Árið 2019: Þegar Seðlabankinn sagði það ekki sitt að útdeila réttlæti

Seðla­banki Íslands birti skýrslu um umdeilda fjár­fest­inga­leið sína í sumar. Þar við­ur­kenndi hann margar nei­kvæðar afleið­ingar hennar en sagði til­gang­inn hafa helgað með­alið. Þingmenn úr fjórum flokkum vilja rann­sókn­ar­nefnd um leið­ina.

Fjár­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­leið Seðla­­­­­­banka Íslands, sem einnig var nefnd 50/50 leið­in, var gríð­­­­­­ar­­­­­­lega umdeild aðferð sem Seðla­­­­­­bank­inn beitti til minnka hina svoköll­uðu snjó­­­­­­hengju, krón­u­­­­­­eignir erlendra aðila sem fastar voru innan fjár­­­­­­­­­­­magns­hafta og gerðu stjórn­­­­­­völdum erfitt fyrir að vinna að frek­­­­­­ari losun þeirra hafta. Sam­­­­­­kvæmt henni gátu þeir sem sam­­­­­­þykktu að koma með gjald­eyri til Íslands skipt þeim í íslenskar krónur á hag­­­­­­stæð­­­­­­ara gengi en ef þeir myndu gera það í næsta banka. 

Þeir sem tóku á sig „tap­ið“ í þessum við­­­­­­skiptum voru aðilar sem áttu krónur fastar innan hafta en vildu kom­­­­­­ast út úr íslenska hag­­­­­­kerf­inu með þær. Þeir sem „græddu“ voru aðilar sem áttu erlendan gjald­eyri en voru til­­­­­­­­­­­búnir að koma til Íslands og fjár­­­­­­­­­­­festa fyrir hann. Seðla­­­­­­bank­inn var síðan í hlut­verki milli­­­­­­­­­­­göng­u­að­ila sem gerði við­­­­­­skiptin mög­u­­­­­­leg. Líkt og verslun sem leiddi heild­­­­­­sala og neyt­endur sam­­­­­­an.

Alls fóru fram 21 útboð eftir fjár­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­leið­inni frá því í febr­­­­­­úar 2012 til febr­­­­­­úar 2015, þegar síð­­­­­­asta útboðið fór fram. Alls komu um 1.100 millj­­­­­­ónir evra til lands­ins á grund­velli útboða fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­leið­­­­­­ar­inn­­­­­­ar, sem sam­svarar um 206 millj­­­­­­örðum króna.

794 aðilar

Ef þeir sem komu með þennan gjald­eyri til Íslands hefðu skipt þeim á opin­beru gengi Seðla­­­­­­bank­ans, líkt og venju­­­­­­legt fólk þarf að gera, hefðu þeir fengið um 157 millj­­­­­­arða króna fyrir hann. Virð­is­aukn­ingin sem fjár­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­leiðin færði eig­endur gjald­eyr­is­ins í íslenskum krónum var því 48,7 millj­­­­­­arðar króna. Skil­yrt var að binda þyrfti féð sem fært var inn í landið með þessu hætti í fast­­­­­­eign­um, verð­bréf­um, fyr­ir­tækjum eða öðrum fjár­­­­­­­­­­­fest­inga­­­­­­kost­­­­­­um. Því má segja að þeir sem hafi nýtt sér fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­leið­ina hafi fengið um 20 pró­­­­­­sent afslátt af þeim eignum sem þeir keyptu.

794 inn­­­­­­­­­­­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­­­­­­kerfi í gegnum útboð fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­leiðar Seðla­­­­­­banka Íslands. Pen­ingar þeirra námu 35 pró­­­­­­sent þeirrar fjár­­­­­­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­­­­­­ari leið, en hún tryggði um 20 pró­­­­­­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi.

Alls fengu þessir aðilar 72 millj­­­­­­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­­­­­­kvæmt skil­­­­­­málum útboða fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­leið­­­­­­ar­inn­­­­­­ar. Afslátt­­­­­­ur­inn, eða virð­is­aukn­ing­in, sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjald­eyr­inum á skráðu gengi Seðla­­­­­­bank­ans er um 17 millj­­­­­­arðar króna.

Dæmt fólk á meðal notenda

Þótt stjórn­völd hafi ekki viljað upp­lýsa um hverjir það voru sem nýttu sér leið­ina hingað til þá hafa fjöl­miðlar getað upp­lýst um félög í eigu aðila sem það gerð­u. Á meðal þeirra sem hafa nýtt sér þessa leið eru félög í eigu bræðr­anna Lýðs og Ágústs Guð­­munds­­sona, Hreið­­ars Más Sig­­urðs­­son­­ar, Jóns Ólafs­­son­­ar, Jóns Von Tetzchner, knatt­­spyrn­u­­manns­ins Gylfa Þórs Sig­­urðs­­son­­ar, Ólafs Ólafs­­son­­ar, Hjör­­leifs Jak­obs­­son­­ar, Ármanns Þor­­valds­­son­­ar, Kjart­ans Gunn­­ar­s­­son­­ar, Skúla Mogensen, rekstr­ar­fé­lags Iceland Foods, Alvogen, Karls og Stein­gríms Wern­er­s­­sona og danskra eig­enda Húsa­smiðj­unn­­ar.

Á meðal ann­arra sem nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina var til að mynda félag í eigu Samherja, sem hefur verið mikið í sviðs­ljós­inu und­an­farnar vikur. Um er að ræða félagið Esju Seafood á Kýpur, sem tók við hagn­aði af starf­semi Samherja í Namibíu. Esja Seafood lán­aði öðru félagið Samherja, Kaldbaki, um tvo millj­arða króna árið 2012 í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Í Stund­inni á þriðju­dag var greint frá því að Kald­bakur hafi meðal ann­ars lánað enn öðru félagi Samherja, Katta­nefi ehf., 300 millj­ónir króna til að fjár­festa í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins. Það félag var svo selt til Ramses II ehf., félags í eigu Eyþórs Arnalds, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, árið 2017, á 325 millj­ónir króna. Samherji lán­aði Ramses II fyrir kaup­unum.

Birti niðurstöðu skoðunar á sjálfum sér

Seðla­banki Íslands birti skýrslu um fjár­fest­ing­ar­leið­ina í sumar. Þar sagði að Seðla­bank­inn teldi að fjár­fest­ing­ar­leiðin og rík­is­bréfa­leiðin sem hann stóð fyrir á árunum 2011 til 2015 til að vinna á þeim aflandskrónu­vand­anum og stuðla að afnámi hafta, hafi þjónað til­gangi sínum.

Gjald­eyr­is­út­boðin sem leið­irnar fólu í sér hefðu beinst að vanda sem ekki hafi verið auð­veld­lega leystur með öðrum hætti nema á mjög löngum tíma. Aðgerð­unum hafi vissu­lega fylgt „ýmis nei­kvæð hlið­ar­á­hrif, eins og algengt er um aðgerðir af þessu tagi en þau jákvæðu áhrif sem að var stefnt með aðgerð­unum vega þó þyngra á vog­ar­skál­unum.“

Þar sagði enn fremur að rétt sé „að halda því til haga að það voru ekki ein­göngu umdeildir auð­menn sem voru í þeirri stöðu að eiga óskila­skyldan gjald­eyri. Tölu­verður fjöldi Íslend­inga sem áttu fast­eignir erlendis vegna búsetu seldu fast­eignir í tengslum við búferla­flutn­inga til Íslands og tóku þátt í fjár­fest­ing­ar­leið­inni. “

Viðurkenndi neikvæð áhrif

Í skýrslu Seðla­bank­ans var þó við­ur­kennt að flestar efna­hags­legar ráð­staf­anir sem gripið sé til hafi ein­hver óæski­leg hlið­ar­á­hrif. Líklegt væri að það hafi einnig átt við um fjár­fest­ing­ar­leið­ina.

Í skýrsl­unni er síðan talið upp að í útboðum leið­ar­innar hafi falist hvati til þess að flýta ákvörð­unum um fjár­fest­ingu í því skyni að nýta rétt til að kaupa krónur með afslætti. „Í ein­hverjum til­vikum kann það að hafa leitt til þess ákvörðun um fjár­fest­ingu varð ekki eins vönduð og ella hefði orðið og það skapað rekstr­ar­vanda síðar.“

Þá sagði að fjár­fest­ing­ar­leiðin hefði sett aðila sem áttu óskila­skyldan erlendan gjald­eyri í betri stöðu til að kaupa kaupa inn­lendar eignir á lágu verði og gengi. „Áhrif þess á eigna­skipt­ingu kunna að vera nei­kvæð. Í kjöl­far efna­hag­skreppu geta aðilar sem eru í sterkri lausa­fjár- og eig­in­fjár­stöðu jafnan eign­ast eignir á hag­stæðu verði, jafn­vel þótt slíkri fjár­fest­ingu sé ekki beint í far­veg sem tak­markar selj­an­leika fjár­fest­ingar, eins og gert var í til­felli rík­is­bréfa- og fjár­fest­ing­ar­leiðar. Þótt deila megi um sann­girni þess var fátt sem Seðla­bank­inn gat gert til þess að stuðla að sann­gjarn­ari útkomu innan þess lag­ara­mma sem hann starfar undir og án þess að ganga gegn því mark­miði aðgerð­anna að stuðla að stöð­ug­leika. Í stöð­ug­leik­anum fel­ast afar brýnir almanna­hags­munir sem vega verður á móti óæski­legum tekju­skipt­ing­ar­á­hrifum, enda kemur óstöð­ug­leik­inn oft niður á þeim sem síst skyldi og hafa tak­mörkuð úrræði eða þekk­ingu til að verja hags­muni sína.“

Líklega kom stærri hluti úr skattaskjólum

Seðla­bank­inn við­ur­kenndi einnig að gagn­rýni á heim­ild félaga með aðsetur á lág­skatt­ar­svæðum til þátt­töku í fjár­fest­ing­ar­leið­inni hafi verið eðli­leg í ljósi sög­unnar.

Í skýrsl­unni sagði að þáttur slíkra aflands­fé­laga hafi ein­ungis verið 2,4 pró­sent af heild­ar­fjár­fest­ingu í gegnum fjár­fest­ing­ar­leið­ina og að ítr­ustu kröfur voru gerðar til þess að pen­inga­þvætt­is­at­hug­unum.

Seðla­bank­inn taldi þó vand­séð hvernig hann hefði átt að koma í veg fyrir fjár­fest­ingu aflands­fé­lag­anna. „Í fyrsta lagi hefði þurft að vera heim­ild til þess í lögum sbr. það sem áður er rakið varð­andi lög­bundin vald­mörk stjórn­valda. Í öðru lagi er ólík­legt að það hefði þjónað nokkrum til­gangi að hafa slíka heim­ild í lögum. Mögu­leik­inn á slíku var raunar ræddur í und­ir­bún­ings­ferl­inu, en nið­ur­staðan var að slíkt ákvæði væri til­gangs­laust. Hefði félögum frá slíkum svæðum verið meinað að taka þátt í útboð­unum hefði þeim verið í lófa lagið að flytja fjár­muni sína til OECD-ríkis fyrir útboðið og taka þannig þátt. Við það hefði slóð fjár­mun­anna mögu­lega rofnað og skatt­rann­sókn­ar­stjóri ekki fengið upp­lýs­ingar frá Seðla­bank­anum um til­vist þess­ara aflands­fé­laga þó vissu­lega hefðu upp­lýs­ingar um end­an­lega eig­endur fjár­muna legið fyrir í báðum til­vikum. Þetta kann að skýra þá stað­reynd að til­tölu­lega lágt hlut­fall fjár­fest­ingar kom frá skatta­skjólum. Flestir þeirra sem höfðu eitt­hvað að fela í skatta­skjólum hafa senni­lega ekki viljað sýna á spilin.“

Vilja rannsóknarnefnd

Um miðjan nóv­em­ber lögðu allir þing­menn Pírata, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar sam­eig­in­lega fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að skipuð yrði þriggja manna rann­sókn­ar­nefnd af Alþingi til að rann­saka hina svoköll­uðu fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands.

Í til­lög­unni var farið fram á að nefndin gerði grein fyrir því hvaðan fjár­magnið sem flutt var til lands­ins með fjár­fest­ing­ar­leið­inni kom, hvaða ein­stak­lingar eða félög voru skráð fyrir fjár­magn­inu sem flutt var til lands­ins, hvernig fénu sem flutt var inn til lands­ins var varið og hver áhrif þess voru á íslenskt efna­hags­líf.

Þar vr einnig kallað eftir að upp­lýs­ingar verði dregnar fram um hvort rík­is­sjóður hafi orðið af skatt­tekjum vegna leið­ar­innar og þá hversu mikið það tap var, hvort að sam­þykkt til­boð í útboðum fjár­fest­ing­ar­leið­ar­innar kunni í ein­hverjum til­vikum að hafa brotið gegn skil­málum hennar og hvort fjár­fest­ing­ar­leiðin kunni að hafa verið notuð til að koma óskráðum og óskatt­lögðum eignum Íslend­inga á aflands­svæðum aftur til lands­ins, til að stunda pen­inga­þvætti eða mis­notuð með öðrum hætti.

Nefndin, verði til­lagan sam­þykkt, á að skila nið­ur­stöðum sínum í skýrslu­formi svo fljótt sem verða má og eigi síðar en 1. októ­ber 2020. Fyrsti flutn­ings­maður þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar var Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata. Alls eru 17 þing­menn skrif­aðir fyrir henni.

Tillagan komst ekki á dag­skrá fyrir þing­lok og bíður því enn efn­is­legrar með­ferðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2019

Mest lesið undanfarið ár