Heil vika án nýrra smita

Nýgreind smit síð­asta sól­ar­hring­inn: Núll. Greind smit síð­ustu sjö sól­ar­hringa: Núll. Í dag eru tíma­mót í bar­áttu Íslend­inga gegn COVID-19. Í bar­átt­unni gegn litla gadda­bolt­anum, veirunni sem virð­ist ekki hafa tek­ist að finna lík­ama að sýkja í viku.

Íslenskur karl­maður á fimm­tugs­aldri hefur verið færður í ein­angrun á Land­spít­ala eftir að sýni úr honum reynd­ist jákvætt fyrir nýrri kór­ónu­veiru. [...] Í ljósi þessa mun rík­is­lög­reglu­stjóri í sam­ráði við sótt­varna­lækni virkja hættu­stig almanna­varna.“

Þannig hljóð­aði til­kynn­ing frá emb­ætti land­læknis sem gefin var út þann 28. febr­úar. Síðan eru liðnir 99 dagar. Og í dag er í fyrsta sinn síðan þá liðin heil vika, sjö dagar, án þess að nokkuð nýtt smit af sjúk­dómnum sem fékk nafnið COVID-19 hefur greinst á Íslandi.

Þetta eru því tíma­mót. Tímamót sem eru tákn um þann árangur sem náðst hefur í aðgerðum heil­brigð­is­yf­ir­valda og almanna­varna, með þrí­eykið Ölmu Möller land­lækni, Þórólf Guðnason sótt­varna­lækni og Víði Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjón í broddi fylk­ingar.

Karl­mað­ur­inn sem fyrst greind­ist með veiruna var að koma frá Norður-Ítalíu. Tugir smit­aðra til við­bótar áttu eftir að koma þaðan sem og frá Aust­ur­ríki næstu dag­ana. Þetta voru skil­greind áhættu­svæði og fólkið þurfti að vera í sótt­kví heima hjá sér í tvær vikur eftir heim­komu.

Þar með var orðið „sótt­kví“ á allra vörum – orð sem hafði ekki verið okkur Íslend­ingum ofar­lega í huga fram að því. Nú hafa yfir 22 þús­und manns þurft að fara í sótt­kví hér á landi og yfir 62 þús­und sýni hafa verið tekin, ýmist á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans eða hjá Íslenskri erfða­grein­ingu. Nær jafn margar konur og karlar hafa sýkst frá upp­hafi far­ald­urs­ins. Rúmlega 340 smit eru rakin til útlanda en 1.460 manns smit­uð­ust hér á landi. Uppruni þriggja smita er enn á huldu.

Tíu hafa lát­ist vegna COVID-19, sex konur og fjórir karlar.

Þrívíddarteiking af nýju kórónuveirunni. Mynd: Visual Science
Þrí­vídd­ar­teik­ing af nýju kór­ónu­veirunni. Mynd: Visual Science

Fyrir sex mán­uðum vissi eng­inn að ný kór­ónu­veira, sem síðar átti eftir að fá nafnið SARS-CoV-2, væri til. Vís­inda­menn vissu af öðrum kór­ónu­veirum, þær höfðu áður valdið hættu­legum far­öldrum. Það hafði til dæmis veiran SARS-CoV gert árið 2003. Hana tókst hins vegar að ein­angra nokkuð hratt og vel. Og þegar fyrstu til­felli hinnar nýju veiru­sýk­ingar komu upp í Wuhan-borg í Kína í des­em­ber ótt­uð­ust margir að þar væri hún komin aftur, veiran sem hafði greinst í um 8.000 mönnum í 26 löndum sautján árum fyrr.

Annað átti eftir að koma á dag­inn. Þessi litla veira, sem lítur út eins og bolti með broddum sem fólk notar til að nudda sær­indi úr iljum og öxlum, var vissu­lega úr „kór­ónu­veiru-fjöl­skyld­unni“ en var ný og fram­andi – óþekkt fyr­ir­bæri í augum vís­ind­anna. Mörgum spurn­ingum varð að svara og það hratt. Kapp­hlaup við tím­ann var hafið. Og þó að vel hafi tek­ist að hefta útbreiðsl­una hér á landi er ekki sömu sögu að segja víða ann­ars staðar í heim­inum.

Leðurblökur í búri í Kína.
Leð­ur­blökur í búri í Kína.

Fljót­lega var ljóst að hin nýja veira gat borist manna á milli. Og fljót­lega þótti einnig ljóst að hún átti upp­runa sinn í dýrum og hafði borist þaðan í menn. Sjónir beindust fljótt að leð­ur­blökum sem eru með óvenju öfl­ugt ónæm­is­kerfi gegn veiru­sýk­ingum og voru þekktir hýslar kór­ónu­veira. Enn er ekki víst hvort að veiran kom sér fyrir í milli­hýsli áður en hún fór að herja á okkur mann­fólkið. Mögulega gerði hún það og þá lík­lega í hreist­ur­dýri. Bæði leð­ur­blökur og hreist­ur­dýrin sér­stæðu eru seld lif­andi og dauð á blaut­mörk­uðum í Kína þaðan sem veiran er talin hafa borist í menn í fyrsta skipti. Slíkir mark­aðir hafa lengi verið gróðr­ar­stía fyrir alls konar sjúk­dóma.

Þann 11. febr­úar var hinni nýju veiru form­lega gefið nafn og sömu­leiðis sjúk­dómnum sem hún veldur. Enn átti eftir að líða mán­uður þar til Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin skil­greindi COVID-19 sem heims­far­aldur.

En aftur heim til Íslands.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á blaða­manna­fundi sem hald­inn var dag­inn sem fyrsta smitið greind­ist að gera mætti ráð fyrir fleiri smitum. Hann brýndi þá fyrir lands­mönnum, og lík­lega nokkur hund­ruð sinnum á næstu vikum: Þvoið ykkur vel um hend­urnar.

Hand­þvottur. Hand­þvottur. Hand­þvottur. Aldrei hafa Íslend­ingar séð jafn mikla froðu.

„Hand­þvottur er mik­il­væg­asta sýk­inga­vörnin sem hægt er að við­hafa því snert­ing, bein og óbein, er lang algeng­asta smit­leið sýkla milli manna,“ sagði í leið­bein­ingum land­læknis sem Þórólfur vís­aði til frá fyrsta fundi.

Þá hættu Íslend­ingar að heils­ast með handa­bandi. Hófu að raula afmæl­is­söng­inn fyrir munni sér á meðan þeir nudd­uðu hend­urnar með heitu vatni og sápu. Spritt­uðu þær svo í gríði og erg.

Að halda bili manna á milli varð hið nýja norm. „Tveggja metra reglan“ varð til. Fleiri ráð­legg­ingar um sótt­varnir sem mið­uðu að því að halda lág­marks­fjar­lægð manna á milli til að forð­ast smit fylgdu. Þetta var kallað „social distancing“ á ensku. Á íslensku voru ýmsar þýð­ingar lagðar til: Félags­forðun, nánd­ar­bil og nálægð­ar­tak­mörkun svo dæmi séu tekin.

Um miðjan mars var svo ákveðið að setja á sam­komu­bann. Lög voru til um slíkt en því hafði ekki verið beitt í ára­tugi. Í sam­komu­banni var fólk svo hvatt til að ferð­ast „inn­an­húss“ í stað inn­an­lands. Og því hlýddu flestir – enda slag­orðið „Ég hlýði Víði“ komið til sög­unnar.

Ferðumst innanhúss söng hópur fólks, meðal annars þríeykið, fyrir páska.
Ferðumst inn­an­húss söng hópur fólks, meðal ann­ars þrí­eykið, fyrir páska.

Allt var þetta gert – og miklu meira til – svo að sveigja mætti kúr­f­una umtöl­uðu niður og að heil­brigð­is­kerfið stæð­ist álagið. Vís­inda­menn við Háskóla Íslands sam­ein­uð­ust í vinnu að spálík­ani sem eftir því sem á leið varð nákvæmara og betra. Samkvæmt lík­an­inu myndu rúm­lega 1.800 manns á Íslandi grein­ast með COVID-19 í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins eins og það var orðað. Og nákvæmnin var mikil því hingað til hafa 1.806 greinst með veiruna.

Flest smit greindust 24. mars eða 106. Dagana á undan og næstu vikur skiptu smitin oft tugum á dag. Hápunkti far­ald­urs­ins var náð í fyrstu viku apr­íl­mán­aðar, líkt og vís­inda­menn­irnir höfðu spáð. Þá voru virk smit tæp­lega 1.100.

Á Land­spít­al­anum og á Sjúkra­hús­inu á Akureyri varð álagið um tíma mikið. Bak­varð­ar­sveit heil­brigð­is­kerf­is­ins kom til skjal­anna og ástandið varð við­ráð­an­legt. En þeir voru langir vinnu­dag­arnir og vakta­lot­urnar hjá heil­brigð­is­starfs­fólk­inu.

Kúrfan lík­ist fjalli. Og bar­átt­unni við veiru­far­ald­ur­inn hefur verið líkt við fjall­göngu. Það gerði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra til dæmis um miðjan apríl er fyr­ir­huguð aflétt­ing sam­komu­tak­mark­ana í skrefum var kynnt. Hún sagði að síð­asta brekkan væri eftir. Freist­andi væri að taka sér hvíld á göng­unni, setj­ast niður og borða nestið og sleppa því að fara upp á tind­inn. „En það er ekki í boði,“ sagði hún. Og ef haldið væri áfram upp brekk­una og alla leið á tind­inn þá væri hætta enn fyrir hendi, hætta á að maður flýti sér ansi hratt niður. „Þá rennur maður í skrið­unni og endar á nef­inu og það ætlum við ekki að gera. [...] Við þurfum að hafa úthald til að fara niður brekk­una nægi­lega hægt til að tryggja að smit blossi ekki upp aftur.“

Við erum að kom­ast niður á jafn­sléttu. Aðeins tvö virk smit eru á Íslandi. Það þýðir að 1.794 hafa náð bata eða eru á góðum bata­vegi. Íslend­ingum tókst að fara niður brekk­una án þess að hrasa.

Áskor­an­irnar framundan fel­ast í því að aflétta tak­mörk­unum á sam­komum og ferða­lögum enn frekar. Eitt stærsta skrefið í því verður tekið 15. júní. Þá mun fólk sem hingað kemur eiga val um að fara í sýna­töku við kom­una til lands­ins í stað þess að fara í tveggja vikna sótt­kví.

Á fundi þar sem þessar fyr­ir­hug­uðu breyt­ingar voru kynntar sagð­ist for­sæt­is­ráð­herra líta á þetta sem var­færið skref en að brýnt væri að tryggja að „eng­inn komi inn til lands­ins með þessa veiru í fartesk­inu“.

Sótt­varna­læknir hefur sagt að á næstu vikum og mán­uðum eigi mjög lík­lega ein­hver smit eftir að grein­ast til við­bótar. Og að per­sónu­legar aðgerðir, á borð við hinn marg­um­tal­aða hand­þvott, skipti lyk­il­máli í að halda litlu veirunni með tindana mörgu í skefjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár