Ísland eigi ekki að flytja spillingu til annarra landa

Á Íslandi hefur aldrei reynt á laga­á­kvæðið sem gerir mútu­greiðslur í öðrum löndum refsi­verðar. For­svars­maður stofn­unar í Svíþjóð sem berst gegn spill­ingu segir það ábyrgð­ar­hluta að flytja ekki út spill­ingu.

Natali Phálen
Natali Phálen For­stöðu­maður ston­fun­ar­innar Institu­tet mot mutor í Svíþjóð.

Á Íslandi hefur aldrei reynt á þau ákvæði í almennum hegn­ing­ar­lögum sem snúa að mútu­greiðslum íslenskra aðila í öðrum löndum. Laga­á­kvæðið um mútu­greiðslur í öðrum löndum kom inn í íslensk hegn­ing­ar­lög fyrir sex árum síðan, árið 2013.Mögulegt er að reyna muni á þessi þessi ákvæði nú þegar fyrir liggur að Samherji stund­aði mútu­greiðslur í Namibíu til að kom­ast yfir hesta­makríl­skvóta líkt og fram eins og fram kemur í umfjöll­unum  sem unnar eru í sam­starfi Stund­ar­innar, Wikileaks, Kveiks og Al Jazeera. 

 Afar sjald­gæft er að mögu­leg til­felli um mútur, hvað þá mútur í öðrum löndum, komi upp í íslensku sam­fé­lagi. Eitt þekktasta til­fellið um dóm um mútu­brot er þegar Árni Johnsen, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var dæmdur fyrir mútu­þægni árið 2002. Einn maður var dæmdur fyrir að bera á hann 650 þús­und krónur fyrir að sam­þykkja við­halds­reikn­ing fyrir Þjóð­leik­húsið upp á 3 millj­ónir króna. Árni var þarna for­maður bygg­inga­nefndar leik­húss­ins. 

Slíkt til­felli hefur hins vegar komið upp nú, í rekstri Samherja í Namibíu í suð­ur­hluta Afríku, og verður fróð­legt að sjá hvort og þá hvað íslenskar eft­ir­lits- og rann­sókn­ar­stofn­anir munu aðhaf­ast í mál­inu. Heim­ildir Stund­ar­innar herma að ákæru­valdið á Íslandi hafi fengið upp­lýs­ingar um Sam­herj­a­málið í Namibíu á síð­ustu mán­uðum. Ef eitt­hvað verður úr mál­inu í með­förum hér­aðs­sak­sókn­ara, og ef ákært verður í því, verður það í fyrsta skipti í íslenskri rétt­ar­sögu sem slíkt mál um mútur í öðrum löndum fer fyrir dóm hér á landi.

Þrjú þekkt mútumál

Í einu af nágranna­löndum Íslands, Svíþjóð, hefur hins vegar reynt á lög­gjöf um mútu­greiðslur í öðrum löndum, bæði á fyrri lög­gjöf sem var í gildi til árs­ins 2012 og eins á þá lög­gjöf sem tók gildi 2012 og lík­ist þeirri íslensku. Þrjú þekkt mál hafa verið rædd mikið í fjöl­miðlum og verið tekin fyrir í sænskum dóm­stólum þar sem þessi spurn­ing um mútur í öðrum löndum liggur undir. Þetta eru Bombar­dier-málið, Sweco-málið og Telia-málið. 

Bombar­dier-málið snýst um meintar mörg hund­ruð millj­óna króna mútu­greiðslur til rík­is­starfs­manna í Aserbaídsjan út af fram­kvæmdum við járn­braut í land­inu. Rússi á fer­tugs­aldri sem starf­aði hjá fyr­ir­tæk­inu Bombar­dier í Stokk­hólmi, sem vann að járn­braut­ar­verk­efn­inu, var ákærður fyrir mútu­brot í mál­inu en var sýkn­aður í októ­ber 2017.  Rík­is­starfs­mað­ur­inn á að hafa veitt tveimur starfs­mönnum Sweco upp­lýs­ingar um sam­keppn­is­að­ila þeirra í útboði um járn­braut­ar­verk­efnið gegn greiðslu. Málinu var hins vegar áfrýjað og bíður þess að vera tekið fyrir aftur í dóm­stól í Svíþjóð. 

Sweco-málið snýst um það að tveir starfs­menn tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Sweco voru dæmdir í 9 mán­aða fang­elsi árið 2015 fyrir að múta emb­ætt­is­manni í Úkraínu með 70 þús­und sænskum krónum, ríf­lega 800 þús­und íslenskum krónum, árið 2012. Í stað­inn fékk Sweco aðgang að upp­lýs­ingum um sam­keppn­is­að­ila Sweco um verk­efni á vegum rík­is­ins í Úkraínu. Þegar dóm­ur­inn féll í mál­inu sagði sak­sókn­ar­inn að um væri að ræða „sögu­legan áfanga“ í sænskri rétt­ar­sögu þar sem aldrei áður hafði fallið dómur þar sem dæmt var fyrir mútu­brot í öðru landi. Athygli vekur að upp­hæð­irnar í mál­inu voru ekki háar, innan við milljón íslenskar krónur, og eru upp­hæð­irnar í Sam­herj­a­mál­inu miklu, miklu hærri eða á annan millj­arð króna.

Í Telia-mál­inu voru þrír starfs­menn sænska fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins Telia ákærðir fyrir mútur vegna gruns um að þeir hafi greitt 3 millj­arða sænskra króna í mútur til Gulnöru Karimovu, dóttur ein­ræð­is­herr­ans í Úsbekistan, Islams Karimovs, á árunum 2007 til 2010 svo Telia gæti farið inn á far­síma­mark­að­inn í land­inu með stuðn­ingi þar­lendra stjórn­valda. Menn­irnir þrír voru sýkn­aðir af ákærunni fyrr á árinu en mál­inu hefur nú verið áfrýjað til milli­dóms­stigs í Svíþjóð.

 „Lönd þar sem tiltölulega lítið er um spillingu, til að mynda Ísland og Svíþjóð, bera þunga ábyrgð að tryggja að þau flytji ekki út spillingu.“

Skyldan að flytja ekki út spillingu 

Stundin leit­aði til Natali Phálen, sem er fram­kvæmda­stjóri stofn­un­ar­innar Institu­tet mot mutor í Svíþjóð, eftir mati hennar á sænskri lög­gjöf um mútur sem íslensku lögin spegla að stóru leyti. Stofn­un­inni er stýrt af við­skipta­ráði Stokk­hólms og fleiri aðilum í við­skipta­líf­inu sem og af sveit­ar­fé­lögum. Fjöl­miðlar í Svíþjóð leita oft til Natali og stofn­un­ar­innar til að fá svör við og mat á spurn­ingum sem snerta spill­ingu og mútur.

Blaða­maður: Hvaða lög og reglur gilda í Svíþjóð um greiðslu á mútum í öðru landi? Til dæmis ef sænskt fyr­ir­tæki greiðir mútur til ráð­herra í öðru ríki til að fá fast­eigna­verk­efni, eins og að byggja íþrótta­hús eða eitt­hvað slíkt? Getur for­stjór­inn, eða sá sem hefur pró­kúru fyrir fyr­ir­tækið, verið ákærður í Svíþjóð?

Phálen: „Í Svíþjóð gilda sænsku hegn­ing­ar­lögin en sam­kvæmt þeim er það glæpur að veita eða þiggja mútur, stunda við­skipti með áhrif eða að fjár­magna mútu­brot. Þær aðstæður sem þú ert að lýsa heyra undir sænsk lög um mútu­brot (að því gefnu að það sé einnig brot að greiða mútur í við­kom­andi landi, það er sem sagt gerð krafa um tvö­falda refs­ingu). Sá sem ber ábyrgð­ina á end­anum getur sætt ákæru í Svíþjóð.“

Blaða­maður:  Eru ein­hver dæmi um slík mútu­brot á milli landa í Svíþjóð? 

Phálen: „Já, það eru til nokkrir dómar sem snú­ast um mútu­brot erlendis. Telia er þekktasta dæmið. Annað dæmi eru við­skipti Bambar­dier í Azerbaídsjan og svo voru starfs­menn Sweco dæmdir fyrir mútur út af við­skiptum í Úkraínu. 

Blaða­maður: Hvaða munur er gerður á mútum í Svíþjóð og mútum í öðrum löndum í sænskum hegn­ing­ar­lögum? 

Phálen: „Í lög­unum er eng­inn grein­ar­munur gerður. “

Blaða­maður: Hvað finnst þér almennt um slík brot, mútu­brot í öðrum löndum? Af hverju eru lönd eins og Svíþjóð og Ísland búin að festa það í lög að slík brot séu mögu­lega refsi­verð? Er ekki nóg að vera með lög­gjöf um mútu­brot heima fyrir?  

„Spilling er ein stærsta hindr­unin fyrir fram­þróun landa víða um heim og spill­ingin er alvar­leg á mörgum stöðum“

Phálen: „Lönd þar sem til­tölu­lega lítið er um spill­ingu, til að mynda Ísland og Svíþjóð, bera þunga ábyrgð að tryggja að þau flytji ekki út spill­ingu. Spilling er ein stærsta hindr­unin fyrir fram­þróun landa víða um heim og spill­ingin er alvar­leg á mörgum stöðum. Spilling er útbreidd alþjóð­lega og það hefur gengið erf­ið­lega að ráða nið­ur­lögum hennar. Það er einnig í alþjóða­við­skiptum sem hættan á spill­ingu er sem mest fyrir til dæmis sænsk fyr­ir­tæki. Af þessum sökum er mik­il­vægt að lög­gjöfin segi skýrt og klárt að mútur séu aldei í lagi, hvorki heima fyrir né alþjóð­lega. Svíþjóð og Ísland eru einnig skyldug til að berj­ast gegn spill­ingu í öðrum löndum þar sem bæði löndin eru aðilar að sátt­mála OECD sem kveður á að um þau eigi að berj­ast gegn þessu meini.“ 

Blaða­maður:  Af hverju gekk ekki að sýna fram á sekt þre­menn­ing­anna í Telia-mál­inu? Þú sagðir í við­tali að lögin væru gömul og léleg. Hvað meintir þú með því? 

Phálen: „Til grund­vallar í Telia-mál­inu voru eldri lög um mútur (núver­andi lög­gjöf tók gildi árið 2012). Samkvæmt eldri lög­unum er það for­senda fyrir mútu­broti að sá sem þiggur mút­urnar sé starfs­maður eða í form­legri stöðu til að hafa áhrif á mál. Í Telia-mál­inu komst dóm­stóll­inn að þeirri nið­ur­stöðu að dóttir for­set­ans hafi ekki verið ráðin í til­tekna stöðu né komið með form­legum hætti að ákvarð­ana­tök­unni þar sem hún hafi ekki verið í neinu starfi í fjar­skipta­þjón­ustu. Þess vegna var ekki hægt að múta henni sam­kvæmt eldri lög­unum.

Í lög­unum fyrir árið 2012 vant­aði eitt ákvæði sem nú er búið að lög­festa: við­skipti með áhrif, áhrifa­kaup. Samkvæmt því ákvæði er það lög­brot að greiða mútur til ein­stak­lings sem getur haft áhrif á ákvarð­ana­töku ein­hvers sem stýrir stofnun eða opin­berum aðila. Ég hef leitt að því rök að í Telia-mál­inu væri hægt að skil­greina brotið með þessum hætti en það er erfitt að full­yrða um það.

Því ber að bæta við að búið er að áfrýja Telia-mál­inu og telur sak­sókn­ar­inn að ekki sé hægt að túlka lögin með eins þröngum hætti og dóm­stóll­inn gerði. Hvernig það mál fer á eftir að koma í ljós. Að mínu mati er það stórt vanda­mál að laga­setn­ing um mútur sé skil­greind svo form­lega að lögin nái ekki utan um veru­leik­ann í mjög spilltum löndum þar sem mút­urnar eru einmitt oft greiddar í gegnum mann­eskjur sem ekki gegna form­legum störfum í land­inu en sem kannski eru einmitt þeir sem fara með völdin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

19 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár