Arion banki vill blása aftur lífi í kísilverið – og stækka það

Bæj­ar­búar fengu „upp í kok“ á kís­il­ver­inu í Helguvík, segir íbúi sem barð­ist fyrir lokun verk­smiðj­unnar. Honum hugn­ast ekki fyr­ir­ætl­anir Stakks­bergs, sem er í eigu Arion banka, að ræsa ljós­boga­ofn­inn að nýju og ótt­ast að „sama fúskið“ end­ur­taki sig.

Áfalla­saga kís­il­vers­ins í Helguvík hófst löngu áður en kynt var upp í ljós­boga­ofn­inum Ísabellu í fyrsta skipti. Ísabella var óstöðug allt frá upp­hafi og átti ítrekað eftir að hiksta og hósta með til­heyr­andi mengun þar til yfir lauk. Það kom alvar­lega niður á fólki sem bjó í nágrenn­inu sem og bæj­ar­fé­lag­inu er stólað hafði á tekjur frá fyr­ir­tæki sem var orðið gjald­þrota rúmu ári eftir að fyrstu neist­arnir voru bornir að Ísabellu.

Helsti lán­ar­drott­inn fyr­ir­tæk­is­ins, Arion banki, fékk svo að finna fyrir því og end­aði að lokum með verk­smiðj­una í fang­inu. Bankinn hefur haft þá stefnu að gera end­ur­bætur á verk­smiðj­unni og auka fram­leiðslu­get­una. Nú liggur fyrir, í frum­mats­skýrslu á umhverf­is­á­hrifum, hvernig hann ætlar að gera það. En helst af öllu vill bank­inn þó finna kaup­anda. Það hefur hingað til ekki tek­ist og gæti við núver­andi aðstæður reynst þrautin þyngri.

Rúmlega 10.500 tonn af kolum og tæp­lega 3.000 tonn af við­ar­kolum voru notuð á þeim tæp­lega tíu mán­uðum sem kís­il­verk­smiðja United Silicon í Helguvík starf­aði með hléum á árunum 2016-2017. Þá voru 97,5 tonn af dísilolíu og bens­íni notuð. Á þessum tíma var losun koltví­sýr­ings frá jarð­efna­elds­neyti 31.410 tonn og frá lífmassa 33.847 tonn – sam­tals um 65.257 tonn. Losuð voru 115 tonn af brenni­steins­dí­oxíði út í and­rúms­loftið en vegna „tækni­legra örð­ug­leika“ voru gögn úr mæli­bún­aði fyrir svifryk ekki talin áreið­an­leg.

Núver­andi eig­andi verk­smiðj­unnar, Stakks­berg sem er alfarið í eigu Arion banka, vill hefja rekstur kís­il­verk­smiðj­unnar á ný og bæta í fram­tíð­inni við þremur ljós­boga­ofnum til við­bótar. Mark­miðið er að fram­leiða 100 þús­und tonn af kísli á ári. Til þess þarf 80.000 tonn af kolum, 8.000 tonn af við­ar­kolum og 90 þús­und tonn af við­ar­flís ásamt þús­undum kílóa af fleiri hrá­efnum.

130 MW þarf fyrir fjóra ofna

Raf­orku­þörfin fyrir slíka fram­leiðslu er um 1.300 Gwh. Núver­andi ofn verk­smiðj­unnar þarf um 32 MW við dæmi­gert álag og tryggir samn­ingur við Lands­virkjun það afl. Ekki er þó útlit fyrir að orkan fáist afhent fyrr en á fyrri hluta árs­ins 2022 og því er gert ráð fyrir að fram­leiðslan geti haf­ist þá. Ekki hefur verið samið við orku­fyr­ir­tækið um raf­orku fyrir stækkun kís­il­vers­ins en fjórir ofnar gætu þurft um 130 MW.

Fram­leiðsla kís­il­málms felur í sér efna­hvarf og við það losna ýmis meng­andi efni út í and­rúms­loftið og þá helst koltví­sýr­ingur (CO2), brenni­steins­dí­oxíð (SO2), köfn­un­ar­efn­is­oxíð (NOx) og svifryk. Einnig eru los­aðir þung­málmar og rok­gjörn líf­ræn efna­sam­bönd (VOC).

Áætluð heild­ar­losun koltví­sýr­ings í kís­il­ver­inu í Helguvík er allt að 130.000 tonn á ári fyrir einn ofn og 520.000 tonn ári fyrir full­byggða verk­smiðju. Heild­ar­losun Íslands á gróð­ur­húsa­loft­teg­undum eykst um 10% þegar og ef verk­smiðjan verður gang­sett að nýju, ef miðað er við fulla fram­leiðslu­getu, að því er fram kom í svari Umhverf­is­stofn­unar við fyr­ir­spurn RÚV í fyrra.

Kísill er unninn úr kvarsi. Til framleiðslunnar þarf að hita ofninn í 1900°C.
Kísill er unn­inn úr kvarsi. Til fram­leiðsl­unnar þarf að hita ofn­inn í 1900°C.

Stakks­berg und­ir­býr nú end­ur­bætur á kís­il­ver­inu sínu í Helguvík með allt að 25 þús­und tonna árs­fram­leiðslu og í fram­hald­inu stækkun verk­smiðj­unnar í áföngum. Í fyrra kom fram að nauð­syn­legar end­ur­bætur kosti 4,5 millj­arða króna. Þær fela meðal ann­ars í sér fram­kvæmdir á lóð, breyt­ingar á núver­andi bygg­ingum og nýbygg­ingar og upp­setn­ingu á skor­steini.

Þetta stendur til þrátt fyrir að fram hafi komið í afkomu­við­vörun Arion banka í lok jan­úar að óvissa væri á mörk­uðum með kísil auk þess sem nokkrir fram­leið­endur hefðu dregið úr fram­leiðslu eða lokað verk­smiðjum. Upp­lýs­inga­full­trúi bank­ans sagði við mbl.is af því til­efni að lík­urnar á því að selja kís­il­verið í Helguvík hefðu dvínað en að stefnt væri að því að gera verk­smiðj­una sölu­hæfa. Sá kostur að ræsa verk­smiðj­una ekki að nýju, „sam­rým­ist ekki mark­miði fram­kvæmda­að­ila,“ segir í frum­mats­skýrslu Stakks­bergs, sem nú hefur verið aug­lýst til kynn­ingar hjá Skipu­lags­stofnun.

Í skýrsl­unni er fjallað um og lagt mat á umhverf­is­á­hrif af rekstri kís­il­vers­ins. Fram kemur að ekki sé talið lík­legt að verk­smiðjan hafi umtals­verð umhverf­is­á­hrif í för með sér. Eru áhrifin talin vera nokkuð nei­kvæð á loft­gæði, grunn­vatn við full­byggða verk­smiðju og ásýnd en nokkuð jákvæð á atvinnustig sam­fé­lags á fram­kvæmda­tíma og tals­vert jákvæð á sam­fé­lag á rekstr­ar­tíma. Í inn­gangi skýrsl­unnar segir að mark­miðið sé að lág­marka umhverf­is­á­hrifin og „stuðla að því að starf­semin megi verða í sátt við íbúa svæð­is­ins“.

Kíslinum er hellt í mót og hann látinn kólna og storkna. Kísillinn er síðan malaður og flokkaður, honum pakkað og hann fluttur með skipi til viðskiptavina fyrirtækisins.
Kíslinum er hellt í mót og hann lát­inn kólna og storkna. Kís­ill­inn er síðan mal­aður og flokk­aður, honum pakkað og hann fluttur með skipi til við­skipta­vina fyr­ir­tæk­is­ins.

Íbúar svæð­is­ins eru fólkið í Reykja­nesbæ. Nágrannar verk­smiðj­unnar sem veigr­uðu sér á sínum tíma við að setja ung­börn sín út í vagn að sofa, fundu fyrir sær­indum í önd­un­ar­færum og gátu ekki opnað glugg­ana heima hjá sér fyrir óþef á meðan reynt var að temja og hemja Ísabellu, slökkva á henni og kveikja á víxl. „Þessi verk­smiðja verður aldrei tekin í sátt af íbúum, það er mín til­finn­ing,“ segir Einar Már Atlason, for­maður sam­tak­anna And­stæð­ingar stór­iðju í Helguvík, í sam­tali við Kjarnann. „Sumir eru enn fullir van­trausts og aðrir vilja þessa verk­smiðju bara alls ekki í rekstur aftur heldur að hún verði rifin niður.“

Van­traustið má rekja til þess að stór­kost­leg áföll, mengun og marg­vís­leg hneyksl­is­mál ein­kenna sögu kís­il­vers­ins í Helguvík fram að þessu. Stofn­and­inn og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjór­inn, Magnús Garð­ars­son, er sér kap­ít­uli út af fyrir sig. Um mitt síð­asta ár var skorað á hann í aug­lýs­ingu í Lög­birt­inga­blað­inu að mæta fyrir hér­aðs­dóm vegna kröfu­máls í tengslum við gjald­þrota­skipti Sam­ein­aðs síli­kons hf. Þrota­búið höfð­aði í fyrra að minnsta kosti tvö mál gegn honum vegna meintra fjársvika sem hlupu á hund­ruðum millj­óna.

Magnús var áður eig­andi Icelandic Silicon Corporation, for­vera United Silicon, sem lét gera mats­skýrslu á fyr­ir­hug­uðu kís­il­veri í Helguvík árið 2008. Önnur mats­skýrsla en þó sam­bæri­leg var lögð til grund­vallar starfs­leyfis nokkrum árum síðar.

Magnús Garðarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri United Silicon.
Magnús Garð­ars­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri United Silicon.

Skipu­lags­stofnun gaf álit sitt á mati á umhverf­is­á­hrifum 100 þús­und tonna árs­fram­leiðslu félags­ins Stakks­brautar 9 ehf. á kísli í Helguvík í maí árið 2013. Umhverf­is­stofnun veitti félag­inu starfs­leyfi rúmu ári síðar. Starfs­leyfið var svo flutt yfir á félagið Sameinað Sílikon hf.

Núver­andi mann­virki verk­smiðj­unnar voru byggð á árunum 2014-2016. Þegar þau hófu að rísa fóru að renna tvær grímur á íbúa Reykja­nes­bæjar. Áttu húsin virki­lega að vera svona stór og áber­andi? Í mats­skýrsl­unni sagði að verk­smiðjan myndi „varla verða sjá­an­leg frá Keflavík“ og á myndum sem fylgdu litu þau allt öðru­vísi út. Þegar farið var að graf­ast fyrir um málið kom í ljós að hluti hús­anna er þrettán metrum hærri en mats­skýrslan og deiliskipu­lag gerði ráð fyrir og aðrir hlutar átta metrum hærri. „Mannleg mis­tök“ eru sögð hafa orðið til þess að teikn­ingar sem húsin voru byggð eftir voru stimpl­aðar og þar með sam­þykktar hjá starfs­manni Reykja­nes­bæjar.

Kís­il­verið var gang­sett 11. nóv­em­ber árið 2016 með einum ljós­boga­ofni sem fékk nafnið Ísabella. Fram­leiðslu­getan var upp á um 25.000 tonn á ári. Fljót­lega fóru íbúar í nágrenn­inu að finna óþef. Þegar í byrjun des­em­ber var slökkt á ofn­inum og til­kynnti Umhverf­is­stofnun Sam­ein­uðu Sílikoni hf. að hann yrði ekki ræstur á ný fyrr en hún hefði metið yfir­stand­andi úrbætur.

Á næstu mán­uðum átti stofn­unin ítrekað eftir að boða stöðvun á rekstri vegna lykt­ar­meng­unar og lík­am­legra óþæg­inda sem margir nágrannar verk­smiðj­unnar fundu fyrir. Í mars hafði hún fengið yfir 300 kvart­anir frá íbúum. Eftirlit stofn­un­ar­innar átti svo eftir að leiða í ljós að mik­ill óstöð­ug­leiki var á rekstri ljós­boga­ofns­ins og þegar hann var rek­inn með skertu álagi magn­að­ist meng­unin. Fylgst var náið með rekstr­inum næstu mán­uð­ina og taldi stofn­unin í lok ágúst árið 2017 að end­ur­bætur hefðu ekki náð til­ætl­uðum árangri.

Nokkrum dögum síðar eða þann 1. sept­em­ber til­kynnti Umhverf­is­stofnun ákvörðun sína um að stöðva starf­semi kís­il­verk­smiðj­unnar í Helguvík. Þá hafði hún skráð tutt­ugu frá­vik frá kröfum starfs­leyf­is­ins og fengið vel yfir þús­und kvart­anir frá íbúum Reykja­nes­bæjar vegna meng­unar.

Í þrot

Sameinað Sílikon hf. vann næstu vik­urnar að umbótum á starf­semi kís­il­verk­smiðj­unnar í þeim til­gangi að fá heim­ild til að end­ur­ræsa ofn­inn. Þegar ljóst varð að það yrði ekki mögu­legt nema með veru­legum fram­kvæmdum var félagið tekið til gjald­þrota­skipta í lok jan­úar 2018. Félagið Stakks­berg ehf., sem er í eigu Arion banka hf., keypti kís­il­verk­smiðj­una í Helguvík af þrota­bú­inu og hyggst nú end­ur­bæta hana svo hefja megi fram­leiðslu á kísli á ný.

Eitt helsta verk­efnið sem við blasir er að bæta rekstur ofns­ins og lág­marka mengun. Í því sam­bandi er ráð­gert að reisa 52 metra háan skor­stein sem mun „bæta veru­lega dreif­ingu meng­un­ar­efna í and­rúms­lofti í sam­an­burði við núver­andi fyr­ir­komu­lag“.

Líkan af fullbyggðri verksmiðju með 4 ofna. Einnig sést líkan af núverandi mannvirkjum á öðrum lóðum við höfnina í Helguvík. Líta ber á mannvirki framtíðaráfanga sem skematíska framsetningu á áætlaðri stærð þeirra. Framtíðarbyggingar eru sýndar í hvítum lit en búnaður sem yrði úr stáli, s.s. loftkælar, forskiljur og skorsteinar, sýndur í brúnum lit.
Líkan af full­byggðri verk­smiðju með 4 ofna. Einnig sést líkan af núver­andi mann­virkjum á öðrum lóðum við höfn­ina í Helguvík. Líta ber á mann­virki fram­tíð­ar­á­fanga sem skemat­íska fram­setn­ingu á áætl­aðri stærð þeirra. Fram­tíð­ar­bygg­ingar eru sýndar í hvítum lit en bún­aður sem yrði úr stáli, s.s. loft­kælar, for­skiljur og skor­steinar, sýndur í brúnum lit.

Þá verða ýmis skref tekin til að bæta vinnu­ferla og tryggja aukið rekstr­ar­ör­yggi bún­aðar til að fækka til­vikum þegar lækka þarf afl á ofni eða slá honum út, segir í frum­mats­skýrsl­unni. Stakks­berg telur að end­ur­bæt­urnar verði til þess að styrkur meng­un­ar­efna frá full­byggðri verk­smiðju með fjórum ofnum verði lægri heldur en frá ofn­inum eina með þeim aðferðum sem áður var beitt við útblást­ur­inn. Þá segir í skýrsl­unni að styrkur meng­un­ar­efna verði í öllum til­vikum lægri en við­mið­un­ar­mörk reglu­gerða segja til um.

Ákveðin við­halds­verk­efni í kís­il­veri eru þess eðlis að ekki er hægt að sinna þeim nema stöðva rekstur bræðslu­ofns. Í frum­mats­skýrslu Stakks­bergs kemur fram að eitt af mark­mið­unum sé að slíkar rekstr­ar­stöðv­anir séu skipu­lagðar á fyr­ir­fram ákveðnum tíma þannig að hægt sé að safna saman við­halds- og þrifa­verk­efnum og þannig lág­marka bæði fjölda stöðv­ana og stytta þær eins og kostur er.

Aldrei hægt að útiloka lyktarmengun

Áætlað er að til að sinna fyr­ir­byggj­andi við­haldi sé nauð­syn­legt að stöðva rekstur hvers ofns í 3-8 klukku­stundir með 4-6 vikna milli­bili. Einnig má gera ráð fyrir tveggja til þriggja daga rekstr­ar­stöðvun með 18-24 mán­aða milli­bili. Við stöðvun á ofni verður fylgt stöðl­uðum verk­lags­reglum þar sem meðal ann­ars verður kveðið á um breyt­ingar í hrá­efna­blöndu til að lág­marka hættu á lykt og óþæg­indum.

End­ur­bætur á kís­il­verk­smiðj­unni miða allar að því að bæta búnað og ferla sem ekki virk­uðu sem skyldi í fyrri rekstri og leiddu í mörgum til­fellum til atvika þar sem stöðva þurfti eða draga úr fram­leiðslu í ljós­boga­ofn­inum, segir í frum­mats­skýrslu Stakks­bergs. Minna afl á ofni þýddi lækkað hita­stig og minni útblást­urs­hraða sem leiddi til ófull­nægj­andi dreif­ingar útblást­urs­lofts. „Þó end­ur­bætur miði að því að fækka veru­lega til­vikum með skertu afli á ofni þá verður aldrei hægt að úti­loka alveg slík til­vik auk þess að reglu­bundið við­hald á ofn­bún­aði með útslætti verður alltaf nauð­syn­legt.“

Loftmynd af kísilverinu í Helguvík sem tekin var í nóvember árið 2018.
Loftmynd af kís­il­ver­inu í Helguvík sem tekin var í nóv­em­ber árið 2018.

Kísill er annað algeng­asta frum­efni jarð­skorpunnar en finnst þó ekki á hreinu formi í nátt­úr­unni. Hann finnst aftur á móti í mörgum efna­sam­böndum og berg­teg­undum. Til fram­leiðslu á kísli er einkum notað kvars (SiO2) en kís­ill er um helm­ingur af þyngd þess. Hægt er að finna kvars víða í heim­inum, þar sem það er unnið úr yfir­borðs­námum, en þó ekki á Íslandi. Kvarsið sem verk­smiðja Stakks­bergs kæmi til með að nota væri til dæmis frá Spáni, Frakk­landi eða Egypta­landi.

Helstu hrá­efni til fram­leiðslu á kísli eru kvars, kol, koks, við­ar­kol, við­ar­flís og kalk­steinn. Önnur efni sem notuð eru við fram­leiðsl­una eru grafítraf­skaut og raf­skautamassi. Kísill er not­aður í fram­leiðslu á ýmsum snyrti­vörum, hulstrum fyrir far­síma og háþró­uðu lími sem notað er í spaða vind­mylla sem fram­leiða raf­magn, segir í frum­mats­skýrsl­unni. Þá kemur fram að hreins­aður kís­il­málmur sé lykil­efni í tölvu­tækni og raf­einda­iðn­aði og í fram­leiðslu á sól­ar­hlöðum sem not­aðar eru til að virkja raf­orku úr geislum sól­ar­innar.

Í frum­mats­skýrsl­unni segir að áætlað sé að helstu fram­kvæmdir við end­ur­bætur verk­smiðj­unnar taki rúmt ár og að fram­leiðsla geti haf­ist á fyrri hluta árs­ins 2022. Ekki sé ljóst hvenær verði ráð­ist í upp­bygg­ingu seinni áfanga verk­smiðj­unnar. Það muni ráð­ast af mark­aðs­að­stæðum og mögu­leikum á fjár­mögnun.

„Það hefur verið og verður áfram hörð and­staða við þetta kís­il­ver. Bæj­ar­búar fengu algjör­lega upp í kok“ segir Ellert Grét­ars­son, íbúi í Reykja­nesbæ, sem var ötull bar­áttu­maður þess að rekstur United Silicon yrði stöðv­aður á sínum tíma. Hann kynnti sér und­ir­bún­ing fram­kvæmd­ar­innar vel og benti ítrekað í aðsendum greinum á það sem aflaga fór við hann og í starf­sem­inni er hún hófst. „Það var allt kol­rangt við leyf­is­ferlið og allar eft­ir­lits­stofn­anir féllu á próf­inu,“ segir hann í sam­tali við Kjarnann. „Margir bæj­ar­búar ótt­ast nú að sama ruglið og fúskið end­ur­taki sig.“

Hægt er að kynna sér frum­mats­skýrslu Stakks­bergs og fylgi­gögn á vef Skipu­lags­stofn­unar. Frestur til athuga­semda er 26. júní.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Unitedsilicon

Mest lesið undanfarið ár