„Sé ekki hvað Ísland ætlar að koma með nýtt að borðinu“

„Það er í raun mjög lítið hægt að segja um hvað íslensk stjórn­völd ætla að gera í lofts­lags­málum eins og er,“ segir Finnur Ricart sem verður full­trúi ungra Íslend­inga á lofts­lags­ráð­stefn­unni í Glasgow.

Stefna íslenskra stjórn­valda í lofts­lags­málum gengur alls ekki nógu langt og Ísland er eft­ir­bátur ann­arra Norð­ur­landa í þessum efnum. Stjórn­völd segja mark­miðin metn­að­ar­full en þau eru það ekki í raun. Hið umtal­aða kolefn­is­hlut­leysi lands­ins árið 2040 er illa skil­greint og leiðin að því í besta falli óskýr.

Þetta segir Finnur Ricart sem verður full­trúi ung­menna í íslensku sendi­nefnd­inni á lofts­lags­ráð­stefn­unni COP26 í Glasgow. Til hennar fer hann með rútu og lest. Ferða­lagið hefst í Utrecht í Hollandi þar sem Finnur stundar nám í hnatt­rænum sjálf­bærni­vís­indum.

Umhverf­is­mál hafa brunnið lengi á Finni. Hann byrj­aði að láta til sín taka í mála­flokknum er hann var í mennta­skóla í Genf í Sviss árið 2018. Þar stofn­aði hann umhverf­is­ráð þar sem áhersla var m.a. lögð á flokkun sorps, bíl­lausan lífs­stíl og fleira af því tagi.

Spurður hvað hafi kveikt áhuga hans á lofts­lags­málum seg­ist hann oft hafa velt því fyrir sér og kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að það teng­ist áhuga hans á vís­indum frá unga aldri. „Ég hef alltaf sökkt mér í vís­inda­tíma­rit og einnig almennar fréttir og það fór að renna upp fyrir mér að umhverf­is­málin væru eitt­hvað sem þyrfti að taka alvar­lega og að ég vildi leggja mitt lóð á þær vog­ar­skálar.“

Finnst þér nógu langt gengið í stefnu íslenskra stjórn­valda í lofts­lags­málum?

„Nei, alls ekki,“ segir Finnur með áherslu. „Það vantar tals­vert upp á hana. Stjórn­völd segja mark­miðin vera metn­að­ar­full en þannig er það ekki í raun. Fastsett mark­mið Íslands er kolefn­is­hlut­leysi árið 2040 en það á ennþá eftir að skil­greina hvað kolefn­is­hlut­leysi þýðir í lög­unum og það er ekki búið að setja fram veg­ferð­ina sem á að leggja upp í til að ná þessu mark­miði. Það er ekki búið að upp­færa aðgerða­á­ætlun í sam­ræmi við þetta mark­mið. Það er ekki búið að skil­greina nákvæma pró­sentu­tölu í lands­fram­lagi Íslands í sam­vinnu við Evr­ópu­sam­bandið. Þannig að í raun er mjög lítið hægt að segja um hvað íslensk stjórn­völd ætla að gera í lofts­lags­málum eins og er.“

Þannig að mark­miðið hefur verið sett fram en ekki hvernig við ætlum að ná því?

„Já. Það er mikið talað en lítið gert.“

Af hverju held­urðu að það sé?

„Það er spurn­ingin sem við erum öll að spyrja okkur. Ég held að ein skýr­ingin sé ágrein­ingur milli þeirra flokka sem eru í rík­is­stjórn. Ef flokk­arnir væru meira sam­mála um hvað þarf að gera þá yrðu mark­miðin örugg­lega metn­að­ar­fyllri og aðgerð­irnar miklu meira áber­andi og í takti við þau mark­mið sem búið er að setja.

En kannski felst skýr­ingin líka í þrýst­ingi að utan, frá fyr­ir­tækjum eða öðrum aðilum.

Það er mjög erfitt að segja nákvæm­lega hvað skýrir þetta metn­að­ar­leysi og okkur, sem höfum verið að kalla eftir þessu lengi, finnst þetta skrítin staða.“

Finnur Ricart.
Finnur Ricart.

En hvað ættu stjórn­völd að gera að þínu mati?

„Ísland er rík þjóð miðað við flestar aðrar í heim­inum. Við erum heppin, ef þannig má að orði kom­ast, að vera á stað á jörð­inni þar sem lofts­lags­breyt­ingar bitna minna á fólki en ann­ars staðar eins og komið er. Þær eru þó að koma í ljós hér, sjór­inn er að súrna sem mun hafa áhrif á fiski­stofna og úrkomu­á­kefð er að aukast með til­heyr­andi skriðu­föllum.

Það sem íslensk stjórn­völd þurfa að átta sig á er að við erum í for­rétt­inda­stöðu. Og það þýðir að við erum í bestu mögu­legu stöðu til að grípa til rót­tækra aðgerða. Við getum lagt meira af mörkum til að leysa þennan hnatt­ræna vanda.

Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á hvern ein­stak­ling hér á landi er ein sú mesta í Evrópu og þar af leið­andi í heim­inum öllum. Þess vegna erum við hlut­falls­lega að hafa mikil áhrif til ham­fara­hlýn­unar. Það mun bitna á mörgum á vondan hátt. Sið­ferð­is­lega ætti Ísland því að vera að gera miklu, miklu meira.“

Við ættum sem sagt ekki að ganga jafn­langt og aðrar þjóðir heldur lengra að þínu mati?

„Já, af því að við höfum getu til þess. Í svona sam­eig­in­legu neyð­ar­á­standi þurfum við öll að átta okkur á hvaða ábyrgð við á Íslandi berum. Og Ísland ber meiri sið­ferð­is­lega ábyrgð en efna­minni lönd.“

Eftir því hefur verið kallað að íslensk stjórn­völd lýsi yfir neyð­ar­á­standi vegna ham­fara­hlýn­unar. Tekur þú undir það ákall eða breytir það engu ef áætl­anir til að bregð­ast við eru ekki til staðar?

„Þegar við höfum þrýst á stjórn­völd að lýsa yfir neyð­ar­á­standi hefur það einmitt verið sagt að það breyti engu vegna þess að aðgerða­á­ætl­anir vanti hvort eð er. En það skiptir mjög miku máli að svona yfir­lýs­ing komi, að stjórn­völd lýsi form­lega yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum. Því það mun svo lita aðgerð­irnar og öll við­brögð.

Þegar neyð­ar­á­standi er lýst yfir þurfa allar ákvarð­anir stjórn­valda að miða að því að losa okkur undan því. Það þarf að útfæra í hverju neyð­ar­á­standið fellst og hvernig eigi að bregð­ast við. Þetta þekkjum við vel úr far­aldr­inum. Það hefði ekki verið lýst yfir neyð­ar­á­standi ef engar aðgerðir hefðu fylgt til að leysa vand­ann sem skap­að­ist.

Að lýsa yfir neyð­ar­á­standi er fyrsta skrefið í að upp­lýsa almenn­ing um alvar­lega stöðu sem upp er komin sem allir þurfa í sam­ein­ingu að fást við. En af því að það er ekki gert þá eru enn margir sem átta sig ekki á því hversu alvar­legt ástandið í raun og veru er og hvaða áhrif það hefur haft og mun hafa.

Fólk er ef til vill hrætt við að við­ur­kenna að ástandið sé þegar orðið frekar slæmt og þar af leið­andi hrætt við það sem þarf að gera. Það gæti þurft að ráð­ast í aðgerðir sem sumum gæti þótt erfitt að kyngja en þær verða alltaf stærri og dýr­ari eftir því sem við bíðum lengur með þær.“

Landrof vegna hækkandi sjávarborðs ógnar mörgum samfélögum í Líberíu. Fátæktarhverfin í höfuðborginni Monróvíu eru á þeim slóðum þar sem landrofið, sem rakið er til loftslagsbreytinga, er hvað mest.
Landrof vegna hækk­andi sjáv­ar­borðs ógnar mörgum sam­fé­lögum í Líberíu. Fátækt­ar­hverfin í höf­uð­borg­inni Monróvíu eru á þeim slóðum þar sem land­rofið, sem rakið er til lofts­lags­breyt­inga, er hvað mest.

Rökin á móti rót­tækum aðgerðum eru oft einmitt þau að hér þurfi að halda uppi hag­vexti og almennri vel­sæld. Óttast þú ekki að kreppa muni hljót­ast af því að taka þessi mál fast­ari tökum?

„Nei, alls ekki. Sú kreppa kemur þegar áhrif lofts­lags­breyt­inga verða orðin alvar­legri. Þá fyrst förum við að sjá ham­farir sem munu valda fjár­hags­legu tapi. Það að ráð­ast í lofts­lags­að­gerðir núna er miklu, miklu ódýr­ara og mun borga sig marg­falt miðað við aðgerða­leysi. Og svo er spurn­ing hvort pen­ingar eigi að ráða för þegar manns­líf eru í hættu.

Síðan hafa lofts­lags­að­gerðir líka marg­vís­leg jákvæð marg­feld­is­á­hrif, til dæmis á heilsu fólks.“

Í lofts­lags­um­ræð­unni á Íslandi er orku­skiptum haldið hátt á lofti en að þá þurfi að virkja meira. Hvað segir þú um það?

„Orku­skiptin eru mik­il­væg en þau munu ein og sér ekki minnka losun Íslands nægi­lega mikið. Það er alls ekki rétt að það þurfi að virkja meira til orku­skipt­anna. Það er til feyki nóg af raf­magni á Íslandi. Um 80 pró­sent af því raf­magni sem er fram­leitt fer til stór­iðju. Orkutap verður einnig í flutn­ingi raf­orkunnar sem mæti bæta. Til að raf­væða allan bíla­flot­ann á Íslandi þyrfti 8 pró­sent af því raf­magni sem fram­leitt er í dag. Við þurfum að huga betur að því í hvað raf­orkan fer og hvernig henni er dreift.

Loftslag er bara ein breyta í heil­brigði líf­rík­is­ins á jörð­inni. Önnur stór breyta er líf­fræði­legur fjöl­breyti­leiki. Hann er jafn­mik­il­vægur og heil­brigt lofts­lag. Þannig að ef við fórnum líf­fræði­legum fjöl­breyti­leika til að bjarga lofts­lag­inu þá erum við bara að færa vand­ann til. Að virkja meira og eyði­leggja vist­kerfi til að bjarga lofts­lag­inu gengur ekki upp.

Það er mjög skilj­an­legt að lofts­lagið hafi fengið mikla athygli í umhverf­is­mál­unum. En það má ekki líta á lofts­lags­mál sem eitt­hvað ein­angrað fyr­ir­bæri. Þetta snýst allt um nátt­úr­una. Lofts­lags­breyt­ingar verða vegna þess að við höfum raskað ákveðnum hringrásum og jafn­vægi í líf­fræði­legum og nátt­úru­legum ferlum jarð­ar­innar.“

Ertu bjart­sýnn á að íslensk stjórn­völd taki á þessum málum eins og til þarf og þá með þessa þætti um líf­ríkið sem þú nefndir í huga?

„Að takast á við vand­ann er vel mögu­legt. Nýjasta skýrsla milli­ríkja­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar sýnir fram á það. Glugginn er ennþá opinn til að fara í þær aðgerðir sem við þurfum til að halda okkur innan við mark­mið Par­ís­ar­sátt­mál­ans sem er að halda hlýnun innan við 1,5 gráðu.

En er ég bjart­sýnn á að það verði gert? Svar mitt við því er að eina sem ég á eftir er vonin. Svo er það spurn­ing hvort að þessi von eigi við rök að styðj­ast eða hvort að hug­ar­far mitt sé of bjart­sýnt. En ég ætla að leyfa mér að halda í von­ina. Ef ég hef hana ekki þá er ekk­ert eftir.“

En skiptir fram­lag Íslands raun­veru­lega máli í stóru mynd­inni fyrir alla jörð­ina?

„Já, það skiptir gríð­ar­lega miklu máli. Hver komma, hver 0,01 gráða skiptir máli þegar kemur að hlýnun. Losun Íslands er ef til vill lítil miðað við losun alls heims­ins en það er einmitt það sem við ættum að nýta okkur. Við ættum að leyfa okkur að setja metn­að­ar­fyllri mark­mið en önnur lönd og sýna for­dæmi. Við ættum að sýna að við viljum vera fremst, í far­ar­broddi í lofts­lags­að­gerðum á heims­vísu.

Þótt þetta sé eflaust vilji margra stjórn­mála­manna þá hefur ekk­ert verið gert til að stuðla að því að við séum þessi fyr­ir­mynd. Öll hin Norð­ur­löndin hafa sett sér metn­að­ar­fyllri mark­mið en Ísland og eru með skýr­ari sýn á það hvernig þau ætli að ná þeim. Ísland er því eft­ir­bátur þeirra í þessum efnum.“

Við þurfum að velta fyrir okkur gildum okkar, segir Finnur. Hamingjan verður ekki keypt. Ekki einu sinni á útsölu.
Við þurfum að velta fyrir okkur gildum okkar, segir Finnur. Ham­ingjan verður ekki keypt. Ekki einu sinni á útsölu.

Hvaða aðgerðir ættum við að fara strax í að þínu mati? Getur þú nefnt til dæmis þrjár?

„End­ur­heimt vot­lendis það er það mesta og að sama skapi það auð­veldasta sem við getum gert til að draga úr losun. Þar sem þetta er gríð­ar­stór los­un­ar­þáttur á Íslandi ætti áherslan á þetta atriði að liggja í augum uppi.

Endurheimt

End­ur­heimtin er hafin en hún gengur hægt, lík­lega vegna þess að mikið af fram­ræstu vot­lendi er í einka­eigu. Það vantar vilja hjá land­eig­endum til að starfa með Vot­lend­is­sjóði og Land­græðsl­unni til að end­ur­heimta. Fjár­mun­irnir eru til staðar en það vantar betra fyr­ir­komu­lag til að fá fleiri land­eig­endur að borð­inu. Það þarf við­horfs­breyt­ingu og hún verður ekki nema að fólk fái réttar upp­lýs­ingar og geri sér grein fyrir stöð­unni og ávinn­ingnum. Þetta eigum við ekki aðeins að gera fyrir lofts­lagið heldur líka til að end­ur­heimta og við­halda líf­fræði­legum fjöl­breyti­leika. Votlendi eru mik­il­væg vist­kerfi sem hefur verið raskað.

Skipulag

Í öðru lagi langar mig að nefna skipu­lags­mál. Hvernig borgin okkar og bæir eru hann­aðir. Núna er Reykja­vík­ur­borg að miklu leyti hönnuð fyrir bíla. Það er sá raun­veru­leiki sem við erum föst í núna. En við þurfum að skapa okkur fram­sækna sýn á það hvernig við viljum sjá borg­ina okkar og sam­fé­lagið þró­ast til fram­tíðar. Við gætum kom­ist að því að við viljum fleiri göngu­götur, miklu betri almenn­ings­sam­göngur og færri bíla. Að þjón­usta fær­ist nær íbúum, komi aftur inn í hverfin. Með þessu væri hægt að draga úr losun frá sam­göngum og á sama tíma efla heilsu fólks og almenn lífs­gæði.

Neysla

Og í þriðja lagi ætla ég að nefna það sem ég hef mik­inn áhuga á og það er neysla. Í mínum huga á lofts­lags­vand­inn að miklu leyti rætur í gildum vest­ræns sam­fé­lags. Þá er ég ekki endi­lega bara að tala um kap­ít­al­isma heldur þá mæli­kvarða sem við setjum á það að vera mann­eskjur. Í því sam­bandi finnst mér mik­il­vægt að allri ábyrgð­inni sé ekki varpað á neyt­endur.

Það þurfa að verða breyt­ingar á gildum og neyslu­háttum í íslensku sam­fé­lagi. Að við hverfum frá því að finn­ast ham­ingjan fel­ast í því að kaupa nýja hluti sem svo enda í rusl­inu. Það þarf ekki að gefa eitt­hvað dót í jóla­gjöf. Það er hægt að gefa upp­lifun, fara saman í leik­hús eða á tón­leika svo dæmi sé tekið. Svona upp­lif­anir skapa yfir­leitt mun meiri og dýpri ham­ingju en það að eign­ast nýjan hlut.

Það má end­ur­skoða gildi sín. Að velta fyrir sér hvað manni finnst virki­lega mik­il­vægt í líf­inu. Far­ald­ur­inn var mörgum mjög erf­iður en á sama tíma fengum við mörg tæki­færi til að staldra við og hugsa og átta okkur á hvað okkur finnst virki­lega gef­andi og skemmti­legt í líf­inu. Þar sem sam­fé­lagið breytt­ist og er í mótun eftir far­ald­ur­inn er það mót­tæki­legra fyrir frek­ari breyt­ingum. Fólk er mót­tæki­legra núna fyrir aðgerðum sem ráð­ast þarf í vegna lofts­lags­breyt­inga en fyrir far­ald­ur­inn. En þetta tæki­færi er alls ekki verið að grípa nógu vel.“

Hvers væntir þú að lofts­lags­ráð­stefnan í Glasgow skili?

„Ég er enn að velta því fyrir mér hversu svart­sýnn eða bjart­sýnn ég eigi á að vera. Ég er til dæmis nokkuð bjart­sýnn á að ákveðið verði að setja meiri metnað í fjár­veit­ingar efna­meiri ríkja til þeirra efna­minni líkt og rætt hefur verið um á tveimur síð­ustu COP-ráð­stefnum en hefur ekki verið efnt.

Hvað varðar almenn mark­mið um sam­drátt í losun ríkja þá er ég með mis­miklar vænt­ingar eftir ríkjum. Í heild þá ætla ég að leyfa mér að vera mátu­lega bjart­sýnn í bili þótt ég vilji auð­vitað sjá sem besta útkomu.“

Halldór Þor­geirs­son for­maður Lofts­lags­ráðs sagði í við­tali nýverið að Ísland myndi skila auðu á ráð­stefn­unni þegar kæmi að okkar fram­tíð­ar­sýn. Ertu sam­mála því?

„Já, því að íslensk stjórn­völd hafa lítið skil­greint hvað þau ætli að gera til að ná mark­miðum. Þau stefna á kolefn­is­hlut­leysi 2040 sem eng­inn veit hvað þýðir og hvernig eigi að ná því. Hvað varðar upp­fært lands­fram­lag Íslands til lofts­lags­samn­ings­ins í sam­floti með Evr­ópu­sam­band­inu þá eru þau mark­mið langt frá því að vera nægi­lega metn­að­ar­full. Við erum efnað ríki í for­rétt­inda­stöðu og við eigum að gera miklu meira. Það er því mikið til í því sem Halldór sagði.

Ég sé ekki fyrir mér hvað Ísland ætlar að koma með nýtt að borð­inu. Við ættum að segja að nú munum við taka þessu alvar­lega og gera eins og hin Norð­ur­löndin hafa gert og setja okkur sjálf­stætt mark­mið. En ég sé því miður ekki fyrir mér að það verði gert.

Ef Ísland getur verið fyr­ir­mynd í jafn­rétt­is­málum getur það vel orðið fyr­ir­mynd­ar­land þegar kemur að sam­drætti í losun og lofts­lags­að­gerðum, sem er í raun líka mikið jafn­rétt­is­mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

COP26

Mest lesið undanfarið ár