Nýtt efni

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
Þóroddur Bjarnason félagsfræðiprófessor segir útgjöld Loftbrúarinnar aldrei hafa farið yfir upphaflegar fjárheimildir að raunvirði. Ekki séu heldur traustar vísbendingar um að stuðningurinn hafi hækkað flugfargjöld. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hyggst nú hækka fyrirhugaða niðurgreiðslu eftir hörð viðbrögð við breytingunum.

Reiður Trump ræðst gegn Norðmönnum
Bandaríkjaforseti vill refsa Norðmönnum vegna þess að óháð Nóbelsnefndin sæmdi hann ekki friðarverðlaunum.

Ný rannsókn SÞ segir Ísrael stunda „útrýmingu“ á Vesturbakkanum
Óháð rannsóknarnefnd SÞ segir ísraelskar hersveitir fremja „útrýmingu“ og stríðsglæpi á Vesturbakkanum. Hún telur jafnframt að þjóðarmorðsaðgerðir haldi áfram á Gasasvæðinu.

„Sögulegur sigur“ gegn fjarhægribylgjunni
Leiðtogar víða um heim fagna kosningasigri Lula í Brasilíu mitt í uppgangi leiðtoga langt til hægri sem veikja lýðræði. Flavio Bolsonaro, sem ætlaði að frelsa föður sinn eftir dóm fyrir valdaránstilraun, krefst ógildingar kosninganna.

Vindorkugarðar áformaðir víða um land
Fyrsta vindorkuverið á Íslandi hefur verið gangsett og fleiri eru áformuð. Yfir fjörutíu hugmyndir eru um vindorkukosti víða um land og eru fjórtán þeirra í skipulagsgáttinni. Heimildin fór yfir stöðu vindorkunnar á Íslandi.

Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu
Úkraínskur varnarmálaráðherra segir tenginguna nú stöðuga. Elon Musk segir að her landsins hafi brotið þjónustuskilmála Starlink.

37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal
Tjaldbúðir hafa risið í Lissabon og Porto undanfarnar vikur vegna húsnæðisverðs. Mótmælin eru hluti af vaxandi óánægju í Evrópu með framfærslukostnað.

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitjandi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Kristjánsson, bóndi á bænum Garpsdal í Reykhólahreppi. Fyrirhugað er að reisa vindorkugarð ofan á Garpsdalsfjalli sem er fyrsti vindorkukosturinn sem er færður úr biðflokki yfir í orkunýtingarflokk af ráðherra. Heimildin fór á vettvang.

Obama segir „nóg komið“ af Trump
Barack Obama gagnrýndi Donald Trump á kosningafundi í Ohio. Spennan magnast fyrir afdrifaríkar þingkosningar.

Palestínumenn gætu ráðið örlögum Netanjahús
Tveir listar með arabískan meirihluta geta skipt sköpum í að fella ríkisstjórn Benjamíns Netanjahús á þriðjudag.

Katrín í Lýsi fjárfestir í einkareknum spítala
Litli spítalinn verður opnaður í húsnæði í eigu stofnanda Samherja.

Séð og heyrt á flóknum mótmælum í Frakklandi
Viðbúnaður víða um Frakkland í dag. Hvað knýr andstöðuna áfram? Hvernig hefur hún breyst? Rætt við fólk á vettvangi.

Ætlar að koma palestínskum yfirvöldum „á óvart“
Eftir árás tveggja palestínskra manna á ísraelska hermenn á Vesturbakkanum boðar Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, víðtækar aðgerðir.

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragnarsdóttir nær dauða en lífi á skurðarborði Landspítalans eftir alvarlegt tilfelli meðgöngueitrunar. Íslenskur vísindamaður í Bandaríkjunum, Jóhann Elí Guðjónsson húðlæknir, leiðir brautryðjandi rannsóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúkdómurinn kemur fram. Hann telur mögulegt að þróa lyf við sjúkdómnum sem bjargað gæti mannslífum.


Athugasemdir