Mynd: www.kremlin.ru

Milljón múslimar í Kína sendir í „endurmenntunarbúðir“

Sam­ein­uðu þjóð­irnar telja að um milljón múslimar hafi verið látnir í end­ur­mennt­un­ar­búðir í Kína á síð­ustu árum. Talið er að þús­undir þeirra séu í búð­unum hverju sinni og þeim sé haldið í þeim án nokk­urs dóms og án þess að hafa framið nokkurn glæp.

Kínversk stjórn­völd hafa nú við­ur­kennt að búðir, sem þau kalla sjálf­vilj­uga mennt­unar- og starfs­þjálf­un­ar­kjarna, séu til. Áður höfðu stjórn­völd neitað fyrir til­vist þeirra. Búðirnar eru ein­göngu fyrir múslima í Xinjiang (lesið Sinn Dsjang) hér­aði í Vestur-Kína og talið er að tugir slíkra búða séu til. Múslimum er haldið í búð­unum án nokk­urs dóms og án þess að hafa framið nokkurn glæp. Talið er að sumir þeirra séu teknir fyrir að læra arab­ísku eða lesa kór­an­inn, aðrir fyrir að hafa skegg eða fara í mosku til að biðja.

Í Xinjiang búa um tíu millj­ónir Úýgúr múslimar. Úýgúrar eru minni­hluta­hópur í Kína og búa að mestu leyti í Xinjiang hér­aði. Þrátt fyrir að í Kína búi um 1.4 millj­arður manna og Xinjiang sé stærsta hérað Kína, þá búa ein­ungis 24 millj­ónir í hér­að­inu, þar af tíu millj­ónir Úýgúr múslima. Héraðið er afar strjál­býlt og nátt­úran hrjóstug á svæð­inu.

Xinjiang er við landa­mæri Kasakstan, Kirgistan, Tadsjikistan, Pakistan og Indlands. Xinjiang er gríð­ar­lega stórt hérað, fimm sinnum stærra en Þýska­land, og hafa kín­versk stjórn­völd eytt miklu í fjár­fest­ingar til að byggja upp hér­aðið og hefur mik­ill fjöldi Han Kínverja flutt til hér­aðs­ins í kjöl­farið. Tungumál Úýgúra er líkt þeim málum sem töluð eru í Kirgistan og Tadsjikistan og því afar ólíkt mandarín kín­versku. Úýgúrar hafa einnig sterk menn­ing­ar­leg og sögu­leg tengsl við Mið-Asíu. Margir Úýgúrar vilja sjálf­stæði frá Kína og stofna sjálf­stæða ríkið Austur-Túrkistan eða Úýgúristan.

Úýgúrar og aðrir múslimar hafa sér­stak­lega verið færðir í búð­irnar sem um ræðir, auk þess hafa stjórn­völd rutt niður fjöl­mörgum moskum.

Réttlætt með vísan í hryðjuverkaárásir

Talið er að þús­undir múslima séu nú í búð­unum án nokk­urs dóms og án þess að hafa framið nokkurn glæp. Kínversk stjórn­völd við­ur­kenna að búð­irnar séu til en segja þær ekki vera búðir heldur skóla sem berj­ist gegn hryðju­verkum og trú­ar­legu ofstæki. Fólk sæki skól­ana sjálf­vilj­ugt til þess að leið­rétta hugsun sína. Í öllu falli eru búð­irnar, eða skól­arnir, þó ein­ungis fyrir múslim­ska minni­hluta­hópa.

Árið 2013 réð­ust íslamskir ofstæk­is­menn af Úýgúr upp­runa á gang­andi veg­far­endur á Torgi hins himneska friðar í Beijing og lét­ust tveir af sárum sínum. Árásin mark­aði tíma­mót í stefnu kín­verskra stjórn­valda gagn­vart Xinjiang hér­aði. Árið eftir réð­ust nokkrir Úýgúr múslimar á almenna borg­ara í borg­inni Kunming í Yunnan hér­aði og lét­ust 31 fórn­ar­lamb af sárum sínum. Auk þess hafa óeirðir brot­ist út í hér­að­inu þónokkrum sinnum síð­ustu ár og eru þessir atburðir not­aðir til að rétt­læta end­ur­mennt­un­ar­búð­irnar.

Ströng örygg­is­gæsla er í borgum Xinjiang, fjöl­margir lög­reglu­þjónar og eru eft­ir­lits­mynda­vélar á hverju horni. Jafn­framt hafa margir Úýgúrar sem flúið hafa frá Kína haldið því fram að raddir íbú­anna hafi verið teknar upp af yfir­völdum og and­lit þeirra skönnuð til þess að mynda­vélar geti greint hverjir segi hvað og við hverja þeir tali.

Milljón múslimum verið haldið í búðunum

Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa gefið út að áreið­an­legar heim­ildir séu fyrir því að kín­versk stjórn­völd hafi haldið einni milljón Úýgúr múslima í „end­ur­mennt­unar-búðum.“ Kínversk stjórn­völd segja að Xinjiang sé ógnað af öfga­fullum íslömskum sjálf­stæð­is­sinnum sem leggi á ráðin um hryðu­ju­verka­árásir. Búðunum hafi í kjöl­farið verið komið á í nafni bar­áttu gegn stjórn­mála­legu ofstæki og að koma á félags­legum stöð­ug­leika.

Blaða­menn BBC hafa rann­sakað málið og borið saman gervi­hnatt­ar­ljós­myndir af svæð­inu.

Gervi­hnatta­mynd­irnar sýna upp­bygg­ingu búð­anna víða um Xinjiang hérað. Búðirnar geta hýst allt frá nokkrum hund­ruð manns upp í þús­undir manna. Þær eru afgirtar með múr, sumar hafa einnig gadda­víra og jafn­vel varð­turna sem fylgj­ast með.

Frétta­menn BBC benda á að áður hafi kín­versk stjórn­völd neitað að búð­irnar væru til en núna væri frétta­mönn­unum veitt leyfi til að heim­sækja ákveðnar búðir. Skila­boðin séu þau að um sé að ræða skóla en ekki fang­elsi. Frétta­menn­irnir halda því þó fram að þeim hafi verið mein­aður aðgangur að öðrum búðum og aðeins verið sýndar þær búðir sem kín­versk stjórn­völd hafi viljað að þeir myndu sjá.

Ég hafði lélegan skiln­ing á lögum [rík­is­ins]. Ég varð fyrir áhrifum ofstækis og hryðju­verka. Lög­reglu­maður í þorp­inu mínu benti mér á að inn­rita mig í skól­ann og breyta hugs­un­ar­hætti mínum.

Í þeim búðum sem frétta­menn­irnir fengu aðgengi að voru „nem­end­urnir“ sýndir dans­andi, lær­andi og að spila tón­list. Einn nem­andi var spurður af frétta­manni BBC hvort það væri hans val að stunda nám við skól­ann. Nem­and­inn, maður á þrí­tugs­aldri, svar­aði því ját­andi. „Ég hafði lélegan skiln­ing á lögum [rík­is­ins]. Ég varð fyrir áhrifum ofstækis og hryðju­verka. Lög­reglu­maður í þorp­inu mínu benti mér á að inn­rita mig í skól­ann og breyta hugs­un­ar­hætti mínum.“

Í heimsókn fréttamanna BBC voru „nemendurnir“ brosandi og dansandi.
Í heim­sókn frétta­manna BBC voru „nem­end­urnir“ bros­andi og dans­andi.

Börn aðskilin frá foreldrum sínum

BBC hefur tekið fjöl­mörg við­töl við fólk sem hefur verið í búð­unum. Þau lýsa bar­smíðum, ströngu eft­ir­liti og aðskiln­aði frá fjöl­skyldum sínum. Þau segja jafn­framt að þeim hafi verið hótað að þau muni hljóta verra af tali þau við blaða­menn eða segi nokkuð nei­kvætt um búð­irnar. Einnig tóku frétta­menn BBC við­töl við for­eldra hverra börn hafa verið tekin af þeim og þau vita ekki hvar eru niður komin.

The New York Times telur að um sjö þús­und börn séu í búð­unum í borg­inni Kashgar ein­ungis. Sendi­herra Kína í Bret­landi svar­aði ásök­un­unum og sagði það vera rangt að börn í Xinjiang væru aðskilin frá for­eldrum sínum.

Frétta­menn Vice grófu upp opin­ber kín­versk gögn sem sýna að fjöldi „leik­skóla“ í Hotan, borg í Xinjiang sem talið er að börnum þeirra full­orðnu sem eru í búð­unum sé haldið, hefur marg­fald­ast.

Viðurkenna tilvist búðanna

Kín­verskir emb­ætt­is­menn segja að skól­arnir séu í raun for­varn­ar­að­gerð til að koma í veg fyrir að fólkið fremji glæpi. Búðirnar séu til þess að aðlaða ungt fólk aftur að sam­fé­lag­inu og nem­end­urnir hljóti þar að auki starfs­þjálfun, til að mynda að búa um rúm á hót­elum og klippa hár.

Í grein Alþýðu­blaðs­ins, kín­versks rík­is­fjöl­mið­ils, kemur fram að kín­versk stjórn­völd verji rétt borg­ara þeirra til trú­frelsis. Þá var gagn­rýni banda­rískra stjórn­mála­mann­anna varð­andi búð­irnar tekin fyrir og þeir sagðir lengi hafa breitt út óhróðri um Kína, jafn­framt er því haldið fram að orð þeirra séu afskipti af inn­an­rík­is­málum lands­ins. Í grein­inni kemur fram að í Xinjiang séu 24.800 staðir ætl­aðir trú­ar­legum athöfnum, til að mynda moskur, kirkjur og hof. Þar á meðal séu 24.400 moskur sem sé „tvö­falt hærra hlut­fall en í Banda­ríkj­unum, Bret­landi, Þýska­landi og Frakk­landi sam­an­lagt. Það er ein moska á hverja 530 múslima.“

Sameinuðu þjóðirnar telja að um milljón múslimar hafi verið neyddir í búðir sem þessar.
Sam­ein­uðu þjóð­irnar telja að um milljón múslimar hafi verið neyddir í búðir sem þessar.

Kínversk stjórn­völd segja að „mennt­unar- og þjálf­un­ar­kjarnar Xinjiang“ séu við­leitni Kína til þess að verja mann­rétt­indi borg­ara gegn ógnum og ofstæki. Frá því að „mið­stöðv­unum“ var komið á fyrir þremur árum hafi engin ofbeld­is­full hryðju­verka­árás átt sér stað í Xinjiang.

Kínversk stjórn­völd njóta stuðn­ings Kambódíu, Norður-Kóreu og Mjanmar varð­andi búð­irnar. Þau ríki segja að búð­irnar séu frá­bær blanda bar­áttu gegn hryðju­verkum og verndun mann­rétt­inda og eigi stuðn­ing og lof skilið. Jafn­framt telji serbnesk, sómölsk og nepölsk stjórn­völd að rangt sé hjá vest­rænum miðlum að kalla búð­irnar „end­ur­mennt­un­ar­búðir.“

Kínversk stjórnvöld segja að búðirnar séu skólar sem múslimar gangi í sjálfviljugir.
Kínversk stjórn­völd segja að búð­irnar séu skólar sem múslimar gangi í sjálf­vilj­ugir.

Alls segj­ast kín­versk stjórn­völd hafa sam­þykkt 284 ráð­legg­ingar, það er 82 pró­sent allra ráð­legg­inga Mann­rétta­ráðs SÞ, í mars á þessu ári sem sé með því hærra sem ger­ist í heim­inum. Hins vegar hafi Banda­ríkin ákveðið að draga sig úr Mann­réttinda­ráð­inu og reki lest­ina hvað varði mann­rétt­indi borg­ara sinna.

Kínversk stjórn­völd hafa gefið út hvít­bók um Xinjiang hérað, að því er kemur fram í Alþýðu­blað­inu fyrr­nefnda. Þar kemur fram að Xinjiang og íbúar þess séu órjúf­an­legur hluti af Kína og að óvin­vætt öfl innan og utan Kína, sér­stak­lega aðskiln­að­ar­sinnar og trú­ar­legir ofstæk­is­menn, sem vilji skipta Kína upp með því að afskræma sög­una og stað­reyndir.

Íslam er hvorki upp­runa­leg né eina trú Úýgúr fólks­ins. Íslam hefur fest rætur í kín­verskri menn­ingu og þró­ast veru­lega í Kína.

„Íslam er hvorki upp­runa­leg né eina trú Úýgúr fólks­ins. Íslam hefur fest rætur í kín­verskri menn­ingu og þró­ast veru­lega í Kína,“ segir enn fremur í frétt Alþýðu­blaðs­ins. Þá kemur fram að ólga í trú­ar­legu ofstæki víða um heim hafi valdið auknu trú­ar­legu ofstæki innan Xinjiang sem hafi aukið til­vik ofbeldis og ógnar.

Eftirlit hert í Xinjiang héraði

Eftirlit hefur verið hert jafnt og þétt í hér­að­inu síð­ustu ár. Nú er svo búið að eft­ir­lits­mynda­vélum sem geta borið kennsl á and­lit ein­stak­linga hefur verið komið upp á götu­hornum, að því kemur fram í frétt BBC. Í frétt­inni er haldið fram að löng skegg séu bönnuð ásamt slæðum og refs­ingar séu við því að gefa börnum nöfn sem eru af trú­ar­legum toga.

Úýgúr múslimar þurfa að búa við ferða­hömlur, bæði innan Xinjiang hér­aðs og utan. Fregnir hafa borist af því að yfir­völd hafi gert vega­bréf ein­stak­linga af Úýgúr upp­runa upp­tæk. Opin­berum starfs­mönnum sem einnig eru Úýgúr múslimar sé óleyfi­legt að iðka trú sína, þeim sé bannað að fara í moskur og að fasta á meðan rama­dan, föstu­mán­uði, stendur.

Samkvæmt Mann­rétt­inda­vakt­inni (Human Rights Watch) er tækni til eft­ir­lits notuð til að fylgj­ast grannt með almennum borg­urum. Samtökin saka kín­versk stjórn­völd til að mynda um að nýta sér snjall­símafor­rit til þess að fylgj­ast með borg­urum sínum í Xinjiang hér­aði.

Alþjóðasamfélagið fylgist með

Tuttugu og tvö ríki, Ísland þar á meðal, und­ir­rit­uðu skrif­lega yfir­lýs­ingu fyrr í mán­uð­inum um stöðu mann­rétt­inda í Xinjiang og sendu til for­seta mann­réttinda­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna. Mann­rétt­inda­vaktin segir að yfir­lýs­ing hinna tutt­ugu og tveggja ríkja sé for­dæm­is­laus.

Mike Pompeo, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, og Mike Pence, vara­for­seti Banda­ríkj­anna, hafa gagn­rýnt stefnu kín­verskra stjórn­valda í Xinjiang. Pompeo hefur kallað aðstæður Úýgúr múslima í Xinjiang „smán­ar­blett ald­ar­innar“ ásamt því að ásaka kín­versk stjórn­völd um að vilja ráða yfir lífum og sálum kín­versks almenn­ings. Auk þess sagði hann að mál­efni Úýgúr fólks­ins væri „ein mesta mann­rétt­inda­krísa okkar tíma.“ Pence segir fólkið í búð­unum þurfa að sitja undir sífelldum heila­þvætti.

Kínversk stjórnvöld segja SÞ velkomin til Xinjiang

Kínversk stjórn­völd segja Michelle Bachelet, mann­rétt­inda­stjóra Sam­ein­uðu þjóð­anna, vel­komna í heim­sókn til Xinjiang. Bachelet hefur löngum barist fyrir því að Sam­ein­uðu þjóð­irnar fái að rann­saka aðstæður í Xinjiang og ásak­anir um mann­hvörf og ger­ræð­is­legt varð­hald á borg­urum.

Alls hafa 37 lönd, til að mynda Pakistan og Sádí Arabía, lýst yfir stuðn­ingi við Kína og segja ásak­an­irnar vera óhróður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár