Mynd: EPA

Hætta á áfallastreitu hjá þeim sem fengu COVID-19

Ein­beit­ing­ar­skortur. Minnistap. Kvíði og dep­urð. Eft­ir­köst COVID-19 eru ekki síður sál­ræn en lík­am­leg. Að grein­ast með nýjan og hættu­legan sjúk­dóm getur eitt og sér verið áfall og fólk þarf stuðn­ing sem fyrst svo það þrói ekki með sér alvar­legri kvilla.

Að lenda í slysi eða veikj­ast alvar­lega getur reynst fólki mikið áfall. Að upp­lifa sig í lífs­hættu getur haft marg­vís­legar sál­rænar afleið­ingar – jafn­vel til lengri tíma. Og að grein­ast með nýjan sjúk­dóm getur eitt og sér reynst fólki erfitt og fyllt það ótta og áhyggjum. Hvað þá ef sjúk­dóm­ur­inn er lífs­hættu­legur og óvíst hvort allir nái sér að fullu.

Margir þættir geta því orðið til þess að kvíði lætur á sér kræla sem og dep­urð og jafn­vel von­leysi. Inn í þetta ferli er mik­il­vægt að grípa sem fyrst, segir Inga Hrefna Jóns­dóttir, for­stöðusál­fræð­ingur á Reykja­lundi, því ann­ars er hætta á því að fólk þrói með sér enn alvar­legri kvilla.

Um sjö mán­uðir eru liðnir frá því að fyrstu til­felli COVID-19 greindust hér á landi. Fólk sem þá sýkt­ist af kór­ónu­veirunni glímir margt hvert enn við eft­ir­köst sjúk­dóms­ins sem geta bæði verið lík­am­leg og and­leg. Þetta hefur gert það að verkum að sumir eru enn óvinnu­færir og þurfa á end­ur­hæf­ingu að halda.

Þar kemur Reykja­lundur til skjal­anna en innan stofn­un­ar­innar er að finna víð­tæka reynslu og þekk­ingu af end­ur­hæf­ingu eftir lang­vinn veik­indi og alvar­leg slys. Á fjórða tug beiðna vegna fólks sem fékk COVID-19 hafa borist Reykja­lundi og hluti þess hóps hefur þegar hafið með­ferð.

Það eru ekki aðeins verkir, mæði, þrek­leysi og síþreyta sem fólkið finnur fyrir heldur ýmsir sál­rænir kvillar. Oft helst þetta í hendur og því er tekið heild­rænt á vand­anum af sér­fræð­ingum Reykja­lundar.

Inga Hrefna er hluti af sér­fræð­ingateym­inu. Hún segir það sína til­finn­ingu og ann­arra sem sinna þessum hópi að fólk glími margt hvert við alls konar sál­ræna erf­ið­leika auk lík­am­legu ein­kenn­anna. „Við sjáum að fólk er kvíðið og dap­urt og sumt hvert í áfalli yfir því að hafa veikst af COVID-19 og vegna alls þess álags sem því fylgdi.“

Þeir sem eru í end­ur­hæf­ingu á Reykja­lundi veikt­ust flestir alvar­lega og hafa sömu­leiðis glímt við alvar­leg eft­ir­köst. Margir þurftu þeir að vera í ein­angrun vegna veik­ind­anna sem hefur einnig sín áhrif á líðan. „Við vitum að ein­angrun getur verið mjög erfið og í ofaná­lag bæt­ist við ótti, óör­yggi og kvíði gagn­vart veik­ind­unum sjálfum og fram­tíð­inni. Allt þetta getur fólk upp­lifað sem mikið sál­rænt áfall og því getur svo aftur fylgt fjöl­mörg ein­kenni, bæði lík­am­leg og and­leg. Allir þeir skjól­stæð­ingar sem ég hef hitt tala um ein­beit­ing­ar­skort, fram­taks­leysi, svefn­trufl­anir og erf­ið­leika með minni, svo dæmi séu tekin. Sumir tala um að þeir eigi erfitt með að finna réttu orðin þegar þeir vilja tjá sig.“

Sér­fræð­ingar eru byrj­aðir að skoða hvað það er sem veldur þessum hug­rænu ein­kennum og hvort geti verið að í kjöl­far veik­inda sitji eftir ein­hver áhrif á starf­semi heil­ans. Ekki er enn komin mikil reynsla á að meta hug­ræna getu þeirra sem eru að takast á við eft­ir­stöðvar af COVID-19 á Reykja­lundi og því of snemmt að full­yrða nokkuð.

Það er ekki bara þung­lyndi og kvíði sem fólk með lang­vinn veik­indi getur upp­lifað heldur líka breyt­ing á líf­inu, að vera allt í einu komið með sjúk­dóm eða eft­ir­köst veik­inda sem þarf að aðlag­ast.
Einangrun getur haft slæmar afleiðingar á andlega líðan.
Ein­angrun getur haft slæmar afleið­ingar á and­lega líðan.

Þó skal nefna að þær fáu nið­ur­stöður sem nú liggja fyrir úr tauga­sál­fræði­legu mati virð­ast benda til að þau ein­kenni sem ein­stak­lingar eru að glíma við varð­andi hug­ræna getu teng­ist frekar almennu úthalds­leysi, álagi og streitu en skaða í tauga­kerf­inu. Að minnsta kosti hjá þeim sem voru við góða heilsu áður en þeir veikt­ust. Í því felst vissu­lega léttir fyrir þetta fólk sem var jafn­vel mjög hrætt við að hafa misst var­an­lega getu til ýmissa hluta. „Þetta þarf auð­vitað að rann­saka mun betur en okkar fyrstu próf­anir benda til að ein­kennin teng­ist áfall­inu og muni því ganga til baka þó að það taki tíma. En vissu­lega er fólk að glíma við þessi ein­kenni núna og það getur tekið á.“

Inga Hrefna segir skerta hug­ræna getu þekktan fylgi­fisk veik­inda. Fólk sem komi til end­ur­hæf­ingar á Reykja­lundi vegna ýmissa sjúk­dóma glími við sam­bæri­leg ein­kenni og þeir sem eru að jafna sig af COVID-19. „Fólki finnst það vera að tapa áttum, að það sé að verða minn­is­laust og ótt­ast að vera komið með alvar­lega sjúk­dóma á borð við Alzheimer.“

Hún bendir á að þegar um er að ræða nýjan sjúk­dóm sé ekk­ert skrítið að fólk fari að ímynda sér hið versta. En þekkt er að lík­am­legt og sál­rænt álag getur valdið ein­kennum á borð við ein­beit­ing­ar­skort og tíma­bundið minnistap. „Þegar fólk er farið að upp­lifa þetta er mjög mik­il­vægt að það fái sál­rænan stuðn­ing. Við, sál­fræð­ing­arnir á Reykja­lundi, erum ekki sér­fræð­ingar í COVID frekar en aðrir. Þannig að við reynum að taka á þessu eins og hjá öðrum ein­stak­lingum sem koma til okkar í end­ur­hæf­ingu.“

Í fyrstu felst ein mik­il­væg­asta hjálpin í því að fá fólk til að átta sig á að þau sál­rænu ein­kenni sem það finnur, bæði til­finn­ingar og hugs­anir, eru eðli­leg miðað við allt sem það hefur gengið í gegnum. „Flestir sem ganga í gegnum erf­iða lífs­reynslu eru með mörg svipuð ein­kenni,“ bendir Inga Hrefna á. „Og það er eðli­legt að vera með þessi ein­kenni í fyrstu. Oftast dregur úr þeim á innan við fjórum til sex vikum. En ef fólk er enn með alvar­leg ein­kenni áfallastreitu að þeim tíma liðnum þá þarf það að fá sér­hæfða og sál­ræna áfalla­með­ferð.“

Alvarleg ein­kenni í langan tíma geta þró­ast út í áfallastreituröskun. Fólk getur þá til dæmis verið að end­ur­upp­lifa áfallið og fundið fyrir nei­kvæðum breyt­ingum á hug­ar­fari og líðan almennt. Að vera stöðugt á varð­bergi, til­bú­inn að takast á við ósýni­lega ógn, er enn eitt ein­kennið. Til að fólk sé greint með áfallastreituröskun þurfa alvar­leg ein­kenni að hafa verið til staðar í að minnsta kosti mánuð og trufla veru­lega líf við­kom­andi.

Margir áhættu­þættir áfallastreitu eru til staðar hjá þeim sem greinst hafa með COVID-19. Framhjá því verður ekki horft. Inga Hrefna segir að þótt flestir muni ná sér að fullu af hinum hug­rænu ein­kennum verði allir að hafa vak­andi auga fyrir því að hætta á áfallastreitu sé fyrir hendi. „Fólk sem er í því ástandi forð­ast að hugsa um áfallið sjálft en þó geta hugs­anir um það sótt á það. Og einnig getur ákveðin hugs­ana­skekkja mynd­ast,“ segir Inga Hrefna. Með­ferðin felst m.a. í því sem er kallað „ber­skjöldun“ þar sem fólk er leitt í gegnum áfallið og þær aðstæður sem því tengj­ast. Fólk getur fest sig í þeirri hugsun að það sé því sjálfu að kenna að það veikt­ist eða slas­að­ist og slíkar hugs­anir hindra batann.

Í þessu sam­bandi er mjög mik­il­vægt að sam­fé­lagið fari ekki að kenna ein­hverjum ein­stak­lingum um þær aðstæður sem hafa skap­ast. Það gerir engum gott en getur valdið þeim sem smit­uð­ust van­líðan.
Sálfræðingateymi Reykjalundar. Fremri röð: Helma Rut Einarsdóttir, Klara Bragadóttir, Jórunn Edda Óskarsdóttir og Smári Pálsson. Aftari röð: Gunnhildur L. Marteinsdóttir, Rúnar Helgi Andrason, Inga Hrefna Jónsdóttir og Ella Björt Teague.
Sál­fræð­ingateymi Reykja­lundar. Fremri röð: Helma Rut Ein­ars­dóttir, Klara Braga­dóttir, Jórunn Edda Ósk­ars­dóttir og Smári Pálsson. Aftari röð: Gunn­hildur L. Mart­eins­dóttir, Rúnar Helgi Andrason, Inga Hrefna Jóns­dóttir og Ella Björt Teague.

Lang­flestir kom­ast þó hjá því að fara svo djúpt í van­líðan eftir áfall. En dep­urð og kvíði, jafn­vel mán­uðum saman, eru einnig kvillar sem fólk sem fékk COVID-19 er að upp­lifa og á þeim þarf líka að taka að mati Ingu Hrefnu. „Þetta er erfið lífs­reynsla, fólk hefur ein­angr­ast og jafn­vel lent í mik­illi hættu,“ segir hún. Þar sem um nýjan og lífs­hættu­legan sjúk­dóm er að ræða, sem stöðugt er fjallað um í fréttum, er „stór­hætta fyrir hendi á því að fólk fari að ofhugsa og oftúlka og sjái hið versta fyrir sér strax við grein­ingu“.

Að hennar sögn er mikið unnið með því að hjálpa fólki að kom­ast hjá því að detta í slíkan far­veg og hvetja það til að taka einn dag í einu. „Því fyrr sem gripið er inn í – því betra.“ Því er að hennar mati mik­il­vægt að fræðslan og stuðn­ing­ur­inn sem fólk fær strax við grein­ingu taki bæði á lík­am­legum og and­legum þáttum. „Fólk þarf að vita hverju það gæti átt von á, að það megi búast við streitu og kvíða en að þau ein­kenni séu ekki hættu­leg heldur eðli­leg miðað við aðstæður.“

Forðast verður vítahring hugsanaskekkju

Svo þarf að að sjá til þess að fólk geti leitað stuðn­ings og aðstoðar svo það byrgi ekki hugs­anir sínar inni og endi í víta­hring hugs­ana­skekkju og rangra hug­mynda. Þessar hug­myndir geta magn­ast upp þar sem margir fara að kenna sjálfum sér um að hafa veikst í stað þess að líta svo á að það að smit­ast af kór­ónu­veirunni geti komið fyrir okkur öll. „Í þessu sam­bandi er mjög mik­il­vægt að sam­fé­lagið fari ekki að kenna ein­hverjum ein­stak­lingum um þær aðstæður sem hafa skap­ast. Það gerir engum gott en getur valdið þeim sem smit­uð­ust van­líðan. Við þurfum að minna hvert annað á að þetta er eitt­hvað sem allir geta lent í og er ekk­ert til að skamm­ast sín fyrir.“

Þeir sem koma til end­ur­hæf­ingar á Reykja­lundi eru skimaðir fyrir kvíða og þung­lyndi og býðst sál­ræn aðstoð sem hluta af sinni með­ferð. Þeir geta einnig sjálfir óskað eftir því að hitta sál­fræð­ing. „Það er ekki bara þung­lyndi og kvíði sem fólk með lang­vinn veik­indi getur upp­lifað heldur líka breyt­ing á líf­inu, að vera allt í einu komið með sjúk­dóm eða eft­ir­köst veik­inda sem þarf að aðlag­ast. Fólk finnur að það getur ekki gert allt það sama og áður og því finnst mörgum erfitt að kyngja og þurfa stuðn­ing til að takast á við það.“

Heilsu­gæslan er í fram­lín­unni þegar kemur að því að veita aðstoð til þeirra sem fengu COVID-19. Innan hennar starfa sál­fræð­ingar. „Þannig að ef ein­hverjir sem fengu COVID-19 eru að glíma við sál­ræn ein­kenni eins og ég hef lýst þá er fyrsta skrefið að hafa sam­band við heilsu­gæslu­stöð,“ segir Inga Hrefna.

Hún minnir á að Alþingi hafi í vor sam­þykkt að fella sál­fræði­með­ferðir undir greiðslu­þátt­töku­kerfi Sjúkra­trygg­inga Íslands. Nið­ur­greiðsla á slíkum með­ferðum er þó ekki enn komin til fram­kvæmdar. „Þó að það sé búið að fjölga sál­fræð­ingum hjá heilsu­gæsl­unni þá eru þeir enn of fáir til að anna allri eft­ir­spurn. Þess vegna myndi það auð­vitað breyta miklu fyrir fólk að geta leitað til sál­fræð­inga á stofum eins og til sjúkra­þjálf­ara eða ann­arra sér­fræð­inga og fengið kostn­að­inn nið­ur­greiddan. Það má ekki vera þannig að fólk hiki við að leita sér þess­arar aðstoðar af því að það hafi ekki efni á henni en því miður er það stundum þannig í dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár