Mynd: Jupiterimages

Að vera eða vera ekki innherji

Hverjir vissu meira en aðrir fyrir banka­hrunið? Kjarninn hefur undir höndum skýrslur, fund­ar­gerðir og önnur gögn vegna rann­sóknar á því hvort að inn­herja­svik hafi átt sér stað í við­skiptum innan Glitnis dag­ana fyrir banka­hrun.

Eftir að íslensku bank­arnir féllu haustið 2008 var öllum skila­nefnd­unum sem skip­aðar voru yfir þá gert að ráða óháða sér­fræð­ingar til að rann­saka hvort að vikið hafi verið frá innri reglum þeirra, lögum og regl­um um starf­semi fjár­mála­fyr­ir­tækja, lög­um um verð­bréfa­við­skipti, al­menn­um hegn­ing­ar­lög­um, svo og öðrum rétt­ar­heim­ild­um við hrun bank­anna.

Skila­nefnd Glitnis réð KPMG til verks­ins og var skoð­un­ar­tíma­bilið 1. sept­em­ber 2008 til 15. októ­ber 2008. Áherslan var lögð á óeðli­legar til­færslur eigna í aðdrag­anda inn­grips rík­is­ins í Glitni.

Í þeirri vinnu voru tvær mis­mun­andi dag­setn­ingar sér­stak­lega not­aðar til við­mið­unar. Önnur var 25. sept­em­ber 2008, en þann dag fór Þor­steinn Már Bald­vins­son, þáver­andi stjórn­ar­for­maður Glitnis, á fund Davíðs Odds­sonar, þáver­andi seðla­banka­stjóra til að lýsa fyrir honum áhyggjum sínum af þeirri stöðu sem upp var komin í rekstri Glitnis. Bankinn átti ekki fyrir gjald­daga láns sem var 15. októ­ber. Sama dag fóru tveir fram­kvæmda­stjórar hjá Glitni, Jóhannes Bald­urs­son og Vilhelm Már Þor­steins­son, á annan fund í Seðla­bank­anum þar sem meðal ann­ars var rætt um þá óvissu með getu Glitnis til að geta staðið við greiðslu þann 15. októ­ber 2008. Til­gangur beggja fund­anna var sá að óska eftir fyr­ir­greiðslu frá Seðla­bank­anum til að fleyta bank­anum yfir umræddan gjald­daga og koma í veg fyrir að hann færi í greiðslu­þrot. Þessir fundir, og sú staða sem Glitnir var kom­inn í, leiddi af sér af sér að íslenska ríkið ákvað að taka 75 pró­sent hlut í Glitni 29. sept­em­ber 2008 gegn því að leggja bank­anum til nýtt hlutafé.

Hin dag­setn­ingin sem miðað var við var svo auð­vitað 6. októ­ber 2008, dag­ur­inn sem neyð­ar­lög voru sett á Íslandi. Daginn eftir féll Glitnir og Fjár­mála­eft­ir­litið skipti honum upp í gamlan og nýjan banka.

Skipt um hest í miðri á

KPMG rann­sak­aði til­færslur innan Glitnis í rúman mánuð. Frá byrjun nóv­em­ber og fram eftir des­em­ber­mán­uði. Rann­sókn­inni var þá ekki lokið en KPMG þurfti að segja sig frá verk­inu „af sér­stökum ástæðum sem aðilum er kunn­ugt um“. Ástæðan voru hags­muna­á­rekstrar sem komu til vegna þess að Sig­urður Jóns­son, þá for­stjóri KPMG, er faðir Jóns Sig­urðs­son­ar, þá fram­kvæmda­stjóra Stoða/FL Group, sem var kjöl­festu­fjár­fest­ir Glitn­is. KPMG skil­aði skýrslu þann 12. des­em­ber 2008 um þá vinnu sem fyr­ir­tækið var þegar búið að vinna. Skýrslan er kyrfi­lega merkt „trún­að­ar­mál“.

Við vinnu KPMG tók end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið Ernst & Young, sem fékk sér­fræð­inga frá Ernst & Young í Noregi til að aðstoða sig við vinn­una. Teymið skil­aði af sér skýrslu árið 2009. Lítill hluti hennar, sem snéri að milli­færslum tveggja síð­ustu banka­stjóra Glitnis, Bjarna Ármanns­sonar og Lárusar Welding, á fé út úr landi, rataði í fréttir á Íslandi í júlí 2009. Annað inni­hald skýrsl­unnar, sem er á ensku og merkt „confidential“, hefur hins vegar aldrei komið fyrir augu almenn­ings.

Þegar leið á árið 2009 fékk Glitnir íslensku lög­manns­stof­una LEX og alþjóð­lega fjár­mála­rann­sókn­ar­fyr­ir­tækið Kroll til að vinna áfram með nið­ur­stöður KPMG og Ernst & Young. Til­gang­ur­inn var að kanna hvort hægt yrði að ráð­ast í ein­hver rift­un­ar­mál eða ann­ars konar gjörn­inga til að end­ur­heimta fé. Samhliða rann­sóknum end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækj­anna voru öll mál sem grunur var um að brytu í bága við lög send til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Það sendi þau eftir atvikum áfram til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara.

Lárus Welding var síðasti bankastjóri Glitnis.
Lárus Welding var síð­asti banka­stjóri Glitnis.

Kjarninn er með undir höndum skýrslu KPMG, skýrslu Ernst & Young, skýrslur frá Kroll og sam­an­tekt frá LEX um vinnu stof­unnar fyrir Glitni þar sem fjallað er um óeðli­legar til­færslur eigna í aðdrag­anda inn­gripa rík­is­ins í Glitni.

Auk þess er Kjarninn með undir hönd­unum fund­ar­gerðir Fjár­mála­eft­ir­lits­ins af fundum starfs­manna þess með lyk­il­fólki frá þeim end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækjum sem ráðin voru til að fara í gegnum föllnu bank­ana. Þeir fundir fóru fram síðla árs 2008. Umfjöll­unin sem fylgir hér eftir byggir á þessum gögnum og sam­tölum við aðila sem að málum komu.

Búnir til listar yfir þá sem bjuggu yfir upplýsingum

Hverjir vissu hvað um banka­hrunið? Og gátu þeir nýtt sér það í fjár­hags­legum til­gangi? Þessar spurn­ingar hafa ómað nán­ast lát­laust frá banka­hruni. Af þeim gögnum sem Kjarninn hefur undir höndum er nokkuð ljóst að þeir aðilar sem rann­sök­uðu fall bank­anna: skila­nefndir, end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæki, Fjár­mála­eft­ir­litið og emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara hafa verið að velta því sama veru­lega fyrir sér í kjöl­far hruns­ins. Og að uppi hafi verið umfangs­miklar grun­semdir um að slíkt hafi átt sér stað.

Samkvæmt fund­ar­gerðum af fundum rann­sak­enda með Fjár­mála­eft­ir­lit­inu frá októ­ber og nóv­em­ber­mán­uði 2008 var ákveðið að búa til inn­herj­a­lista sem á voru stjórn­endur, starfs­menn, aðrir vensl­aðir og tengdir aðilar ásamt stjórn­mála­mönnum, starfs­mönnum Seðla­bank­ans, starfs­mönnum ráðu­neyta og fleirum. Í raun allir sem gátu mögu­lega búið yfir meiri upp­lýs­ingum um stöðu bank­anna en almenn­ingur. Þessir listar voru síðan mát­aðir við þær fjár­magns­hreyf­ingar sem áttu sér stað í sept­em­ber og októ­ber 2008.

Ýmsar mis­mun­andi teg­undir af óeðli­legum fjár­magns­hreyf­ingum voru skoð­aðar á umræddu tíma­bili. Hjá Glitni skoð­aði KPMG til að mynda við­skipti með verð­bréf sem töld­ust óeðli­leg, fram­virka samn­inga sem gerðir voru, gjald­eyr­is­stýr­ingu og með­ferð afleiðu­samn­inga. Þá var farið yfir stærstu útlán sem áttu sér stað á tíma­bil­inu, yfir útlán til starfs­manna og farið var var yfir inn­lausnir úr hinum fræga pen­inga­mark­aðs­sjóði, Sjóði 9.

Ernst & Young, sem tók við skoðun á Glitni af KPMG, skoð­aði allar óeðli­legar fjár­magns­hreyf­ingar frá 1. sept­em­ber til 15. októ­ber 2008. Í skýrslu fyr­ir­tæk­is­ins er meðal ann­ars fjallað um úttekt Lárusar Welding, þá banka­stjóra Glitnis, á 318 millj­ónum króna, og milli­færslu eig­in­konu hans á 325 millj­ónum króna till Bret­lands sem átti sér stað í kjöl­farið. Milli­færslur á fénu til Bret­lands áttu sér stað 19. sept­em­ber, 25. sept­em­ber og 3. októ­ber. Lárus kom tví­vegis fram í íslensku sjón­varpi á þessum tíma, dag­anna, 21. og 22. sept­em­ber, og sagði þar að staða Glitnis væri traust.

Ernst & Young fjall­aði einnig um milli­færslu sem Einar Sveins­son, sem hafði áður verið stjórn­ar­for­maður Glitnis og var lengi stór hlut­hafi í bank­anum, fram­kvæmdi 25. sept­em­ber 2008. Einar milli­færði þá 168 millj­ónir króna inn á banka­reikn­ing í Noregi. Sú milli­færsla fór fram sama dag og þáver­andi stjórn­ar­for­maður Glitnis fór á fund seðla­banka­stjóra vegna stöðu bank­ans.

Ernst & Young vakti athygli á alls 89 útlánum upp á sam­tals 60 millj­arða króna sem veitt voru á þessu tíma­bili. Þorri þeirra lána voru til fyr­ir­tækja sem töld­ust tengd aðilum sem gætu búið yfir inn­herj­a­upp­lýs­ingum. Á sama tíma og þessi lán voru veitt var Glitnir í miklum fjár­hags­legum vanda, sem leiddi á end­anum til falls bank­ans í októ­ber 2008.

Þá mælti Ernst & Young með því að mál tengd félag­inu Kristni ehf., sem er í eigu Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur eig­andi Ísfé­lags­ins í Vest­manna­eyjum, yrði skoðað betur. Félagið seldi hluta­bréf í Glitni dag­anna 26. sept­em­ber fyrir tæpa fjóra millj­arða króna. Bréfin hafði það eign­ast árið áður þegar Glitnir keypti tæp­lega 40 pró­sent hlut í Trygg­inga­mið­stöð­inni. Þá átti einnig að hafa verið gert sam­komu­lag um sölu­rétt ári síðar.

For­svars­menn Kristins sögð­ust síðar ein­fald­lega hafa verið að nýta þann rétt og að til­viljun hafi ráðið því að það gerð­ist nokkrum dögum fyrir banka­hrun. Sér­stakur sak­sókn­ari rann­sak­aði þetta mál en lét þá rann­sókn síðar niður falla. Slita­stjórn Glitnis höfð­aði hins vegar mál og vildi rifta við­skipt­unum. Hún taldi sig hafa tapað millj­örðum króna á við­skipt­unum og taldi að eng­inn skrif­legur samn­ingur hefði verið til um sölu­rétt. Sátt náð­ist þó á milli aðila og málið var látið niður falla. Kristinn ehf. er feiki­lega vel statt félag í dag. Um síð­ustu ára­mót átti félagið eigið fé upp á 17,4 millj­arða króna.

Ekkert ofan­greindra mála rataði í ákæru­með­ferð þrátt fyrir upp­haf­legar grun­semdir þeirra aðila sem rann­sök­uðu það sem gerð­ist innan Glitnis síð­ustu dag­anna fyrir hrun. Og því er ekk­ert sem bendir til þess að þau við­skipti sem lýst er hafi verið að nokkru leyti ólög­leg.

Einbeittu sér að Sjóði 9

Mikill þungi í þeim rann­sóknum sem ráð­ist var í á óeðli­legum fjár­magns­hreyf­ingum og við­skiptum var þó á inn­lausnum úr verð­bréfa­sjóðum sem Glitnir rak. Og sér­stak­lega pen­inga­mark­aðs­sjóðnum Sjóði 9. Hægt er aðlesa allt um Sjóð 9 hér.

Líkt og áður sagði þá voru rann­sak­endur Glitnis að horfa á tvö tíma­bil. Það fyrra þegar Þor­steinn Már Bald­vins­son, þá stjórn­ar­for­maður Glitnis, fór á fund Davíðs Odds­sonar þann 25. sept­em­ber 2008. Ástæða þess að ákveðið var að skoða fjár­magns­flutn­inga og við­skipti inn­herja á þessum tíma var sú að margir af lyk­il­starfs­mönnum Glitnis vissu af því að Þor­steinn Már var að fara á þennan fund.

Ljóst var að innan Glitnis höfðu stjórn­endur áhyggjur af því að þeir starfs­menn sem vissu að vanda bank­ans myndu mögu­lega gera eitt­hvað sem myndi ekki stand­ast nán­ari skoðun. Þennan saman dag, 25. sept­em­ber, sendi reglu­vörður bank­ans póst til allra starfs­manna um „Reglur um við­skipti starfs­manna“ til að minna starfs­menn Glitnis á að reglur um við­skipti með fjár­mála­gern­inga og gjald­eyri. Þessi póstur kom ekki í veg fyrir að hluti starfs­manna átti við­skipti í kringum þessa dag­setn­ingu.

Í sam­an­tekt þar sem þau mál sem lög­manns­stofan LEX vann fyrir slita­stjórn Glitnis eru tekin saman kemur þetta skýrt fram. Á meðal þeirra gagna sem vísað er til í sam­an­tekt­inni er minn­is­blað sem LEX vann og er dag­sett 22. sept­em­ber 2011, eða tæpu einu og hálfu ári eftir að skýrsla Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um orsök og aðdrag­anda banka­hruns­ins kom út.

Í því minn­is­blaði er farið yfir ráð­staf­anir ýmissa aðila í kringum þann tíma þegar Þor­steinn Már fund­aði með seðla­banka­stjóra sem talið var að hafi mögu­lega búið yfir inn­herj­a­upp­lýs­ingum.

Ráðstafanir Baugsfjölskyldunnar

Málin eru flest tengd því að starfs­menn Glitnis, yfir­menn bank­ans eða lög­að­ilar tengdir Baugs­fjöl­skyld­unni, sem var ráð­andi í eig­enda­hóp Glitnis á þessum tíma, hafi inn­leyst fé úr pen­inga­mark­aðs­sjóðnum Sjóði 9 dag­anna 24-26. sept­em­ber þegar raun­veru­leg staða Glitnis var á fárra vit­orði. Sá sjóður var að jafn­aði með yfir 50 pró­sent af heild­ar­eignum sínum í bréfum frá tveimur útgef­end­um, Stoð­um/FL Group og Baugi. Í skýrslu Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis segir að þessir tveir sjóðir hafi verið látnir kaupa upp heilu skulda­bréfa­flokk­anna frá þessum tveimur aðil­um. Bæði félögin, Baugur Group og Stoð­ir/FL Group, lutu stjórn Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og við­skipta­fé­laga hans. Sjóður 9 var því nokk­urs konar rusla­kista sem sá helstu eig­endum Glitnis fyrir lausu fé með því að kaupa af þeim skulda­bréf. Hlut­deild­ar­skír­teini í sjóðnum voru síðan seld almenn­ingi sem sparn­að­ar­leið með mik­illi ávöxt­un.

LEX kann­aði bæði hvort gjörn­ing­arnir væru rift­an­legir og lagði mat á hvort að um mögu­leg inn­herja­svik væri að ræða.

Hjúkruðu vildarviðskiptavinum úr tapstöðum

Í skýrslu KPMG um Glitni er fjallað um sér­stak­lega um afleiðu­samn­inga í einum kafl­anum. Þar segir að mark­aðsvirði slíkra hafi verið um 250 millj­arðar króna í lok sept­em­ber 2008. Um 500 aðilar hafi með slíka samn­inga og voru samn­ing­arnir sem sá hópur var með alls um þrjú þús­und tals­ins. Stærsti hluti þeirra var vegna fram­virkra gjald­miðla- og vaxta­samn­inga. Af þeim 500 aðilum sem voru með samn­inga sem þessa voru um 200 á lista yfir tengda aðila. Þessir 200 aðilar voru með um 1.800 samn­inga, eða meiri­hluta þeirra.

Í skýrslu KPMG segir að gjald­eyr­is­við­skipti á þessu tíma­bil hafi verið veru­leg og „eru flestir að koma inní gjald­eyr­is­við­skipti með tap út úr öðrum samn­ingum, svo sem eins og „strúktúr“ samn­ingum, en það eru skulda­bréf þar sem ávöxtun tekur mið af mark­aðs­gengi ákveð­inna hluta­bréfa.

Mark­miðið með því að beina eft­ir­far­andi við­skipta­mönnum í gjald­eyr­is­stýr­ingu var að reyna að vinna upp tap sem þeir höfðu orðið fyrir vegna ann­arra við­skipta innan bank­ans. Hér átti því að reyna að „hjúkra“ umræddum við­skipta­mönnum.“.

Í skýrsl­unni kemur einnig fram að sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem KPMG hafi fengið hjá starfs­mönnum Glitnis „íhug­uðu nokkrir við­skipta­menn sem voru þátt­tak­endur í strúkt­úr­samn­ingum að fara í mál við bank­ann, meðal ann­ars á þeirri for­sendu að ekki hefði verið kynnt fyrir þeim hvaða áhætta fælist í samn­ing­unum. Þar sem um umfangs­mikla við­skipta­vini bank­ans var að ræða og jafn­framt sú stað­reynd að slík mála­ferli væru óþægi­leg fyrir bank­ann, þá var ákveðið að fara með við­skipta­vin­ina yfir í gjald­eyr­is­stýr­ingu þar sem reynt yrði að vinna upp tapið vegna þátt­tök­unnar í strúktúr samn­ing­unum.“

Vænt tap Glitnis, að teknu til­liti til trygg­inga, var áætlað 5,7 millj­arðar króna. Í skýrsl­unni kemur fram að það gæti orðið enn hærra.

Fyrsta málið sem er talið upp á list­anum yfir mál tengd Sjóði 9 er inn­lausn Baugs Group á 289 millj­ónum krónum úr sjóðnum 25. sept­em­ber, sama dag og fundur stjórn­ar­for­manns Glitnis og banka­stjóra Seðla­banka Íslands fór fram. Baugur Group var á þessum tíma stærsti ein­staki hlut­hafi Stoðum/FL Group sem var langstærsti ein­staki eig­andi Glitnis. Í umfjöllun um þetta mál í sam­an­tekt um mál sem LEX vann fyrir slita­stjórn­ina segir að það teng­ist „fleiri ráð­stöf­unum Baugs­fjöl­skyld­unnar 25. og 26. sept­em­ber 2008.“

Þar er vísað til þess að Fjár­fest­inga­fé­lagið Gaumur, stærsti eig­andi Baugs Group, hefði inn­leyst fimm millj­ónir króna 26. sept­em­ber og félagið Styrkur Invest, sem áður hét BG Capital hafi leyst út 472 millj­ónir króna út úr Sjóði 9. Styrkur, sem var að fullu í eigu Baugs Group, átti um 40 pró­sent hlut í Stoðum/FL Group, stærsta eig­anda Glitnis. Í sam­an­tek­inni um málin sem LEX vann segir: „Félagið tengt Baugi. Inn­herja­svik? Styrkur var hins vegar úrskurðað gjald­þrota, skiptum er lokið, búið eigna­laust. Því til­gangs­laust að fara í rift­un­ar­mál. Gæti hins vegar nýst til að sýna mynstur Baugs, Gaums og Styrks Invest, hvernig inn­herj­a­upp­lýs­ingar voru nýttar.“

Þar fyrir neðan segir: „Ath. að JÁJ var við­staddur stjórn­ar­fundi Stoða og invol­ver­aður í allt ferlið í tengslum við fund ÞMB og DO – skoða skýrslu RNA.“ JÁJ er skamm­stöfun fyrir Jón Ásgeir Jóhann­es­son og Stoðir er það nafn sem FL Group tók upp fyrr á árinu 2008.

Til við­bótar við ofan­greind mál skoð­aði LEX sölu Gaums-fjöl­skyld­unnar, sem er Jón Ásgeir, systir hans, móðir og félagið Gaumur, á hlutum í Kaup­þingi til Glitnis þann 24. sept­em­ber 2008. Nið­ur­staða þeirrar skoð­unar var sú að ákveðið var að fara ekki lengra með málið.

Allir sem höfðu vitneskju um stöðu bankans skoðaðir

Í skýrslu KPMG segir að farið hafi verið yfir það með reglu­verði Glitnis hvaða athug­anir hann hefði gert á við­skiptum starfs­manna bank­ans í sjóðum Glitnis. Hann upp­lýsti starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins um að hann hefði gert skoðun á „á öllum við­skiptum aðila sem hann taldi hafa haft vit­neskju um stöðu bank­ans“ þessa síð­ustu daga áður en hann féll.

Í kjöl­farið voru til­kynn­ingar til reglu­varðar um við­skipti í sjóð­unum borin saman við skráð við­skipti. Alls níu stjórn­ar­menn og starfs­menn sjóða Glitnis ættu að hafa sótt um leyfi til reglu­varðar áður en þeir áttu við­skipti við sjóð­ina. Í skýrslu KPMG sagði að komið hefði Í ljós að sjö þeirra hefðu ekki sótt um slíkt leyfi en þeir eru ekki sér­stak­lega nafn­greindir.

Nokkrir starfs­menn og fram­kvæmda­stjórar Glitnis leystu líka út eignir sínar í Sjóði 9 á sama tíma.Í sam­an­tekt LEX eru fjögur við­skipti starfs­manna Glitnis sér­stak­lega nefnd. Þeir inn­leystu sam­tals 184 millj­ónir króna út úr Sjóði 9 dag­anna 24. til 26. sept­em­ber.

Um var að ræða Jóhann Ómarsson, þáver­andi yfir­mann einka­banka­þjón­ustu Glitnis, sem inn­leysti 96 millj­ónir króna 24. sept­em­ber 2008. Jóhannes Bald­urs­son, þáver­andi fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta bank­ans, inn­leysti 18 millj­ónir króna 26. sept­em­ber. Hann fund­aði í Seðla­bank­anum dag­inn áður og sam­kvæmt sam­an­tekt LEX hafði hann vit­neskju um fund Þor­steins Más og Davíðs. Þennan sama dag, 26. sept­em­ber, inn­leysti félagið BK 44 ehf., í eigu Birkis Krist­ins­sonar starfs­manns Glitnis, 30 millj­ónir króna og Eiríkur S. Jóhann­es­son, einnig starfs­maður Glitnis, inn­leysti 40 millj­ónir króna.

Jón Ásgeir Jóhannesson var ráðandi í Glitni fyrir bankahrun.
Jón Ásgeir Jóhann­es­son var ráð­andi í Glitni fyrir banka­hrun.

Bræð­urnir Benedikt og Einar Sveins­synir, sem báðir eru umsvifa­miklir við­skipta­menn og höfðu áður verið ráð­andi hlut­hafar í Glitni en voru það ekki lengur síðla árs 2008, eru einnig nefndir til sög­unnar í skjal­inu sem mál sem vert yrði að skoða. Sú skoðun var m.a. til­kom­inn vegna inn­lausnar Bene­dikts á 500 millj­ónum króna þann 26. sept­em­ber sem greiddar voru út í Banda­ríkja­dölum og milli­færðar inn á reikn­ing í Flórída.

Félag í eigu Einars, Hró­mundur ehf., inn­leysti einn millj­arð króna úr Sjóði 9 þann 6. októ­ber 2008. Í yfir­liti LEX segir að þetta hafi gerst eftir lokun sjóðs­ins. Féð gekk til greiðslu ann­arra skulda Hró­mundar hjá Glitni. í skjali LEX segir: „Málið var skoðað með til­liti til þess hvort Hró­mundur ehf. hefði þannig náð að greiða meira niður af skuldum sínum heldur en það hefði getað ef félagið hefði fengið greitt út úr Sjóði 9, eins og aðrir hlut­deild­ar­skír­tein­is­hafar.“ Málið var til­kynnt til sér­staks sak­sókn­ara en það fór ekki í ákæru­ferli.

Einar inn­leysti einnig í eigin nafni 191 milljón króna úr Sjóði 9 þennan sama dag og LEX telur að það hafi lík­lega gerst eftir lokun sjóðs­ins.

Þá er sér­stak­lega minnst á inn­lausn Sand­gerð­is­bæjar á 150 millj­ónum króna úr Sjóði 9 þann 25. sept­em­ber 2008.

„Sönnunarstaðan í þessum málum verður því erfið“

Í sam­an­tek­inni segir að skoða eigi þessi mál sem hugs­an­leg rift­un­ar­mál, rift­an­lega gjafa­gern­inga eða jafn­vel inn­herja­svik. Þar segir hins vegar einnig að erfitt hafi reynst að nálg­ast gögn frá Íslands­sjóðum, rekstr­ar­fé­lag­inu sem sér um sjóði Íslands­banka, þess banka sem reistur var á rústum Glitnis eftir hrun. „Sönn­un­ar­staðan í þessum málum verður því erfið.“

Í áður­nefndu minn­is­blaði sem LEX skil­aði til slita­stjórnar Glitnis 22. sept­em­ber 2011 er bent á að til þess að hægt sé að halda áfram með málin yrði að finna gögn sem sönn­uðu að umræddir aðilar hafi búið yfir upp­lýs­ingum sem ekki voru aðgengi­legar öðrum hlut­deild­ar­skír­tein­is­höfum á umræddu tíma­bili.

Það reynd­ist erfitt, og á end­anum ómögu­legt, að sanna að ein­hver þeirra sem fjallað var um í ofan­greindum gögnum hafi nýtt sér inn­herj­a­upp­lýs­ingar til að bjarga eigin verð­mætum áður en að Glitnir féll.

Fjár­mála­eft­ir­litið safn­aði reyndar saman miklu magni af upp­lýs­ingum um þá sem seldu hlut­deild­ar­skír­teini í pen­inga­mark­aðs­sjóðum allra bank­anna, þar á meðal í Sjóði 9, og sendi sem kæru til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara. Í bréfi Fjár­mála­eft­ir­lits­ins vegna þessa sagði m.a.: „Fjár­mála­eft­ir­litið telur að uppi sé rök­studdur grunur um að til­teknir aðilar hafi brotið gegn ákvæðum XIII kafla laga nr. 108/2007 um með­ferð inn­herj­a­upp­lýs­inga og við­skipti inn­herja. Það er mat Fjár­mála­eft­ir­lits­ins að meint brot falli undir að vera meiri­háttar í skiln­ingi 1. mgr. 148. gr. lag­anna. Nauð­syn­legt er að upp­lýsa hverjir bjuggu yfir inn­herj­a­upp­lýs­ingum á þeim tíma sem um ræðir. Fjár­mála­eft­ir­litið leggur áherslu á að mál þetta hljóti skjóta með­ferð hjá sér­stökum sak­sókn­ara þar sem um mik­il­væga almanna­hags­muni er að ræða.“

Kæran þótti allt of víð­tæk. Í henni var yfir­lit yfir við­skipti fjöl­margar ein­stak­linga og lög­að­ilar með hlut­deild­ar­skír­teini í sjóðum sem talið var að mögu­lega hafi getað búið yfir inn­herj­a­upp­lýs­ingum. Það hafði hins vegar ekki verið rann­sakað sér­stak­lega hvort þetta fólk bjó raun­veru­lega yfir slíkum og hvað þá hvort það hafi hag­nýtt sér þær. Þessi kæra Fjár­mála­eft­ir­lits­ins var því kölluð „síma­skrá­ar­málið“ í ljósi þess að umfangið minnti á síma­skrá.

Fjár­mála­eft­ir­litið sendi síðar sama ár aðra send­ingu af kærum vegna inn­herj­a­mála til sér­staks sak­sókn­ara. Þá hafði mál­unum fækkað gíf­ur­lega. Og ekk­ert þeirra mála sem rakin eru hér að ofan end­uðu í ákæru­ferli þótt að sum þeirra hafi verið rann­sökuð frekar. Í mars 2012 barst Fjár­mála­eft­ir­lit­inu bréf frá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara þar sem til­kynnt var um að rann­sókn allra mál­anna hefði verið hætt.

Erfitt að sanna innherjasvik

Sárafá inn­herj­a­mál tengd hrun­inu röt­uðu raunar yfir höfuð á end­anum í ákæru­ferli. Í dag hefur ein­ungis verið sak­fellt í tveimur slíkum inn­herj­a­málum í Hæsta­rétti, ein ákæra var dregin til baka og einu máli er ólokið. Ekkert þeirra mála sem ákært hefur verið í snú­ast um við­skipti í Sjóði 9.

Ólafur Þór Hauksson gegndi embætti sérstaks saksóknara. Það tilkynnti Fjármálaeftirlitinu í mars 2012 að rannsókn innherjamála væri hætt.
Ólafur Þór Hauksson gegndi emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara. Það til­kynnti Fjár­mála­eft­ir­lit­inu í mars 2012 að rann­sókn inn­herj­a­mála væri hætt.

Málin sem sak­fellt var í voru gegn Baldri Guð­laugs­syni, fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóra í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, sem var hlaut tveggja ára dóm árið 2012. Baldur var dæmdur fyr­ir inn­herja­svik og brot í op­in­beru starfi þegar hann seldi hluta­bréf í Lands­bank­an­um 17. og 18. sept­em­ber 2008 fyrir 192 millj­ónir króna. Bald­ur var þá ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála­ráðu­neyt­inu og sat í sam­ráðs­hópi ís­lenskra stjórn­valda um fjár­mála­stöðug­leika.

Í des­em­ber 2013 felldi Hæsti­réttur níu mán­aða fang­els­is­dóm, þar af sex mán­uði skil­orðs­bundna, yfir Frið­finni Ragnari Sig­urðs­syni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri milli­banka­mark­aða Glitnis. Hann var dæmdur fyrir inn­herja­svik með því að hafa í fimm aðskilin skipti á árinu 2008 selt hluta­bréf sín í Glitni þrátt fyrir að búa í öllum til­vikum yfir inn­herj­a­upp­lýs­ingum um lausa­fjár­stöðu bank­ans sem hann varð áskynja um í starfi sínu hjá bank­anum.

Þriðji mað­ur­inn sem var ákærður fyrir inn­herja­svik var Erlendur Magn­ús­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri hjá Glitni. Ákæran á hendur honum var þing­fest haustið 2013 en dregin til baka nokkrum vikum síðar. Hann var sak­aður um að hafa nýtt sér inn­herj­a­upp­lýs­ingar þegar eign­ar­halds­fé­lagið Fjár­sjóður, sem var í eigu Er­lend­ar og konu hans, seldi hluta­bréf í Glitni fyr­ir tíu millj­ón­ir króna að mark­aðsvirði vorið 2008.

Eitt inn­herj­a­mál er enn til með­ferðar. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, var ákærður fyrir inn­herja­svik fyrir um ári síðan. Því máli er ekki lokið fyrir dóm­stólum.

Ástæðan fyrir því er sára­ein­föld: það er mjög erfitt að sanna sök í slíkum málum. Ef ekki liggja fyrir skýr gögn um inn­herja­svik þá er í raun erfitt að ná fram sak­fell­ingu nema við­kom­andi gang­ist hrein­lega við því að hafa nýtt sér inn­herj­a­upp­lýs­ingar til að hagn­ast. Líkurnar á því að það ger­ist eru mjög litlar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár