­stríð hvala eitt­hvað skárra? Þeir eru eltir uppi og skotnir með skutli sem springur inni í þeim. Hvalir há kvala­fullt dauða­stríð í langan tíma, allt frá 6 til 25 mín­útna dauða­stríð, og stundum lengur þegar það þarf að hlaða og skjóta þá aftur.“

Hún segir stað­reynd að ekki sé arð­bært að veiða hval. Og að fyrir því sé ekki einu sinni löng hefð í Íslands­sög­unni. „Samt sem áður hefur einn maður svo mikil ítök á Íslandi að hann hefur sann­fært fjölda fólks að það sé hluti af sjálf­stæð­is­bar­áttu okkar að drepa hvali.“

Kristján Loftsson við hræ langreyðar í hvalstöðinni í Hvalfirði nýverið. Mynd: Arne Feuerhahn
Kristján Loftsson við hræ lang­reyðar í hval­stöð­inni í Hval­firði nýverið. Mynd: Arne Feu­er­hahn

Þessi maður, Kristján Loftsson, er millj­arða­mær­ingur, benti Val­gerður á. Honum slétt sama um tap sitt af hval­veiðum. Hann kunni hvort eð er ekki aura sinna tal.

„Hval­veiðar fyrir honum snú­ast ekki um hagnað, þær snú­ast um völd. Kristján er síð­asti kval­ar­inn, síð­asti nauta­ban­inn, hans auma leið til að sýna karl­mennsku sína er með því að pynta og drepa ljúfar, mik­il­vægar og sjald­gæfar skepnur og hann mun ekki hætta því fyrr en rík­is­stjórn Íslands stöðvar hann.“

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Fiski­stofu hefur Hvalur hf. þegar veitt 37 lang­reyðar frá því að veið­arnar hófust 22. júní. Fleiri kunna að hafa verið skotnar í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið undanfarið ár