Peningum á Íslandi er áfram sem áður stýrt af körlum

Áttunda árið í röð fram­kvæmdi Kjarninn úttekt á því hver kynja­hlut­föll séu á meðal þeirra sem stýra pen­ingum á Íslandi. Fyr­ir­tækj­unum sem úttektin náði til fjölg­aði lít­il­lega á milli ára og sam­setn­ing þeirra breytt­ist aðeins.

Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur ekki gert jafn­rétt­is­málum í heim­inum neina greiða. Í skýrslu World Economic Forum um kynja­jafn­rétti, sem kom út í lok síð­asta mán­aðar, er fjallað er um kyn­bund­inn ójöfnuð í 156 ríkjum heims.

Heild­ar­nið­ur­staða hennar er sú að kyn­bund­inn ójöfn­uður, reikn­aður út frá 14 breytum, hafi auk­ist veru­lega á síð­asta ári eftir að hafa minnkað hægt mörg ár þar á undan. Nið­ur­staða skýrsl­unnar sem kom út árið 2020 var að fullur jöfn­uður myndi nást milli kynja eftir 99,5 ár. Í nýju skýrsl­unni er sá munur kom­inn upp í 136,6 ár.

Ísland er það land sem trónir á toppi list­ans yfir kynja­jafn­rétti. Konur njóta 89,2 pró­sent af þeim gæðum sem karlar njóta, að jafn­aði.

Lengst í lands innan fjármálageirans

Heims­meist­ar­inn í kynja­jafn­rétti á þó nokkuð í land á ýmsum sviðum. Í skýrslu World Economic Forum er til að mynda minnst á að hér­lendis sé enn umsvifa­mik­ill kyn­bund­inn launa­munur. Óleið­réttur launa­munur kynj­anna var til að mynda 33 pró­sent í þeirri atvinnu­grein þar sem hann var mestur árið 2019, sem var í fjár­mála- og vátrygg­ing­ar­starf­semi.

Vegna þess­arar stöðu þá hefur verið reynt að grípa til þving­andi aðgerða til að leið­rétta þessa skekkju, fyrst mark­að­ur­inn var ekki að sýna neinn vilja til að leið­rétta hann sjálfur.

Lög um kynja­kvóta í stjórnum fyr­ir­tækja á Íslandi voru sam­þykkt árið 2010. Þau tóku að fullu gildi í sept­em­ber 2013. Lögin segja að fyr­ir­tækjum sem eru með 50 eða fleiri starfs­menn þurfi að tryggja að hlut­fall hvors kyns sé ekki undir 40 pró­sentum. Mark­miðið með laga­setn­ing­unni var að „stuðla að jafn­ari hlut­föllum kvenna og karla í áhrifa­stöðum í hluta­fé­lögum og einka­hluta­fé­lögum með auknu gagn­sæi og greið­ari aðgangi að upp­lýs­ingum.“

Rúmur áratugur án árangurs

Von þeirra sem sam­þykktu frum­varpið – 32 þing­menn úr öllum flokkum nema Sjálf­stæð­is­flokknum sem áttu þá sæti á þingi – var að fleiri konur í stjórnum myndi leiða til þess að fleiri konur yrðu ráðnar í stjórn­un­ar­stöður og það myndi fjölga tæki­færum kvenna.

Hagstofa Íslands tekur árlega saman tölur um hversu margar konur sitji í stjórnum fyr­ir­tækja. Stofn­unin birti nýjust tölur sínar, sem sýna stöð­una í lok 2020, í síð­ustu viku. Þar kom fram að rúm­lega fjórð­ungur, 26,5 pró­sent, allra stjórn­ar­manna í íslenskum fyr­ir­tækjum væru konur. Það hlut­fall var 24 pró­sent árið 2010.

Í fyr­ir­tækjum með fleiri en 50 laun­þega var hlut­fall kvenna í stjórnum 19,5 pró­sent árið 2010. Árið sem lögin tóku gildi var hlut­fallið orðið 30,2 pró­sent. Frá þeim tíma hefur lítið gerst. Hlut­fallið var 34,1 pró­sent í fyrra.

Markmið lag­anna hefur því aldrei náðst. Hvorki það hlut­fall stjórn­ar­manna sem þau segja til um né þau afleiddu áhrif að konum í stjórn­un­ar­stöðum myndi fjölga mikið vegna til­komu þeirra. Hlutfall fram­kvæmda­stjóra í íslenskum fyr­ir­tækjum sem eru konur er nú 23,3 pró­sent. Það var 20 pró­sent árið 2010 þegar lögin voru sett.

Áttunda árið og nánast alltaf sama niðurstaðan

Kjarninn hefur fram­kvæmt úttekt á því hvers kyns þeir sem stýra fjár­magni á Íslandi eru árlega frá 2014. Úttektin nú er því sú átt­unda sem fram­kvæmd hefur verið.

Í ár nær hún til 100 æðstu stjórn­enda við­skipta­banka, spari­sjóða, líf­eyr­is­sjóða, skráðra félaga, óskráðra trygg­inga­fé­laga, lána­fyr­ir­tækja, verð­bréfa­fyr­ir­tækja og -miðl­ana, verð­bréfa­sjóða, sér­hæfðra sjóða, orku­fyr­ir­tækja, raf­eyr­is­fyr­ir­tækja, greiðslu­stofn­ana, Kaup­hallar og lána­sjóða.

Af þeim eru 89 karlar en ell­efu konur. Hlutfall kvenna sem stýra pen­ingum á Íslandi dregst því saman á milli ára, úr 13,5 í ell­efu pró­sent. Frá því að Kjarninn gerði úttekt­ina fyrst hefur kon­unum sem hún nær til fjölgað úr sex í ell­efu. Körlunum hefur hins vegar fjölgað um sjö.

Þessi hópur sem fellur undir úttekt­ar­skil­yrðin stýrir sam­tals þús­undum millj­arða króna og velur í hvaða fjár­fest­ingar þeir pen­ingar rata hverju sinn, enda pen­ingar hreyfi­afl í mark­aðs­drifu hag­kerfi.

Ef 16 af stærstu einka­fjár­festum lands­ins eru einnig taldir með þá breyt­ist myndin aðeins. Körlunum fjölgar í 104 en kon­urnar eru 14. Hlutfall kvenna fer því upp í tólf pró­sent.

Eiga hátt í sex þúsund milljarða

Stærstu fjár­fest­arnir á Íslandi eru líf­eyr­is­sjóðir. Þeir eru allt um lykj­andi í við­skipta­líf­inu. Hrein eign þeirra er um 5.800 millj­arðar króna. Það er lík­lega rúmur þriðj­ungur af heild­ar­fjár­munum sem til eru á Íslandi og sá eign­ar­hlutur mun vaxa á næstu árum. Árið 2060 munu þeir eiga tæp­lega 40 pró­sent allra fjár­muna hér. Þeir eiga í dag meiri­hluta allra mark­aðs­skulda­bréfa á Íslandi og beint eða óbeint um helm­ing allra skráðra hluta­bréfa í íslensku kaup­höll­inni. Alls eru sjóð­irnir 21 tals­ins en stjórn­endur þeirra eru 16.

Nær allir stjórn­endur líf­eyr­is­sjóða eru karlar, þótt sú jákvæða breyt­ing hafi orðið á árinu 2019 að kona, Harpa Jóns­dóttir hafi tekið við stærsta sjóðnum, Líf­eyr­is­sjóði starfs­manna rík­is­ins. Þrettán sjóðum er stýrt af körlum en þremur af konum.

Fjórir lífeyrissjóðir halda á hátt i 60 prósent af eignum lífeyrissjóðakerfisins. Einum þeirra er stýrt af konu, Hörpu Jónsdóttur hjá LSR:
Fjórir líf­eyr­is­sjóðir halda á hátt i 60 pró­sent af eignum líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins. Einum þeirra er stýrt af konu, Hörpu Jóns­dóttur hjá LSR:

Líf­eyr­is­sjóða­kerfið er lífæð íslenskra verð­bréfa­fyr­ir­tækja og rekstr­ar­fé­laga verð­bréfa­sjóða.

Flestir á þeim mark­aði hafa stóran hluta tekna sinna upp úr því að rukka líf­eyr­is­sjóði um þókn­ana­tekjur fyrir milli­göngu í verð­bréfa­kaup­um eða ann­ars fjár­fest­ingum. Öllum leyf­is­skyldum verð­bréfa­fyr­ir­tækjum og rekstr­ar­fé­lögum verð­bréfa- og sér­hæfðra sjóða er stýrt af körlum. Af þeim rekstr­ar­að­ilum sér­hæfðra sjóða sem eru skrán­ing­ar­skyldir, en ekki leyf­is­skyldir, eru sjö undir stjórn karla en tveir undir stjórn kvenna.

Öllum eft­ir­lits­skyldum lána­fyr­ir­tækjum á Íslandi er stýrt af körlum. Sömu sögu er að segja af öllum trygg­inga­fé­lögum lands­ins.

Þá eru átta orku­fyr­ir­tæki í land­inu. Lengi vel var þeim öllum stýrt af körlum en 2018 var Berglind Rán Ólafs­dóttir ráðin fram­kvæmda­stjóri Orku Nátt­úr­unnar í kjöl­far mik­illa átaka innan þess fyr­ir­tækis vegna meintrar kyn­ferð­is­legrar áreitni.

Karl í stað konu í sparisjoðakerfinu

Á Íslandi eru fjórir spari­sjóðir enn starf­andi. Þeim er öllum stýrt af körlum. Ein breyt­ing varð á æðstu stjórn­endum þeirra á síð­ast­liðnu ári, þegar karl­inn Sigurður Erlings­son tók við stjórn­ar­taumunum hjá Spari­sjóði Suður-Þing­ey­inga. Honum var áður stýrt af spari­sjóðs­stjór­anum Gerði Sig­tryggs­dóttur.

Birna Einarsdóttir hefur stýrt Íslandsbanka frá því að hann var búinn til úr rústum Glitnis. Hún verður von bráðar eina konan sem stýrir skráðu félagi á Íslandi.
Birna Ein­ars­dóttir hefur stýrt Íslands­banka frá því að hann var búinn til úr rústum Glitnis. Hún verður von bráðar eina konan sem stýrir skráðu félagi á Íslandi.

Þeim er öllum stýrt af körlum. Þegar litið er yfir starfs­manna­list­ann er ljóst að kynja­hlut­fallið lag­ast ekki mikið þegar neðar í skipu­ritið er komið.

Fjórir stórir bankar eru á land­inu. Tveimur þeirra, rík­is­bönk­unum Lands­banka og Íslands­banka, er stýrt af kon­unum Lilju Björk Ein­ars­dóttur og Birnu Ein­ars­dóttur. Báðir bank­arnir sem eru í einka­eigu, Arion banki og Kvika banki, eru undir stjórn karla.

For­stjóri Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar, sem stundar útlán til fast­eigna­kaupa, er sömu­leiðis karl.

Kona á leiðinni í Kauphöllina

Á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði eru skráð 22 félög sem stendur, en þeim hefur fækkað um tvö frá síð­ustu úttekt þar sem Heima­vellir voru afskráð og TM rann inn í Kviku. Alls eru 18 félag­anna skráð á Aðal­markað og fjögur á First North. Öllum félög­unum er stýrt af körlum og kona hefur raunar ekki setið í for­stjóra­stóli skráðs félags á Íslandi frá því í ágúst 2016, þegar Sigrúnu Rögnu Ólafs­dóttur var sagt upp hjá VÍS.

Tvö félög hafa til­kynnt um skrán­ingu á markað á þessu ári. Annað þeirra, Síld­ar­vinnslan, er undir stjórn karls. Hitt, Íslands­banki, er likt og áður hefur komið fram stýrt af kon­unni Birnu Ein­ars­dóttur. Því er í far­vatn­inu að kona stýri skráðu félagi á Íslandi í fyrsta sinn í tæp fimm ár gangi áform um skrán­ingu Íslands­banka í sumar eftir.

Tvær konur hafa verið fjármálaráðherrar

Þegar horft er víðar á áhrifa­stöður í sam­fé­lag­inu, þar sem pen­ingum er auð­vitað stýrt, en þó með öðrum hætti en í við­skipta­líf­inu, hallar víða enn á konur. Í rík­is­stjórn er kynja­hlut­fallið til að mynda enn körlum í hag. Þar sitja sex karlar og fimm konur. For­sæt­is­ráð­herra er hins vegar konan Katrín Jak­obs­dóttir. Það er í annað sinn í lýð­veld­is­sög­unni sem kona situr í því emb­ætti. Sú fyrsta var Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir sem var for­sæt­is­ráð­herra 2009-2013.

Oddný Harðardóttir var fyrsta konan til að verða fjármálaráðherra á Íslandi.
Oddný Harð­ar­dóttir var fyrsta konan til að verða fjár­mála­ráð­herra á Íslandi.


Fjármála- og efna­hags­ráð­herra er karl­inn Bjarni Bene­dikts­son. Alls hafa 26 ein­stak­lingar gegnt þeirri stöðu frá því að lýð­veldið Ísland var stofnað. Einungis tveir þeirra hafa verið konur. Oddný Harð­ar­dóttir varð fyrsta konan til að gegna emb­ætti fjár­mála­ráð­herra þegar hún tók við því á gaml­árs­dag 2011. Oddný sat í emb­ætti í níu mán­uði og þá tók flokks­systir hennar Katrín Júl­í­us­dóttir við. Hún sat í emb­ætt­inu í tæpa átta mán­uði. Því hafa konur verið fjár­mála­ráð­herrar á Íslandi í minna en 17 mán­uði frá árinu 1944.

Konur undir 40 prósent þeirra sem sitja á Alþingi

Seðla­banka­stjóri Íslands er, og hefur alltaf verið, karl en af þremur vara­seðla­banka­stjórum eru tvær konur, Rannveig Sig­urð­ar­dóttir og Unnur Gunn­ars­dóttir.

Á Alþingi voru 24 kjörnar konur 2017. Hrær­ingar í fyrra, þar sem Þor­steinn Víglunds­son vék af þingi og Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir tók hans sæti, breyttu þeirri stöðu og fjölg­aði konum um eina. Þórunn Egils­dóttir fór hins vegar í leyfi vegna veik­inda í byrjun árs 2021 og ekki er búist við að hún snúi aftur. Sæti hennar tók Þórarinn Ingi Pét­urs­son. Konurnar eru því aftur orðnar 24 af 63 þing­mönnum, eða 38 pró­sent þing­manna. 

Í ríkisstjórn Íslands eru sex karlar og fimm konur.
Í rík­is­stjórn Íslands eru sex karlar og fimm konur.

Þær dreifast ójafnt á flokka. Mið­flokk­ur­inn, nú stærsti stjórn­ar­and­stöðu­flokkur lands­ins, sam­anstendur til að mynda af átta körlum og einni konu. Hjá Sjálf­stæð­is­flokknum eru tólf karlar og fjórar konur. Hjá Pírötum eru karl­arnir orðnir fimm eftir að Andrés Ingi Jónsson gekk til liðs við þá en kon­urnar tvær

Hjá Sam­fylk­ingu eru karl­arnir fjórir en kon­urnar fjórar eftir að Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir gekk til liðs við flokk­inn. Sama staða er nú uppi hjá Fram­sókn­ar­flokknum. Kynja­hlut­fallið í tveimur minnstu þing­flokk­unum, hjá Viðreisn og Flokki fólks­ins sem sam­an­lagt eru með sex þing­menn, eru sömu­leiðis jafnt.

Einungis einn þing­flokkur er með fleiri konur inn­an­borðs en karla: Vinstri græn. Þar sem kon­urnar eru fimm og karl­arnir fjórir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár