Mynd: Birgir Þór Harðarson

Nýskráning dísil- og bensínbíla verði ólögmæt eftir 2030 á Íslandi

Rík­is­stjórnin kynnti metn­að­ar­fulla áætlun í loft­lags­málum í dag sem gerir ráð fyrir að Ísland geti staðið við mark­mið Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins og orðið kolefn­is­hlut­laust. Því verður náð með orku­skiptum í sam­göngum og kolefn­is­bind­ingu.

Samkvæmt aðgerð­ar­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í loft­lags­málum til árs­ins 2030 á ráð­ast í orku­skipti í sam­göngum, með sér­stakri áherslu á raf­væð­ingu í vega­kerf­inu. Þá verður ráð­ist í átak í kolefn­is­bind­ingu þar sem skóg­rækt og land­græðsla verða í lyk­il­hlut­verki og mark­visst dregið úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda með end­ur­heimt vot­lendis. Áætlunin sam­anstendur af alls 34 aðgerðum á sviðum sem snerta mála­flokka alls sjö ráðu­neyta, en verk­efna­stjórnin sem vann aðgerð­ar­á­ætl­un­ina var með full­trúa úr hverju þeirra inn­an­borðs. Aðgerð­irnar eru stjórn­valds­að­gerðir, svo sem reglu­setn­ing, hag­rænar aðgerðir, fjár­mögnuð verk­efni eða styrkir af hálfu rík­is­valds­ins.

Mark­miðið með áætl­un­inni, sem var kynnt í Aust­ur­bæj­ar­skóla í dag, er að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og stuðla að auk­inni kolefn­is­bind­ingu þannig að Ísland geti staðið við mark­mið Par­ís­ar­samn­ings­ins til 2030 og náð mark­miðum rík­is­stjórn­ar­innar um kolefn­is­hlut­leysi árið 2040.

Áætlunin sem kynnt var í dag er fyrsta útgáfa aðgerð­ar­á­ætl­un­ar­innar. Sú næsta mun líta dags­ins ljós strax á næsta ári.

6,8 milljarða kostnaður á næstu fimm árum

Til þess að ná skamm­tíma­mark­miðum áætl­un­ar­innar verður 6,8 millj­örðum króna varið í valdar aðgerðir á næstu fimm árum. Samkvæmt áætl­un­inni eru stærstu tæki­færi Íslend­inga til að ná skuld­bind­ing­unum Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins bundin í því að skipta olíu út fyrir umhverf­is­vænni orku­gjafa.

Sjö ráðherrar kynntu aðgerðaráætlunina í Austurbæjarskóla í dag.
Sjö ráð­herrar kynntu aðgerð­ar­á­ætl­un­ina í Aust­ur­bæj­ar­skóla í dag.

Í sam­an­tekt á nið­ur­stöðum verk­efna­stjórn­ar­innar segir að til að nýta þetta tæki­færi verði meðal ann­ars veru­lega „aukið við fjár­fest­ingar og inn­viði vegna raf­væð­ingar í sam­göngum en áætlað er að verja 1,5 millj­arði króna á næstu fimm árum til upp­bygg­ingar inn­viða fyrir raf­bíla, raf­væð­ingu hafna og fleiri nauð­syn­legra aðgerða í orku­skiptum hér á landi. Íviln­unum fyrir raf­bíla og aðra vist­hæfa bíla verður við­haldið og nýjum íviln­unum komið á vegna almenn­ings­vagna, drátt­ar­véla og fleiri þyngri öku­tækja. Hvatar til að fjár­festa í öku­tækjum sem losa lít­inn koltví­sýr­ing verða efldir. Kolefn­is­gjald verður áfram hækkað og almenn­ings­sam­göngur styrktar í sam­ræmi við sam­göngu­á­ætlun.“

Alls er um 34 skilgreindar aðgerðir að ræða.
Alls er um 34 skil­greindar aðgerðir að ræða.

Auk þess stendur til, í fyrsta sinn, að inn­leiða þá stefnu að bílar sem ganga fyrir jarð­efna­elds­neyti verði ólög­legir frá og með árinu 2030, eða eftir rúm ell­efu ár. Þar sé verið að fylgja for­dæmi nágranna­ríkja á borð við Noreg, Frakk­land og Bretland. Tekið er fram að gætt verði sér­stak­lega að hugs­an­legum und­an­þágum, til dæmis á stöðum þar sem erfitt kann að vera að nota aðra bíla en þá sem ganga fyrir bens­íni og dísil.

Rafbílum og tengit­vinn­bílum hefur fjölgað mjög hratt á Íslandi á síð­ustu árum. Samkvæmt upp­lýs­ingum á vef Orku nátt­úr­unnar voru 94 raf­bílar og þrír tengit­vinn­bílar skráðir á Íslandi í apríl 2014. Þeir eru nú sam­tals 7.687. Uppi­staðan í þeim fjölda eru þó tengit­vinn­bílar (5.326), sem hafa bæði raf­hreyfil og bensín- eða dísil­vél sem aflgjafa. Nýir slíkir bílar verða vænt­an­lega einnig ólög­legir hér­lendis eftir 2030. Skráðir raf­bílar á Íslandi eru í dag 2.361.

Endurheimt votlendis

Til stendur að nota um fjóra millj­arða króna á næstu fimm árum í að end­ur­heimta vot­lendi, birki­skóga, kjarr­lendi, stöðva jarð­vegseyð­ingu og stuðla að frek­ari land­græðslu og nýskóg­rækt til að vinna sér­stak­lega að því mark­miði að gera Ísland kolefn­is­hlut­laust árið 2040.

Þá verður um 500 millj­ónum króna varið til nýsköp­unar vegna lofts­lags­mála og verður sér­stakur Lofts­lags­sjóður stofn­aður til að halda utan um þau verk­efni. Um 800 millj­ónum króna verður varið í marg­vís­legar aðgerðir, svo sem rann­sóknir á súrnun sjávar og aðlögun að lofts­lags­breyt­ingum, bætt kolefn­is­bók­hald, alþjóð­legt starf og fræðslu.

Í nið­ur­stöðu­sam­an­tekt­inni segir að hluti aðgerð­anna séu þegar komnar í vinnslu og að aðrar séu nán­ast full­mót­aðar. Sumar þeirra þurfi þó á sam­ráði að halda við aðila utan stjórn­kerfis og á eftir að útfæra nánar. „Áætlunin verður sett í sam­ráðs­gátt Stjórn­ar­ráðs­ins til umsagnar og upp­færð í ljósi ábend­inga, auk þess sem boðið verður til sam­ráðs um mótun ein­stakra aðgerða með full­trúum atvinnu­lífs, félaga­sam­taka, sveit­ar­fé­laga og ann­arra. Þetta er því fyrsta útgáfa áætl­un­ar­innar. Strax á næsta ári lítur önnur útgáfa dags­ins ljós. Fram­lögin eru tryggð í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar 2019-2023, en verða nánar útfærð í frek­ari mótun aðgerða. “

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár