Ætti að taka ákvarðanir um sóttvarnaráðstafanir á Alþingi?

Innan flokk­anna þriggja sem mynda rík­is­stjórn á Íslandi í dag er ekki ein­hugur um það hvernig skuli glíma við kór­ónu­veiruna. Stöku þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks hafa verið gagn­rýnir á sótt­varna­að­gerðir. Kjarninn bauð þing­mönnum að tjá sína skoðun á mál­inu.

Á stjórn­mála­svið­inu hafa sótt­varnir æ oftar komið til umræðu að und­an­förnu og ljóst er að skoð­anir eru skiptar, meðal ann­ars á meðal stjórn­ar­þing­manna, meðal ann­ars um það hvert hlut­verk Alþingis eigi að vera í far­aldr­inum.

Fyrr í mán­uð­inum sagð­ist Brynjar Níelsson þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks hættur „með­virkni“ sinni með sótt­varna­ráð­stöf­unum, sem hann kall­aði stærstu skref sem hefðu til alræðis í Íslands­sög­unni.

Annar þing­maður sama flokks, Sigríður Á. Andersen, hefur sagt að hún telji að Alþingi eiga að ræða og sam­þykkja þær ráð­staf­anir sem gripið sé til áður en þær komi til fram­kvæmda. Í gær steig hún svo fram sem einn þriggja for­svars­manna hóps­ins Út úr kóf­inu, sem hefur sett upp vef­síðu og seg­ist þar ætla að veita upp­lýs­ingar og „gefa fleirum tæki­færi til þess að láta rödd sína heyr­ast.“

Meðal ann­ars seg­ist hóp­ur­inn ætla að gefa sér­fræð­ingum mögu­leika á að setja skoð­anir sínar fram undir nafn­leysi, svo þeir geti gert það „án þess að eiga það á hættu að verða fyrir aðkasti innan sinnar starfs­stéttar.“

Einnig seg­ist hóp­ur­inn ætla að „[h]afa frum­kvæði að mótun heild­stæðrar stefnu sem grund­vall­ast á stjórn­ar­skrár­vörðum rétt­indum fólks og lýð­heilsu­stefnu ásamt stað­reyndum um sjúk­dóm­inn og með­höndlun hans,“ sem verði raun­hæf, fram­kvæm­an­leg og til þess fallin að lág­marka skað­ann af kór­ónu­veiru­far­aldr­inum.

Kjarninn bauð öllum þing­mönnum á Alþingi, nema þeim sem sitja í rík­is­stjórn, að koma því á fram­færi hvert sjón­ar­mið þeirra væri til þess­ara mála. Spurn­ing­arnar sem blaða­maður lagði fyrir þing­menn voru tvær og lutu beint að þeirri gagn­rýni sem hefur verið sett fram af þessum tveimur þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks á aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar.

Annars vegar var spurt hvort þing­menn teldu að sótt­varna­ráð­staf­anir ættu að koma til umræðu og ákvörð­unar á Alþingi í stað þess að vera á for­ræði rík­is­stjórn­ar­innar. Hins vegar var spurt hvort þing­menn teldu Ísland vera að feta rétta leið í glímunni við far­ald­ur­inn, eða hvort að breyta ætti þeirri stefnu sem hér hefur verið varð­andi sótt­varnir.

Engin svör frá Pírötum, Viðreisn né Flokki fólksins

Fyr­ir­spurnin var send á sjötta tug þing­manna fyrir um viku síðan, en ein­ungis um fimmt­ungur þing­mann­anna svör­uðu. Heimtur voru því ekki stór­kost­legar.

Enginn þing­maður Við­reisnar, Pírata né Flokks fólks­ins svar­aði fyr­ir­spurn­inni og Brynjar Níelsson var eini þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks sem veitti blaða­manni svar, en það var reyndar bara áminn­ing um að afstaða hans til spurn­ing­anna lægi fyrir í greinum og pistlum sem hann hefði skrifað og birt opin­ber­lega.

Efnisleg svör bár­ust frá full­trúum hinna fjög­urra flokk­anna á Alþingi; Mið­flokki, Sam­fylk­ingu, Fram­sókn­ar­flokki og VG.

Þingmenn VG: Framkvæmdavaldið með skýrar heimildir lögum samkvæmt

Svör þeirra þing­manna Vinstri grænna sem bár­ust til blaða­manns voru þau sem gefa til kynna skýr­ustu and­stöð­una við ofan­greind sjón­ar­mið þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks.

„Sótt­varnir lúta lögum sem eru rædd og sam­þykkt á Alþingi. Þar er lög­unum breytt og þá verða umræður og ákvarð­anir teknar. Nú eru í gildi lög sem verið er að end­ur­skoða með þeim til­gangi að bæta lögin og skýra sum ákvæðin. Ein­stakar aðgerðir eru ekki ræddar á Alþingi með sam­þykkt, breyt­ingar á þeim eða höfnun í huga,“ skrifar Ari Trausti Guð­munds­son þing­maður flokks­ins í svari sínu til Kjarnans.

Ari Trausti segir aðgerð­irnar koma til umræðu á þingi þegar for­sæt­is­ráð­herra eða aðrir ráð­herrar eru til form­legra svara í fyr­ir­spurn­ar­tíma eða vegna skýrslu­gjafar til þings­ins. Hann segir að lögum sam­kvæmt sé það fram­kvæmda­valdið og stofn­anir hins opin­bera sem hafi ákvarð­anir og aðgerðir með höndum í síbreyti­legu umhverfi og vegna snöggra breyt­inga á áhættu vegna far­ald­urs­ins.

„Við eigum ekki að sitja í þing­sal og ræða um eða þrátta um, til afgreiðslu, hvort sam­komu­bann varði 20 eða 100 manna hóp eða hvort ein­föld eða tvö­föld skimun skuli við­höfð á landa­mær­unum,“ skrifar Ari Trausti, sem telur jafn­framt að í öllum helstu dráttum verið að fara rétt að hér á landi í bar­átt­unni gegn veirunni, „sér­lega hvað varðar sveigj­an­legar og tíma­bundnar en ört breyti­legar aðferðir vástjórn­unar.“

„Vissu­lega má sumt betur fara þegar reynsla hefur feng­ist og ég tel að vinna sem nú fer fram við end­ur­skoðun sótt­varn­ar­laga sé þörf. Fyr­ir­sjá­an­leiki er tak­mark­aður í alvar­legum heims­far­aldri. Almennt stöndum við okkur, lands­menn, þing og stjórn­völd, vel í glímunni við COVID-19,“ skrifar Ari Trausti.

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir þing­flokks­for­maður VG tekur í svip­aðan streng og Ari Trausti og seg­ist ekki endi­lega telja að hver og ein ákvörðun eigi að koma til umræðu og ákvörð­unar í þing­inu.

„Ég tel að það myndi lengja og flækja ferlið þegar oft er lyk­il­at­riði að bregð­ast fljótt við. Þeir ferlar sem ráð­herra hefur farið eftir vegna COVID-19 byggj­ast á gild­andi sótt­varn­ar­lögum og víð­tækum heim­ildum ráð­herra. Eins og við þekkjum hafa ítrekað komið upp aðstæður þar sem bregð­ast hefur þurft við með skjótum hætti til að reyna að koma í veg fyrir fjölgun smita eins og oft hefur verið rakið á fundum þrí­eyk­is­ins. Þetta er heim­ild sem við höfum falið fram­kvæmda­vald­inu með lögum,“ skrifar Bjarkey til blaða­manns.

Við eigum ekki að sitja í þing­sal og ræða um eða þrátta um, til afgreiðslu, hvort sam­komu­bann varði 20 eða 100 manna hóp eða hvort ein­föld eða tvö­föld skimun skuli við­höfð á landa­mær­unum

Hún bætir því að það hafi farið fram fjöl­margar umræður um mál­efni sem tengj­ast COVID-19 á Alþingi. Ráð­herrar hafi gefið skýrslur og setið fyrir svörum í fyr­ir­spurn­ar­tímum í hverri viku þar sem Alþingi hafi haft tæki­færi til að hafa eft­ir­lit og aðhald gagn­vart ráð­herrum. Auk þess standi end­ur­skoðun sótt­varna­laga yfir og þegar frum­varp um þær breyt­ingar komi fram geti Alþingi rýnt lögin og athugað hvort það þurfi að breyta þessum verk­ferlum.

Bjarkey telur að við séum að feta rétta leið í glímunni við far­ald­ur­inn. „Það sýnir sig vel þessa dag­ana þegar far­ald­ur­inn er á hraðri nið­ur­leið í sam­fé­lag­inu í kjöl­far hertra tak­mark­ana. Þær aðgerðir sem gripið hefur verið til hafa ávallt mið­ast að því að tak­marka skað­ann af veirunni. Það hefur hingað til verið talið best að grípa til hertra ráð­staf­ana til styttri tíma svo ekki þurfi að tak­marka margs konar starf­semi til lengri tíma. Ákvarð­an­irnar hafa verið byggðar á bestu vís­inda­legu þekk­ingu sem við höfum og ég tel ekki að aðkoma Alþingis að þeim á vinnslu­stigi sé rétt leið,“ skrifar Bjarkey.

Einn þing­maður flokks­ins til við­bótar svar­aði fyr­ir­spurn Kjarnans, en sá sagði að það væri „frá­leitt og ekki í sam­ræmi við eðli­lega verka­skipt­ingu lög­gjaf­ar­valds og fram­kvæmda­valds“ að fram­kvæmdin sem slík og ein­stakar ákvarð­anir rík­is­stjórnar, ráð­herra og sótt­varn­ar­læknis væru teknar á Alþingi.

Þing­mað­ur­inn, sem ekki vildi láta nafns síns getið í þess­ari umfjöllun, sagði Alþingi hafa veitt rík­is­stjórn umboð til að fara með fram­kvæmda­valdið og minnti á að á ráð­herrum hvíldi líka fram­kvæmda­skylda, sem þýddi að ráð­herrar gætu sætt ábyrgð sam­kvæmt lögum vegna aðgerða­leysis eða van­rækslu.

Einnig, segir þing­mað­ur­inn, yrði aðhalds- og eft­ir­lits­hlut­verk Alþingis með fram­kvæmda­vald­inu mark­laust ef Alþingi bland­aði sér inn í athafnir stjórn­sýslu og fram­kvæmda­valds, því þá væri það farið að hafa eft­ir­lit með sjálfu sér. Varðandi það hvort Ísland væri á réttri braut sagð­ist þing­mað­ur­inn telja að svo væri.

„Hund­ruðum manns­lífa hefur án efa verið bjargað með því að taka þetta alvar­lega og setja líf og heilsu lands­manna í for­gang, borið saman við að gera lítið eða ekk­ert og við höfum ekki þurft að svara hroða­legum sið­ferði­legum spurn­ingum eins og þeim hverjum ætti að veita þjón­ustu og hverjum ekki í sprungnu heil­brigð­is­kerfi,“ skrifar þing­mað­ur­inn til blaða­manns.

Rétt væri að upplýsa formenn þingflokka fyrirfram um aðgerðir og forsendur

Ólafur Ísleifs­son var eini mið­flokks­mað­ur­inn sem svar­aði fyr­ir­spurn­inni. Varðandi hlut­verk Alþingis í sótt­varna­ráð­stöf­unum telur hann að Alþingi hafi hlut­verki að gegna og segir að rétt væri að upp­lýsa „for­menn þing­flokka á hverjum tíma um fyr­ir­hug­aðar aðgerðir í sótt­varn­ar­skyni og for­sendur þeirra.“

Ólafur telur ekki þörf á að breyta um stefnu í sótt­varna­málum: „Þriðja bylgjan sýn­ist á nið­ur­leið og virð­ist mega rekja til aðgerða sótt­varn­ar­yf­ir­valda. Ég treysti þeim sem gegnt hafa for­ystu á þessu sviði,“ skrifar Ólafur til Kjarnans.

Alþingi taki allar aðgerðir til umfjöllunar, þó ekki nema væri eftir á

Guðjón S. Brjáns­son var eini þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sem svar­aði fyr­ir­spurn Kjarnans. Hann sagði að eðli máls­ins sam­kvæmt þyrftu sótt­varna­yf­ir­völd að hafa hraðar hendur varð­andi ýmsar þær aðgerðir sem grípa þarf til á meðan á bráða­á­standi stendur.

„Það hafa verið rökin og skýr­ing­arnar á því að Alþingi eigi erfitt með að vera sá aðili sem tekur á öllum málum, eins svifa­seint og það getur verið í sínum störfum. Mín skoðun er hins vegar sú að mik­il­vægt sé að Alþingi taki allar aðgerðir til umfjöll­unar, þótt svo þær séu þegar komnar til fram­kvæmda og stað­festi,“ skrifar Guðjón til blaða­manns og bætir því við að marg­vís­legar aðgerðir sótt­varna­læknis hafi verið boð­aðar með all­nokkrum fyr­ir­vara.

„Fram­kvæmda­vald­inu hefur í þeim til­vikum gef­ist gott tóm til að vega þær og meta. Með sama hætti getur Alþingi hæg­lega gert það ef tíma­spönnin er 2–4 dagar. Það er brýnt að mínu áliti að skjóta tryggum laga­stoðum undir ýmsar aðgerðir sem eru afdrifa­ríkar í sam­fé­lag­inu með aðkomu lög­gjafans. Þetta verður enn til­finn­an­legra þegar tíma­bilið leng­ist, álag á ein­stak­linga, hópa og inn­viði eykst og óvissan um marg­vís­leg atriði eru umtals­verð,“ skrifar Guðjón sömu­leiðis.

Hann telur þó að almennt hafi verið haldið vel á spil­unum af hálfu sótt­varn­ar­yf­ir­valda og að „úr því sem komið er sé ekki ástæða til að venda okkar kvæði í kross.“

Þrír þingmenn Framsóknar sammála um að verið sé að feta rétta leið

„Ég tel okkur vera á réttri leið og eigum að halda áfram á sömu braut við ákvarð­ana­töku,“ skrifar Líneik Anna Sæv­ars­dóttir þing­maður Fram­sóknar í svari sínu við fyr­ir­spurn Kjarnans og Silja Dögg Gunn­ars­dóttir sam­flokks­kona hennar tekur í sama streng. „Óbreytt,“ segir ein­fald­lega í svari hennar til blaða­manns.

Halla Signý Krist­jáns­dóttir segir sömu­leiðis að sótt­varna­ráð­staf­anir séu í góðum höndum höndum hjá sótt­varna­lækni, sem hafi sótt­varna­lögin til fyr­ir­myndar við sínar ákvarð­anir og starfi innan þeirra. Hún segir þó ekk­ert að því þær séu „yfir­farnar og rýndar til gagns,“ en það eigi ekki að ger­ast inni á Alþingi.

„Alþingi er lög­gjaf­ar­vald og þar ættu sótt­varna­lög að sjálf­sögðu að vera til umræðu og það er eðli­legt að eftir þessa reynslu að þau verði tekin upp og end­ur­skoðuð,“ segir Halla Signý.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár