Mynd: Birgir Þór Harðarson

Framsóknarflokkurinn ekki mælst með minna fylgi

Vin­sældir rík­is­stjórn­ar­innar halda áfram að dala. Um 40 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna og Fram­sóknar hafa yfir­gefið flokk­anna en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn heldur kjör­fylgi.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 6,6 pró­sent fylgi í nýj­ustu könnun Gallup. Flokk­ur­inn hefur aldrei mælst með lægra fylgi í könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mæld­ist með sjö pró­sent fylgi í febr­úar 2008 og svo 6,9 pró­sent í apríl 2016, í sama mán­uði og Panama­skjölin voru opin­beruð, en í þeim kom fram að þáver­andi for­maður flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, hefði átt aflands­fé­lagið Wintris. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra vegna máls­ins, sem leiddi til fjöl­menn­ustu mót­mæla Íslands­sög­unnar.

Framsókn féll líka tölu­vert í fylgi í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga, eftir að Sig­mundur Davíð og aðrir lyk­il­menn í flokknum um ára­bil yfir­gáfu hann og stofn­uðu Mið­flokk­inn. Þá mæld­ist flokk­ur­inn með með minnst 7,2 pró­sent fylgi 13. októ­ber 2017. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn náði þó vopnum sínum að ein­hverju leyti í kosn­ing­unum og fékk 10,7 pró­sent, sem var samt sem áður versta nið­ur­staða hans í sög­unni í Alþing­is­kosn­ingum.

Á þessu ári hefur fylgið fallið jafnt og þétt í hverri könn­un­inni á fætur annarri og náð áður­nefndum lág­punkti nú í könnun sem sýnir stöð­una í lok síð­ustu viku, þar sem fylgið mælist 6,6 pró­sent. Það þýðir að tæp­lega 40 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa yfir­gefið hann.

Vinstri græn hrapa en Sjálfstæðisflokkur er stöðugur

Vinstri græn, flokkur for­sæt­is­ráð­herr­ans Katrínar Jak­obs­dóttur, mælist nú með sitt lægsta fylgi frá því í árs­lok 2015. Alls segj­ast 10,3 pró­sent kjós­enda að þeir myndu kjósa flokk­inn í dag, en Vinstri græn fengu 16,9 pró­sent í kosn­ing­unum fyrir tæpu ári síðan. Það þýðir að fylgi flokks­ins hefur dalað um 40 pró­sent á innan við einu ári. Ef kosið yrði í dag myndu Vinstri græn verða fimmti stærsti flokkur lands­ins, en hann var sá næst stærsti eftir að talið var upp úr kjör­köss­unum í fyrra.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er sá eini af stjórn­ar­flokk­unum þremur sem mælist enn með kjör­fylgi sitt. Í nýj­ustu könnun Gallup segj­ast 24,6 pró­sent kjós­enda að þeir myndu kjósa flokk­inn, sem er að venju sá stjórn­mála­flokkur lands­ins sem mælist stærstur. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 25,3 pró­sent í kosn­ing­unum í októ­ber 2017.

Stjórnarandstaðan með mun meira fylgi en stjórnin

Þeir fimm flokkar sem mynda stjórn­ar­and­stöð­una mæl­ast nú með sam­tals 57,2 pró­senta fylgi en stjórn­ar­flokk­arnir með 41,5 pró­sent. Það er mik­ill við­­snún­­ingur frá því sem var í síð­­­ustu kosn­­ing­um, þegar stjórn­­­ar­­flokk­­arnir fengu 52,9 pró­­sent fylgi og 35 þing­­menn en stjórn­­­ar­and­­staðan 28.

Ef kosið yrði í dag myndi stjórn­­­ar­and­­staðan lík­­­ast til fá 36 þing­­menn en stjórn­­­ar­­flokk­­arnir þrír 27 , sem myndi ekki duga til að mynda meiri­hluta­­stjórn. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina fór í fyrsta sinn undir 50 pró­sent í könnun Gallup sem birt var í lok júlí og helst áfram þar í nýj­ustu könn­un­inni. Hann mælist nú 48,6 pró­sent og hefur aldrei mælst minni. Skömmu eftir að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur tók við mæld­ist stuðn­ingur við hana 74,1 pró­sent.

Viðreisn mælist stærri en Vinstri græn

Þrír flokkar sem eru í stjórn­ar­and­stöðu mæl­ast með meira fylgi í dag en þeir fengu í síð­ustu kosn­ingum. Þeir eru Sam­fylk­ing­in, Við­reisn og Píratar sem skil­greina sig sem frjáls­lynda miðju­flokka, þótt áherslu­munur sé á ýmsum málum þeirra á milli.

Sam­an­lagt fylgi þess­arrar blokkar mælist nú með 41,5 pró­sent fylgi, eða sama fylgi og stjórn­ar­flokk­arnir þrír. það var 28 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum og hefur því auk­ist um tæp­lega 50 pró­sent á síð­ustu ell­efu mán­uðum.

Fylgi flokka Sigurðar Inga Jóhannssonar og Loga Einarssonar hefur þróast með gerólíkum hætti frá því að þeir mættust í síðustu kappræðum fyrir síðustu kosningar.
Fylgi flokka Sigurðar Inga Jóhanns­sonar og Loga Ein­ars­sonar hefur þró­ast með ger­ó­líkum hætti frá því að þeir mætt­ust í síð­ustu kapp­ræðum fyrir síð­ustu kosn­ingar.

Sam­fylk­ingin er sá flokkur sem hefur vaxið mest sam­kvæmt könn­unum það sem af er kjör­tíma­bil­inu en fylgi hennar mælist nú 19,3 pró­sent aðra könn­un­ina í röð. Flokk­ur­inn fékk 12,1 pró­sent fylgi í kosn­ing­unum í fyrra og því hefur flokk­ur­inn aukið fylgi sitt um 60 pró­sent fylgi frá þeim tíma, sam­kvæmt könn­unum Gallup.

Píratar dala aðeins á milli kann­anna og mæl­ast nú með 11,5 pró­sent fylgi, sem er samt meira en flokk­ur­inn fékk í októ­ber 2017 þegar 9,2 pró­sent lands­manna kusu hann.

Viðreisn heldur áfram að styrkj­ast sam­kvæmt könn­unum og mælist nú með 10,7 pró­sent fylgi, sem er það mesta sem flokk­ur­inn hefur mælst með það sem af er kjör­tíma­bili. Flokk­ur­inn mælist nú stærri en Vinstri græn, og fjórði stærsti flokkur lands­ins, í fyrsta sinn. Viðreisn fékk 6,7 pró­sent atkvæða í þing­kosn­ing­unum í fyrra.

Miðflokkurinn tekur við sér

Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins, eru nær hvorum öðrum í fleiri málum en hinum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum. Báðir flokk­arnir mæl­ast með lægra fylgi en þeir fengu í kosn­ing­unum í fyrra.

Þá fékk Mið­flokk­ur­inn 10,9 pró­sent atkvæða og vann mik­inn kosn­ing­ar­sigur. Raunar var um að ræða besta árangur nýs fram­boðs í fyrstu kosn­ing­unum sem hann tók þátt í í Íslands­ög­unni.

Fylgi flokks­ins dal­aði í könn­unum framan af kjör­tíma­bili en tekið stökk upp á við að und­an­förnum og mælist nú 9,8 pró­sent. Það er mesta fylgi sem Mið­flokk­ur­inn hefur nokkru sinni mælst með í könnun hjá Gallup.

Flokkur fólks­ins komst nokkuð óvænt inn á þing í síð­ustu kosn­ingum, en flestar spár í aðdrag­anda kosn­ing­anna höfðu ekki gert ráð fyrir því að það myndi haf­ast. Þegar atkvæði voru talin kom þó í ljós að 6,9 pró­sent kjós­enda hafði kosið Flokk fólks­ins. Hann hefur aldrei náð þeim hæðum í könn­unum síðan og fylgi flokks­ins mælist nú 5,9 pró­sent.

Sam­an­lagt fylgi Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins í síð­ustu kosn­ingum var 17,8 pró­sent en er nú 15,7 pró­sent.

Frétta­skýr­ing­unni var breytt klukkan 10:22. 

Í upp­runa­legu útgáfu hennar stóð að stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina væri 38,6 pró­sent, en hann er 48,6 pró­sent. Um inn­slátt­ar­villu var að ræða. Beðist er afsök­unar á þessu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flokkurfólksins

Mest lesið undanfarið ár