Mynd: Facebook-síða Barger.

Vítisengill genginn – „Til andskotans með Harley-Davidson“

Vél­hjóla­klúbb­ur­inn og glæpa­sam­tökin Hells Angels eiga sér langa sögu en einn þekkt­asti með­limur sam­tak­anna Sonny Bar­ger lést fyrir stuttu. Líf hans var litað af glæpum.

Ég hef hef lifað löngu og góðu lífi sem var ævin­týra­legt. Og það hafa verið for­rétt­indi að vera partur af undra­verðum klúbbi.“

Þetta var ritað á Facebook-síðu Ralph Hubert „Sonny“ Bar­ger, and­lits vél­hjóla­klúbbs­ins og glæpa­sam­tak­anna Hells Angels, eftir and­lát hans í lok júní en hann lést 83 ára að aldri eftir stutta bar­áttu við krabba­mein.

Samtökin Hells Angels þarf vart að kynna enda fyrir löngu orðin alræmd fyrir glæp­a­starf­semi. Þrátt fyrir frægð og langa sögu er margt varð­andi sam­tökin enn hjúpað leynd. Saga geng­is­ins og með­lima­tal eru leynd­ar­dóms­full umfjöll­un­ar­efni og það sem á sér stað innan húsa­kynna klúbbs­ins er ekki látið frétt­ast þar fyrir utan, enda vilja þessir vél­hjóla­menn hafa það þannig.

The Hells Angels Motorcycle Cub varð til í Fontana í Kali­forníu árið 1948 þegar umfram­fram­leiðsla hers­ins gerði það að verkum að vél­hjól urðu ódýr­ari og mörgum fyrr­ver­andi her­mönnum þótti kyrrð eft­ir­stríðs­ár­anna hvim­leið og þeir þráðu ævin­týri. Haft er fyrir satt að fyrr­ver­andi her­maður að nafni Otto Friedli hafi stofnað klúbb­inn eftir klofn­ing frá einum af fyrstu vél­hjóla­klúbbum eft­ir­stríðs­ár­anna, The Pissed Off Bastards, í kjöl­far hat­rammrar deilu við óvina­klúbb.

Eitt prósent vandræðagemlinga svertir mannorð 99 prósenta virðingarverðra vélhjólamanna

Sveitir sprengju­flug­manna í heims­styrj­öld­unum tveimur voru gjarnan kall­aðar Vít­isenglar – „Hell's Angels“ – og það var einnig heitið á kvik­mynd Howard Hughes frá árinu 1930 um hinar kon­ung­legu flug­sveitir. Úrfell­ing­ar­komman hvarf úr heit­inu með tíð og tíma.

Árum saman var HAMC, eins og með­lim­irnir kalla klúbb­inn, ein­göngu í Kali­forníu. Fyrsta deildin utan við Kali­forn­íu­ríki var stofnuð í Auckland í Nýja-Sjálandi árið 1961. Um síðir teygði klúbb­ur­inn svo anga sína út í flest ríki, 30 tals­ins, og til fleiri landa, í krafti ímyndar með­li­manna sem kæru­lausra útlaga sem lúta engum reglum nema sínum eigin.

Popp­menn­ingin treysti í sessi þessa tákn­mynd, sér í lagi kvik­myndin The Wild One frá árinu 1953 með Marlon Brando í aðal­hlut­verki og skrif Hunters S. Thompson frá 1966 um árið sem hann bjó með gengi í Norður-Kali­forníu. Samtökin segja að dæmi­gert sé að með­limir keyri 20.000 mílur á ári, sem er rúm­lega 30.000 kíló­metra, vana­lega á þeim öku­tækjum sem Englarnir kunna best að meta, Harley-Davidson vél­hjólum. Og með­limir kalla sig enn „one percenters“. Það er hálfrar aldar gam­alt gort sem vísar til þess orðs­kviðar að eitt pró­sent vand­ræða­geml­inga sverti mann­orð 99 pró­senta virð­ing­ar­verðra vél­hjóla­manna.

Samt vilja Englarnir meina að orð­spor klúbbs­ins sem glæpa­sam­tök sé óverð­skuldað og benda í því sam­bandi á tíð fram­lög sín til góð­gerð­ar­mála í þágu barna og fyrr­ver­andi her­manna. Á borða neðst á vef­síðu Hells Angels stóð: „Þegar við breytum rétt man það eng­inn, þegar við gerum eitt­hvað rangt gleymir því eng­inn.“ En margir Vít­isenglar hafa svo sann­ar­lega unnið sér inn lög­leys­isí­mynd sína – hand­tökur og dómar fyrir fíkni­efna­sölu, og þá sér­stak­lega á metam­fetamíni, lík­ams­árásir, vopna­eign og jafn­vel morð hafa fylgt klúbbnum í ára­tugaraðir.

Svæsn­asta dæmið um þetta er meint sam­særi Vít­isengla um að drepa rokk­goðið Mick Jagger eftir hið alræmda upp­þot árið 1969 á Altamont-kappakst­urs­braut­inni í Kali­forníu þar sem gengið gegndi örygg­is­gæslu. Rolling Stones-söngv­ar­inn hafði gagn­rýnt Englana eftir að vél­hjóla­maður stakk til bana áhorf­anda sem hafði dregið upp byssu á meðan á rysk­ingum stóð. Drápið var úrskurðað sem sjálfs­vörn og kær­urnar voru látnar niður falla. Megnið af atvik­inu var fest á filmu í heim­ild­ar­mynd frá árinu 1970 um Rolling Stones.

„Þú potar ekki í geitungabú með priki“

Í Skand­in­avíu geis­aði árum saman stríð um yfir­ráða­svæði á tíunda ára­tugnum sem átti sér að sögn stað með vél­byssum, sprengju­vörpum og hand­sprengjum og kost­aði um tíu manns lífið. Þrír vél­hjóla­menn voru drepnir í gríð­ar­miklum átökum milli Vít­isengl­anna og óvina­geng­is­ins Mongols í spila­víti í Nevada árið 2002.

Árið 2007 fannst kona alvar­lega lemstruð við dyr víg­girtra höf­uð­stöðva klúbbs­ins í aust­ur­hluta Man­hattan í New York borg. Þung­vopnuð lög­reglu­sveit gerði áhlaup á bygg­ing­una með þyrlur á lofti en engar kærur komu upp úr krafs­inu. Þetta hefur orðið til þess að að yfir­völd hafa vök­ult auga með Hells Angels. Sér­sveitir hafa fylgst með vél­hjóla­ferðum Hells Angels til styrktar góð­gerð­ar­mála til að fyr­ir­byggja vand­ræði og til að sýna styrk sinn mættu lög­reglu­sveitir með­limum sam­tak­anna í Minnesota þegar þeir voru á leið til í Sturgis um sum­arið 2009. Eins og lög­reglu­þjónn­inn Steve Ovick sagði í við­tali við frétta­miðil á svæð­inu: „Þú potar ekki í geit­ungabú með priki en þú vilt svo sann­ar­lega fá að vita hvar geit­unga­búið er.“

Hægt er að þekkja Vít­isengla á jökk­unum þeirra úr leðri eða galla­efni, sem bera merki hins rauða, hvíta og vængj­aða „höf­uðs dauð­ans“, staf­ina HAMC og oftar en ekki töl­una 81, sem táknar H, átt­unda staf­inn í staf­róf­inu og A, þann fyrsta. Eins og her­menn sem skarta tákn­myndum á ein­kenn­is­bún­ingum sínum bera Vít­isenglar margar ólíkar ásaum­aðar myndir á jökk­unum sínum sem gefa til kynna stöðu þeirra innan sam­tak­anna en nákvæma merk­ingu þess­ara tákna skilja aðeins aðrir Englar.

Meðlimir kalla hver annan ein­göngu dul­nefnum og á minn­ing­ar­síðu á vef­svæði geng­is­ins má finna virð­ing­ar­vott um látna vél­hjóla­menn sem eru aðeins kall­aðir Triumph Viking og Fat Ray. Og gangi þér vel að reyna að verða Vit­is­eng­ill án mik­illar fyr­ir­hafnar. Upp­lýs­ing­arnar fyrir verð­andi með­limi fela nokkurn veg­inn í sér þessi skila­boð: „Ef þú þarft að spyrja muntu lík­lega ekki skilja svarið.“

Endurvöktu gamla klúbbinn í Oakland

Aftur að Sonny Barger – einu þekktasta and­liti sam­tak­anna í gegnum árin. Hann fædd­ist í bænum Modesto í Kali­forníu í Banda­ríkj­unum árið 1938. Móðir hans yfir­gaf fjöl­skyldu hans þegar hann var ein­ungis fjög­urra mán­aða gam­all. Hann ólst því upp með systur sinni hjá trú­aðri ömmu sinni og drykkju­sjúkum föður. Þegar Barger var barn var honum vísað nokkrum sinnum úr skóla og þótti hann heldur óstýri­látur.

Sextán ára skráði hann sig í her­inn en var leystur frá störfum með sæmd þegar þegar upp komst að hann hefði falsað fæð­ing­ar­vott­orð sitt til þess að geta skráð sig í her­inn fjórtán mán­uðum seinna.

Eftir veru í hernum sinnti hann hinum ýmsu störfum en hann bjó með föður sínum fyrst um sinn á hót­eli og flutti síðar til eldri systur sinnar.

Barger gekk í fyrsta sinn í vél­hjóla­klúbb sem bar nafnið Oakland Panthers árið 1956. Eftir að sá klúbbur leyst­ist upp fór hann að keyra með öðrum mönnum með sama áhuga­mál en einn þeirra hét Don „Boots“ Reeves. Sá var með ásaumað merki af flug­manns­hjálmi innan um vængi – merki gam­als vél­hjóla­klúbbs í Norður-Sakra­mentó sem hafði liðið undir lok.

Merkið hjá Vítisenglum.
Merkið hjá Vít­isenglum.

Með honum stofn­aði Barger lít­inn klúbb í Oakland í Kali­forníu þann 1. apríl 1957. Allir með­limir í klúbbnum báru fyrr­nefnt merki sem seinna var iðu­lega kallað „höfuð dauð­ans“ og varð lógó klúbbs­ins sem þeir köll­uðu Hells Angels.

Þeir gerðu sér ekki grein fyrir því að fleiri klúbbar með sama nafni væru að spretta upp víðs­vegar um fylkið. Bager var for­maður klúbbs­ins í Oakland og hjól­uðu þeir um Kali­forníu til þess að sam­eina klúbbana og móta reglur fyrir Hells Angels. Þessi þensla klúbbs­ins var þó ekki án árekstra því ágrein­ingur var á milli þeirra og til að mynda ann­ars klúbbs, Gypsy Jokers.

Langur sakaferill

Barger vann sem véla­maður frá 1960 til 1965 eða þangað til hann var rek­inn fyrir lélega mæt­ingu. Saka­fer­ill hans hófst árið 1963 eftir að hann var hand­tek­inn fyrir vörslu mari­júana en það gerð­ist aftur ári síðar og fyrir árás með morð­vopni árin 1965 og 1966. Hóf hann sölu á heróíni nokkrum árum síðar og á svip­uðum tíma varð hann háður kóka­íni. Á árunum 1966 til 1973 þén­aði hann á lög­legan hátt með því að aðstoða við hin ýmsu kvik­mynda­verk­efni. Berger og vél­hjóla­sam­tökin hans, Hells Angels voru oft á þessum tíma tengd við svo­kall­aða „and­menn­ingu“ sjö­unda ára­tug­ar­ins.

Í gegnum árin var Barger hand­tek­inn fyrir hin ýmsu brot, á borð við morð­til­raunir, mann­rán og vörslu eit­ur­lyfja. Hann var þá ákærður fyrir morð árið 1972 á eit­ur­lyfja­sala en sýkn­aður þegar trú­verð­ug­leiki vitn­is­ins var dreg­inn í efa í rétt­ar­sal. Ári seinna hlaut Barger fang­els­is­vist í 10 ár til lífs­tíðar fyrir eit­ur­lyfja­vörslu og vopna­eign. Eftir fjögur og hálft ár losn­aði hann úr fang­elsi eftir að hann fékk reynslu­lausn.

Á árunum sem fylgdu þarna á eftir var vél­hjóla­klúbb­ur­inn iðu­lega tengdur við glæp­a­starf­semi og þótti Barger það miður en hann hélt því ávallt fram að klúbb­ur­inn gæti ekki borið ábyrgð á hegðun ein­stak­ling­anna sem voru í honum.

Árið 1983 greind­ist Barger með krabba­mein í hálsi en hann hafði alla tíð reykt mikið – og verið „þriggja-pakka“ maður. Hann lét eftir stjórn Hells Angels til Michaels O'Farrell sem var næst­ráð­andi í klúbbnum á meðan hann barð­ist við meinið. Barka­kýlið var tekið og and­aði hann alla tíð síðan í gegnum plast­ventil á háls­inum sem hann lok­aði fyrir þegar hann tal­aði.

Töluvert hefur verið fjallað um Sonny Barger í fjölmiðlum vestanhafs undanfarna daga vegna andláts hans.
Töluvert hefur verið fjallað um Sonny Barger í fjöl­miðlum vest­an­hafs und­an­farna daga vegna and­láts hans.

Barger átti aftur eftir að hljóta fang­els­is­dóm en seinna á níunda ára­tugnum var hann dæmdur í fjög­urra ára fang­elsi fyrir sam­særi að fremja ýmsa glæpi, meðal ann­ars morð. Hann sat af sér í þrjú og hálft ár og þegar hann var leystur úr haldi í nóv­em­ber 1992 hélt hann helj­ar­innar partý þar sem um 700 gestir mættu, þar á meðal stjórn­mála­menn.

Vildi hjóla á japönskum hjólum

Barger hélt áfram að vera stór hluti af Hells Angels en á seinni árum tal­aði hann fyrir öryggi vél­hjóla­manna í umferð­inni og þrátt fyrir að með­limir klúbbs­ins hafi alla tíð hjólað á Harley-Davidson þá sagði Barger eitt sinn að honum hefði aldrei líkað við þá teg­und af hjólum. Hann not­aði þau bara vegna þess að sú teg­und af mót­or­hjólum hafði ávallt fylgt ímynd klúbbs­ins. „Ég hjóla á þeim vegna þess að ég er í klúbbnum, sú er ímyndin, en ef ég gæti þá myndi ég alvar­lega íhuga að keyra Hondu ST1100 eða BMW. Við misstum af tæki­fær­inu að skipta yfir í japönsku hjóla­teg­und­irnar þegar þeir byrj­uðu að búa til stærri hjól. Ég segi venju­lega: „Til and­skot­ans með Harley-Davidson.““

Hann var fjór­giftur. Fyrsta konan hans, Elsie Mae, lést eftir ólög­legt þung­un­ar­rof á sjö­unda ára­tugnum. Nokkrum árum síðan gift­ist hann Sharon Gruhlke, þegar hann sat í fang­elsi, en skildi nokkru síðar. Þriðja hjóna­bandið var storma­samt en Barger var meðal ann­ars dæmdur í nokk­urra daga fang­elsi fyrir að ráð­ast á Beth Noel árið 2003. Þau skildu í kjöl­farið. Hann gift­ist fjórðu kon­unni, Zorana, tveimur árum síðar og voru þau saman þar til hann lést. Hún var með honum á dauða­stund­inni ásamt öðrum ást­vinum hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Glæpir

FólkGlæpir

Fimm íslensk glæpa­mál sem yrðu frá­bærar kvik­myndir

Í októ­ber 2014 var sagt frá því að íslenskir aðilar ynnu að gerð kvik­myndar sem byggir á Lík­fund­ar­mál­inu-svo­kall­aða. Myndin, sem Ari Alex­ander Ergis Magn­ús­son stendur að og á að heita „Undir Hala­stjörnu“, fékk vil­yrði fyrir 80 milljón króna styrk úr Kvik­mynda­sjóði Íslands og á að fara í tökur vet­ur­inn 2016. Það telst til tíð­inda að gera myndir sem byggj­ast á...

Mest lesið undanfarið ár