Mynd: Verkís

Vegagerðin eigi að útfæra valkost sem „fellur betur að framtíðarsýn borgarinnar“

Skipu­lags­stofnun segir að í umhverf­is­mats­skýrslu frá Vega­gerð­inni vegna Sæbraut­ar­stokks ætti að teikna upp val­kost sem falli betur að fram­tíð­ar­sýn Reykja­vík­ur­borgar um þróun borg­ar­innar og ekki úti­loka val­kosti þó þeir hafi áhrif á umferð­ar­flæði.

Skipu­lags­stofnun telur að Vega­gerðin eigi, í sam­starfi við Reykja­vík­ur­borg, að útfæra annan val­kost eða val­kosti um umferð­ar­mann­virki í tengslum við gerð Sæbraut­ar­stokks sem „fellur betur að fram­tíð­ar­sýn borg­ar­innar um þróun byggðar“ og segir mik­il­vægt að „við útfærslu slíkra val­kosta verði horft til þess að tak­marka umfang mann­virkja og áhrif á aðliggj­andi byggð, m.a. með því að gera ráð fyrir lægri hönn­un­ar­hraða og umferð­ar­magni“.

„Gæta skal þess að úti­loka ekki val­kosti á grund­velli þess að þeir leiða til minni umferð­ar­rýmdar eða umferð­ar­flæðis,“ segir í áliti Skipu­lags­stofn­unar um mats­á­ætlun Vega­gerð­innar vegna Sæbraut­ar­stokks, sem birt var á vef stofn­un­ar­innar á mið­viku­dag.

Eins og Kjarninn sagði frá nýlega sendi emb­ætti skipu­lags­full­trúa Reykja­vík­ur­borgar inn umsögn við mats­á­ætlun Vega­gerð­ar­innar, þar sem borgin kall­aði sér­stak­lega eftir því að til­laga að umfangs­minni gatna­mótum Sæbrautar og Skeið­ar­vogs/Klepps­mýr­ar­vegs yrði skoðuð í umhverf­is­mats­skýrslu til sam­an­burðar við einu til­lög­una sem lögð var fram í mats­á­ætlun Vega­gerð­ar­innar, sem er und­an­fari umhverf­is­mats þess­arar stór­fram­kvæmdar.

Í umsögn skipu­lags­full­trúa borg­ar­innar var hnykkt á því að sam­kvæmt aðal­skipu­lagi Reykja­vík­ur­borgar sé mark­miðið með því að færa akvegi ofan í jörð­ina það að bæta umhverf­is­gæði aðliggj­andi byggðar og tengja betur saman hverfi sem eru aðskilin með umferð­ar­þungum stofn­brautum – en ekki að auka þjón­ustu­stig fyrir bíla­um­ferð.

„Sá val­kostur um útfærslu, sér­stak­lega gatna­mót Skeið­ar­vogs og Sæbraut­ar, sem skil­greindur er í mats­á­ætlun virð­ist ekki falla vel að þessum mark­miðum og mik­il­vægt er að mótuð verði önnur útfærsla sem verður til sam­an­burðar í umhverf­is­mat­inu, þar sem gert er ráð fyrir umfangs­minni gatna­mót­u­m,“ sagði í umsögn skipu­lags­full­trúa borg­ar­innar.

Punktgatnamót séu umfangsminnsta leiðin

Í svari Vega­gerð­ar­innar við þess­ari athuga­semd frá Reykja­vík­ur­borg segir að ef tryggja eigi teng­ingar frá Sæbraut í stokk upp á Klepps­mýr­ar­veg/Skeið­ar­vog og frjáls flæði umferðar á Sæbraut, sem sé ein af meg­in­for­sendum verk­efn­is­ins, þá sé „umfangs­minnsta teg­und gatna­móta, punktagatna­mót sem sett hafa verið fram í frum­drögum.“

Vega­gerðin segir að á for­hönn­un­ar­stigi verði lögð áhersla á að minnka umfang umræddra gatna­móta og segir að skoðað verði að lækka hönn­un­ar­hraða auk þess sem mögu­lega verði hólf milli stokka fjar­lægð, til að minnka umfang.

„Vega­gerðin bendir á að ekki megi ganga of langt í að minnka umfang gatna­móta þar sem slíkt mun leiða til þess að umferð leiti inn í nær­liggj­andi hverfi. Í mati á umhverf­is­á­hrifum verður gerð betri grein fyrir þeim val­kostum og grund­velli fyrir því vali sem þegar hefur farið fram,“ segir í svari Vega­gerð­ar­innar.

Vega­gerðin vekur einnig athygli á því að í sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins frá 2019 hafi Sæbraut­ar­stokknum verið lýst með ákveðnum hætti, sem einnig ætti að tengj­ast lýs­ingu á mark­miðum fram­kvæmd­ar­innar.

Í sam­göngusátt­mál­anum segir meðal ann­ars að Sæbraut­ar­stokkur bæti sam­göngur í og við lyk­il­punkt í sam­göngu­kerf­inu, bæti flæði vöru­flutn­inga við Sunda­höfn og að stokk­ur­inn sé ein for­senda hug­mynda um Sunda­braut.

Vega­gerðin horfir þannig til þess að Sæbraut­ar­stokknum sé ætlað rýmra hlut­verk en ein­ungis þau sem skil­greind eru í aðal­skipu­lagi borg­ar­innar, að bæta gæði nær­liggj­andi byggðar og tengja saman byggða­kjarna.

Ekkert samkomulag liggur fyrir varðandi byggð ofan á stokknum

Í svari við frek­ari athuga­semdum borg­ar­innar sem lúta að umfangi stokks­ins og tengdra umferð­ar­mann­virkja vekur Vega­gerðin svo athygli á því að það liggi ekki enn fyrir sam­komu­lag varð­andi byggð ofan á og í kringum stokk­inn, sem eðli­lega komi til með að hafa áhrif á útfærslu hans.

Vega­gerðin segir að hæð­ar­lega stokks­ins muni verða útfærð í sam­vinnu við borg­ina, auk þess sem fyr­ir­komu­lag gatna og byggðar við og ofan á stokknum verði skipu­lagt í for­hönnun og að nánar verði gerð grein fyrir því í mati í umhverf­is­mats­skýrslu verk­efn­is­ins.

Umferðarspár og -áætlanir mjög á reiki

Skipu­lags­stofnun segir einnig í áliti sínu að í vænt­an­legri umhverf­is­mats­skýrslu þurfi að koma fram „skýrar for­sendur“ fyrir umferð­ar­spá sem geri ráð fyrir því að 50.000 bílar á sól­ar­hring fari um svæðið árið 2030, en á því byggir hönnun stokks­ins eins og hún hefur verið sett fram til þessa.

Í umsögn skipu­lags­full­trúa Reykja­vík­ur­borgar var gagn­rýnt að þessar umferð­ar­tölur gæfu sér að umferð myndi aukast bæði umfram vænta íbúa­fjölgun og fjölgun starfa, eða um 2 pró­sent á ári næstu 20 árin. „Það er mjög umdeil­an­legt að gera ráð fyrir slíku, ekki síst í ljósi þess að öll opin­ber og sam­þykkt mark­mið snúa að því að draga úr bíl­um­ferð, í það minnsta pr. íbúa og að breyta ferða­venjum til fram­tíðar lit­ið,“ sagði í umsögn­inni frá emb­ætti skipu­lags­full­trúa borg­ar­innar, þar sem því var velt upp hvort skil­greina mætti val­kost sem gerði ráð fyrir 40 þús­und bíla umferð á dag, en ekki 50 þús­und.

Í svari Vega­gerð­ar­innar við þess­ari athuga­semd borg­ar­innar segir að í for­hönnun verks­ins, sam­hliða mati á umhverf­is­á­hrifum, verði haldið áfram að vinna umferð­ar­grein­ingar fyrir Sæbraut­ar­stokk sem byggi á for­sendum aðal­skipu­lags Reykja­víkur til 2040, og að gerð verði grein fyrir þeim í umhverf­is­mats­skýrslu.

Vega­gerðin lætur ýmis gögn fylgja með svörum sínum við athuga­semdum um mats­á­ætl­un­ina, meðal ann­ars skýrslu Verkís sem snertir auk ann­ars á væntri þróun umferðar á Sæbraut­inni. Þar kemur fram kemur að afar mis­vísandi nið­ur­stöður hafi feng­ist á und­an­förnum árum út úr mis­mun­andi umferð­ar­lík­önum sem sett hafi verið upp.

Í einni spá frá Eflu hafi verið búist við 42.000 bílum á sól­ar­hring á Sæbraut við Voga­byggð árið 2030, en í annarri spá Mannvits hafi því svo verið spáð að 60.800 bílar færu um sama svæðið á degi hverjum árið 2034. Látið er fylgja með það þyki óvenju mikil umferð­ar­aukn­ing og verið sé að stilla líkanið betur af.

Í skýrsl­unni frá Verkís segir að ákveðið hafi verið í sam­ráði við Vega­gerð­ina að miða við 50 þús­und öku­tæki sem fram­tíð­ar­um­ferð á þessu svæði, og segir að það passi „ágæt­lega við 2% aukn­ingu á ári næstu 20 árin sem er í sam­ræmi við mark­mið aðal­skipu­lags Reykja­víkur 2010-2030.“

Í þessum orðum virð­ist þó mögu­lega gæta ein­hvers mis­skiln­ings, því að mark­mið borg­ar­innar sam­kvæmt aðal­skipu­lag­inu til 2030 voru að með breyttum ferða­venjum myndi bíla­um­ferðin á göt­unum ein­ungis vaxa um alls 2 pró­sent til árs­ins 2030 (sem er ansi langt frá því að vera 2 pró­sent vöxtur á ári hverju).

Útskýra þurfi áhrif framkvæmda á nærliggjandi byggð

Skipu­lags­stofnun segir að öðru leyti í áliti sínu að gera þurfi grein fyrir ýmsu sem teng­ist áhrifum vænt­an­legs Sæbraut­ar­stokks og fram­kvæmdum við hann í umhverf­is­mats­skýrslu. Til dæmis þurfi að gera grein fyrir mengun við munna stokks­ins og hvernig staðið verði að loft­ræst­ingu hans. Einnig þurfi að gera grein fyrir fleygun og spreng­ingum sem ráð­ast eigi í við fram­kvæmd­irnar og mögu­leg áhrif þeirra í nær­liggj­andi byggð í Voga­hverfi.

„Þá þarf í umhverf­is­mats­skýrslu að fjalla ítar­lega um hávaða, bæði á fram­kvæmda­tíma og vegna umferðar að loknum fram­kvæmdum og birta dyn­línu­kort sem sýnir hljóð­stig í aðliggj­andi hverfum fyrir og eftir fram­kvæmdir. Gera þarf grein fyrir hugs­an­legum mót­væg­is­að­gerðum ef hávaði frá umferð fer yfir við­mið­un­ar­mörk reglu­gerðar um hávaða varð­andi umferð öku­tækja,“ segir einnig í áliti stofn­un­ar­innar.

Mótvægisaðgerðir mögulega nauðsynlegar vegna veggverks í Dugguvogi

Þá er vikið að því að í umhverf­is­mats­skýrslu þurfi að fjalla um og til­greina götu­heiti og hús­númer þeirra húsa sem eiga að víkja fyrir fram­kvæmd­inni, en í mats­á­ætlun kom fram að ein­hver hús sem í dag standa þétt upp við Sæbraut­ina þyrftu að víkja þegar fram­kvæmdir við stokk­inn fara af stað.

Utan á Dugguvogi 42 er veggverk eftir Gerði Helgadóttur, sem Minjastofnun segir að gefa þurfi sérstakan gaum í komandi framkvæmdum.
Utan á Duggu­vogi 42 er vegg­verk eftir Gerði Helga­dóttur, sem Minja­stofnun segir að gefa þurfi sér­stakan gaum í kom­andi fram­kvæmdum.

Skipu­lags­stofnun segir að það þurfi að huga að menn­ing­arminjum og gera grein fyrir hugs­an­legum mót­væg­is­að­gerðum vegna þeirra. Stofn­unin minn­ist sér­stak­lega á lág­mynd eftir Gerði Helga­dóttur sem prýðir hús sem stendur við Dugguvog 42.

Minja­stofnun vakti athygli á því í umsögn sinni að húsið hefði mikið varð­veislu­gildi vegna vegg­mynd­ar­innar og að ráð­ast þyrfti í mögu­legar mót­væg­is­að­gerðir þegar fram­kvæmdir hefj­ast, í sam­starfi við Gerð­ar­safn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár