Spilling í skjóli einræðis SWAPO-flokksins

Stjórn­mála­flokk­ur­inn SWAPO hefur alltaf fengið meiri­hluta í þing­kosn­ingum í land­inu frá því landið fékk sjálf­stæði 1990. Þeir sem Samherji greiðir mútur koma úr SWAPO-flokknum.

Misnotkun á milliríkjasamstarfi
Mis­notkun á milli­ríkja­sam­starfi Eitt dæmið um spill­ing­una sem Samherji teng­ist í Namibíu er milli­ríkja­samn­ing­ur­inn sem Namibía og Angóla gerðu árið 2014. Sjáv­ar­út­vegs­ráð­herrar Namibíu og Angóla sem und­ir­rit­uðu þennan samn­ing, Bernhard Esau og Victória de Barros Nieto, sjást hér saman á mynd.

Landið sem í dag heitir Namibía var áður þýsk nýlenda sem gekk undir nafn­inu Suð­vestur-Afríka til aðgrein­ingar frá Suður-Afríku. Eftir fyrri heims­styrj­öld­ina 1915, þar sem meðal ann­ars Þýska­land laut í lægra haldi fyrir herjum Breta, Frakka og fleiri þjóða, var nýlendan tekin af Þjóð­verjum og færð undir stjórn Suður-Afríku. Búinn Jan Smuts, her­for­ingi og for­sæt­is­ráð­herra Suður-Afríku og einn valda­mesti maður lands­ins á fyrri hluta tutt­ug­ustu aldar, vildi gera land­svæðið að fimmta hér­að­inu í Suður-Afríku en þessar hug­myndir hlutu ekki náð fyrir augum alþjóða­sam­fé­lags­ins og árið 1946 höfn­uðu Sam­ein­uðu þjóð­irnar þessum inn­limun­ar­til­raunum. 

Eins og komið hefur fram í umfjö­unum Stund­ar­innar, Kveiks og Al Jazeera sem unnar eru í sam­starfi við Wikieaks þá hefur Samherji stundað stór­felldar mútu­greiðslur til stjórn­mála- og emb­ætt­is­manna í Namibíu síð­ast­iðin ár. 

Næstu ára­tug­ina barð­ist Suður-Afríka við að halda yfir­ráðum yfir Suð­vestur-Afríku en á svæð­inu voru hópar sem vildu að landið fengi sjálf­stæði. Aðskiln­að­ar­stefna og kyn­þátta­hyggja …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

19 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár