Frá Waldorfskólanum í Lækjarbotnum. Mynd úr safni.
Frá Waldorfskólanum í Lækj­ar­botnum. Mynd úr safni. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Leik- og grunnskóli í Kópavogi kærir tvöföldun Suðurlandsvegar

Waldorfskólinn í Lækj­ar­botnum hefur kært tvö­földun Suð­ur­lands­vegar til úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála. For­svars­menn skól­ans telja sig ekki hafa neina trygg­ingu fyrir því að teng­ingar skól­ans við tvö­faldan veg­inn verði við­un­andi.

Waldorfskólinn í Lækj­ar­botnum lagði undir lok nóv­em­ber­mán­aðar fram kæru til úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála, þar sem farið er fram á að útgefið fram­kvæmda­leyfi Kópa­vogs­bæjar fyrir tvö­földun Suð­ur­lands­vegar á milli Fossa­valla og Lög­bergs­brekku verði fellt úr gildi og að fram­kvæmdir við verkið, sem eru á fyrstu metr­unum, verði stöðv­aðar.

Ástæðan fyrir kærunni er helst sú að ekki er enn búið að full­móta hvernig tengja skuli skól­ann við tvö­fald­aðan Suð­ur­lands­veg­inn fyrir neðan Lög­bergs­brekku, en Vega­gerðin hefur þó sett fram til­lögu um gerð nýs hlið­ar­vegar sem tengja á skól­ann niður að Lækj­ar­botna­vegi, sem yrði þá teng­ing skól­ans inn á Suð­ur­lands­veg um gatna­mót við Geirland.

For­svars­menn skól­ans telja sig þrátt fyrir það ekki hafa neitt fast í hendi um að ráð­ist verði í þá fram­kvæmd, né þá hvenær ráð­ist verði í hana, enda ekki búið að gefa út fram­kvæmda­leyfi.

Þeir sjá því fram á að akst­ursleiðir til og frá skól­anum leng­ist tölu­vert, að minnsta kosti um ein­hvern tíma, þar sem ein­ungis hægri beygjur verði mögu­legar til og frá skól­anum eftir að búið verður að aðskilja akst­ur­stefnur á Suð­ur­lands­veg­inum. Þá þyrftu þeir sem eru að fara frá Waldorfskólanum í átt til höf­uð­borg­ar­innar að keyra upp að Blá­fjalla­af­leggjara og snúa þar við.

Samkvæmt svörum frá Vega­gerð­inni við fyr­ir­spurn Kjarnans hefur kæran ekki haft áhrif á fram­kvæmd­ina að svo komnu máli, en hún er til athug­unar hjá kæru­nefnd­inni og nið­ur­stöð­unnar beðið.

Í svari Vega­gerð­ar­innar er þess einnig getið að fram­kvæmda­leyfið sem kært hefur verið tak­mark­ist við tvö­földun veg­ar­ins, en að veg­ur­inn sjálfur verð ekki tek­inn í notkun fyrr en búið er að ljúka við seinni hluta fram­kvæmd­ar­innar ásamt gatna­móta­lausnum sem honum fylgja.

Aðgengi Waldorfskólans og sum­ar­húsa­byggðar í Lækj­ar­botnum, sem Vega­gerðin segir að sé í dag „algjör­lega óásætt­an­legt út frá örygg­is­sjón­ar­miðum,“ verði því ótruflað á fram­kvæmda­tíma þeirrar fram­kvæmdar sem hafin er, og kærð hefur verið.

Hliðarvegur „óþægilega nærri“ friðlýstu svæði

Samkvæmt fyr­ir­liggj­andi hug­myndum Vega­gerð­ar­innar er ráð­gert að nýr hlið­ar­vegur, sem myndi leysa aðgangs­mál skól­ans, fari um við­kvæm svæði sem ekki voru tekin fyrir í umhverf­is­mati vegna tvö­föld­unar Suð­ur­lands­vegar í heild er það fór fram árið 2009.

Skipu­lags­stofnun hefur nýlega gefið út álit þess efnis að hlið­ar­veg­ur­inn þurfi ekki að fara í gegnum umhverf­is­mat, en skól­inn seg­ist þrátt fyrir það, í kæru sinni til úrskurð­ar­nefndar, efast um að það reyn­ist auð­velt fyrir Vega­gerð­ina að fá leyfi til þess að byggja hlið­ar­veg­inn, sem áætlað er að liggi við hlið frið­lýsta nátt­úru­vætt­is­ins Trölla­barna í Lækj­ar­botnum.

Hið minnsta liggi engin trygg­ing fyrir því að hann verði byggður á þessum tíma­punkti.

Trölla­börn voru frið­lýst árið 1983. Svæðið liggur upp við Suð­ur­lands­veg og ein­kenn­ist af sér­kenni­legum hraun­drýlum, sem eitt sinn voru notuð sem fjár­skýli og jafn­vel sem sælu­hús, að því er segir á vef Umhverf­is­stofn­unar.

Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands, sem skil­aði umsögn til Skipu­lags­stofn­unar vegna fyr­ir­hug­aðrar vega­gerðar, segir að áætluð lega hlið­ar­veg­ar­ins sé „óþægi­lega nærri“ frið­lýsta svæð­inu. Í umsögn stofn­un­ar­innar segir enn­fremur að nú þegar liggi akvegir alveg að Trölla­bornum að bæði norðan- og aust­an­verðu og að með fyr­ir­hugðum hlið­ar­vegi yrðu „bíl­vegir allt umhverfis frið­aða svæðið, mjög nálægt mörkum þess og í raun innan marks þess sem æski­legt hefði verið að skil­greina sem örygg­is­svæði fyrir verndun jarð­minj­anna.“

Hér er teikning af þeim hliðarvegi sem Vegagerðin hefur lagt til.
Hér er teikn­ing af þeim hlið­ar­vegi sem Vega­gerðin hefur lagt til.

Mat stofn­un­ar­innar er að vert væri að kanna hvort önnur útfærsla vegna aðgeng­is­mála Waldorfskólans væri ekki hent­ugri, til að „þrengja ekki meir að Trölla­börnum.“ Samkvæmt svari Vega­gerð­ar­innar við athuga­semdum sem bár­ust Skipu­lags­stofnun er þetta þó enn talin fýsi­leg­asta teng­ing Waldorfskólans við Suð­ur­lands­veg, ef farið verði í nýja vega­gerð.

Skipu­lags­stofnun lét þess getið í áliti sínu að hún teldi annan kost betri en þann sem álitið var unnið um. Samkvæmt svari frá Vega­gerð­inni til Kjarnans felur sá kostur í sér að stuttur veg­ar­bútur verði lagður frá afleggjar­anum að Waldorfskólanum inn á „mal­ar­slóða“ sem fyrir er á svæð­inu og liggur niður í Lækj­ar­botna „Þessi leið er í raun varla raun­hæf fyrir skól­ann þar sem hún er illa greið­fær og stenst ekki örygg­is­kröfur,“ segir í svari Vega­gerð­ar­innar.

Tröllabörnum var ekki gefið mikið svigrúm við friðlýsinguna árið 1983, að mati Náttúrufræðistofnunar.
Trölla­börnum var ekki gefið mikið svig­rúm við frið­lýs­ing­una árið 1983, að mati Nátt­úru­fræði­stofn­unar.

Í kæru Waldorfskólans til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar er þess getið að það sé óút­fært hver skuli sinna vetr­ar­þjón­ustu á fyr­ir­hug­uðum hlið­ar­vegi, en skól­inn sinnir sjálfur snjó­mokstri á afleggjar­anum sem í dag liggur að skól­anum. Með lengri vegi myndi kostn­aður skól­ans við vetr­ar­þjón­ust­una að lík­indum aukast, nema veg­ur­inn yrði skil­greindur sem hér­aðs­vegur.

Hildur Mar­grét­ar­dóttir skóla­stjóri Waldorfskólans segir við Kjarnann að ekk­ert sé í hendi um að svo verði, né eins og áður segir, að hlið­ar­veg­ur­inn verði byggður. Hún seg­ist helst hrædd um að það sem bíði þeirra sem starfa og stunda nám í skól­anum verði að þurfa taka á sig auka­krók til að kom­ast frá vinnu og til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Að minnsta kosti sjö kílómetra krókur á leið heim

Ef eng­inn nýr hlið­ar­vegur verður kom­inn til sög­unnar þegar Suð­ur­lands­veg­ur­inn verður orð­inn að 2+1 vegi á þessum kafla munu þeir sem eru á leið frá Waldorfskóla og í höf­uð­borg­ina þurfa að leggja á sig krók upp að Blá­fjalla­af­leggjara, alls um sjö kíló­metra, til þess að snúa við. Ekki verður lengur hægt að beygja til vinstri inn á Suð­ur­lands­veg frá afleggjara skól­ans.

Að sama skapi þyrftu þeir sem koma að skól­anum úr hinni átt­inni, eða frá Hvera­gerði og nágrenni, að aka lang­leið­ina að Geir­landi og snúa þar við áður en þeir keyra til baka til þess að taka beygju til hægri að skól­anum.

Starfs­fólk og nem­endur við leik- og grunn­skóla Waldorfskólans í Lækj­ar­botnum eru yfir 100 tals­ins og í kæru skól­ans til úrskurð­ar­nefndar segir að auk þeirra séu birgjar á ferð­inni með vörur til skól­ans flesta daga. Í kæru skól­ans segir að Vega­gerðin hafi komið fram af „miklu skeyt­ing­ar­leysi“ með því að hafa „lítt sinnt sam­ráði“ við skól­ann er verið var að vinna að hönnun þessa kafla Suð­ur­lands­vegar og lausna sem varða teng­ingu skól­ans.

Bréf frá börnum til bæjaryfirvalda og ráðherra

Hildur skóla­stjóri segir við Kjarnann að það sé „væg­ast sagt glatað“ að þurfa að kæra útgefið fram­kvæmda­leyfi Kópa­vogs­bæjar, sveit­ar­fé­lags­ins sem í reynd eigi að gæta hags­muna skól­ans, en Waldorfskólinn í Lækj­ar­botnum er einka­rek­inn skóli sem hefur starfað á grund­velli samn­ings við Kópa­vogsbæ í um 30 ár.

Hún fór fyrr í vik­unni með bréf frá börnum í Waldorfskólanum á bæj­ar­skrif­stofur Kópa­vogs­bæjar, en í því bréfi kemur fram að börnin séu „mjög reið og svekkt“ með að hafa ekki fengið að eiga rödd í þessu máli. Í bréfi skóla­barn­anna er m.a. bent á að sam­kvæmt Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna skuli hafa sam­ráð við börn áður en ákvarð­anir sem hafa áhrif á hag þeirra eru teknar.

Börn í Waldorfskóla skrifuðu bréf til bæjaryfirvalda í Kópavogi, sem einnig hefur verið sent á tvo ráðherra og Umboðsmann barna.
Börn í Waldorfskóla skrif­uðu bréf til bæj­ar­yf­ir­valda í Kópavogi, sem einnig hefur verið sent á tvo ráð­herra og Umboðs­mann barna.

Hildur seg­ist einnig hafa vakið athygli Umboðs­manns barna, mennta- og barna­mála­ráð­herra og inn­við­a­ráð­herra á mál­inu með tölvu­pósti í vik­unni. Þau fengu einnig afrit af bréfi og und­ir­skrifta­lista barn­anna í skól­anum.

Töldu að mislæg gatnamót væru á dagskrá

Í kæru skól­ans til úrskurð­ar­nefnd­ar­innar kemur fram að skól­inn hafi staðið í þeirri mein­ingu, allt þar til í sumar, að stefnt væri að því að gera mis­læg gatna­mót eða gatna­mót sem gætu nýst skól­anum við núver­andi afleggjara, sam­fara breikkun Suð­ur­lands­vegar.

Gert hafi verið ráð fyrir slíkri teng­ingu í gild­andi aðal­skipu­lagi Kópa­vogs­bæjar, en vert er að taka fram að Kópa­vogs­bær hefur verið að vinna að end­ur­skoðun aðal­skipu­lags bæj­ar­ins um nokk­urra miss­era skeið. Í til­lögu að nýju aðal­skipu­lagi sem enn er í stað­fest­ing­ar­ferli kemur fram að horft sé til þess að afleggja vinstri beygjur við afleggjar­ann að Waldorfskólanum, en ekki er fjallað sér­stak­lega um hlið­ar­veg­inn sem myndi tengja skól­ann við Lækj­ar­botna­veg. Ekki er búið að deiliskipu­leggja svæðið.

Framkvæmdasvæðið.
Fram­kvæmda­svæðið.

Í svari sem skóla­stjórn­endur fengu frá Vega­gerð­inni í júlí­mán­uði, er þeim var orðið ljóst að ekki yrðu gerð mis­læg gatna­mót eða önnur fram­tíð­ar­lausn við núver­andi afleggjara, var því lýst fyrir þeim að Vega­gerðin áform­aði að tengja afleggjar­ann að skól­anum inn á Lækj­ar­botna­veg um nýjan hlið­ar­veg.

Af Lækj­ar­botna­vegi yrðu síðan útbúin örugg­ari gatna­mót fyrir bæði hægri og vinstri beygjur, sem lík­lega yrðu mis­læg. Þetta er í takt við það sem fram kemur í til­lögum að end­ur­skoð­uðu aðal­skipu­lagi Kópa­vogs­bæjar.

Í tölvu­póst­inum frá Vega­gerð­inni sagði einnig að þegar fram­kvæmd­irnar hefðu verið kynntar í skipu­lags­ráði Kópa­vogs­bæjar hefðu einu athuga­semd­irnar sem bár­ust snúið að hlið­ar­veg­inum. Fyrir vikið hefði fram­kvæmdum við hlið­ar­veg­inn verið frestað þar til málin skýrð­ust.

Í kjöl­farið á þessum sam­skiptum áttu for­svars­menn Waldorfskólans svo fund með Vega­gerð­inni og full­trúum Kópa­vogs­bæjar þar sem var af hálfu skól­ans lögð áhersla á að hönnun hlið­ar­veg­ar­ins tæki mið af því að þar færi dag­lega um rúta af stærstu gerð, full af skóla­börnum. Einnig viðr­uðu for­svars­menn skól­ans þann mögu­leika að færa gatna­mót afleggjar­ans að skól­anum 50-100 metra í austur og útbúa þar sams­konar vega­mót og eru við Blá­fjalla­veg í dag, en því mun hafa verið tekið fálega.

Sá kostur er ekki á borð­inu hjá Vega­gerð­inni, enda er mark­miðið með tvö­földun Suð­ur­lands­veg­ar­ins að fækka hættu­legum vinstri beygjum á svæð­inu. Vega­gerðin telur þó, sam­kvæmt sam­an­tekt val­kosta um teng­ingu Waldorfskólans, að ástæða sé til að bæta aðgengi að skól­anum með einum eða öðrum hætti og leggur því til hlið­ar­veg­inn, sem áður hefur verið sagt frá.

Hvort hann verður að veru­leika eða ekki er þó enn óvíst á þessu stigi og Waldorfskólinn fellir sig ekki við þessa óvissu – og því hefur kæran og krafa um stöðvun fram­kvæmda verið lögð fram.

Kópa­vogs­bær, sem fer með skipu­lags­vald á svæð­inu, hefur í sam­skiptum við Vega­gerð­ina og skól­ann komið því á fram­færi að finna þurfi gatna­móta­lausn sem allir geti verið sáttir við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Skólamál

Mest lesið undanfarið ár