Mynd: Bára Huld Beck

Eftirlaun ráðherra og þingmanna kostuðu ríkissjóð 876 milljónir króna í fyrra

Umdeild eft­ir­launa­lög ráða­manna frá árinu 2003 voru felld úr gildi 2009. Fjöldi ráða­manna fær þó enn greitt á grund­velli lag­anna, eða alls 257 fyrr­ver­andi þing­menn og 46 fyrr­ver­andi ráð­herrar.

Á árinu 2021 fengu alls 257 fyrr­ver­andi þing­menn eða vara­þing­menn greidd eft­ir­laun upp á sam­tals 694,4 millj­ónir króna í sam­ræmi við umdeild eft­ir­launa­lög sem sett voru árið 2003, en afnumin vorið 2009. Þeim sem fá greitt með þessum hætti hefur fjölgað um 64 á síð­ustu tveimur árum.

Auk þess fengu 46 fyrr­ver­andi ráð­herrar greitt sam­kvæmt lög­un­um, en greiðslur til þeirra námu sam­tals 181,5 millj­ónum króna. Það eru sex fleiri en fengu greitt á árinu 2019. Sam­tals námu því líf­eyr­is­greiðslur til þess hóps fyrr­ver­andi ráða­manna 875,9 millj­ónum króna, sem er 205,3 millj­ónum krónum meira en greitt var til þeirra á grund­velli eft­ir­launa­lag­anna árið 2019. Greiðsl­urnar hafa því auk­ist um 44 pró­sent á tveimur árum.

Þetta kemur fram í upp­lýs­ingum sem Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR) tók saman fyrir Kjarn­ann. Í svari sjóðs­ins er lögð áhersla á að greiðslur vegna þess­ara rétt­inda koma úr rík­is­sjóði en ekki frá LSR og felst aðkoma sjóðs­ins að mestu leyti í utan­um­haldi og afgreiðslu.

Þar kemur einnig fram að eng­inn fyrr­ver­andi þing­­maður né ráð­herra greiði lengur iðgjald til sjóðs­ins af föstu starfi á vegum rík­­is­ins eða stofn­ana þess.

Fyrrverandi forsætisráðherra með 1,9 milljón á mánuði

Hægt er að þiggja eft­ir­launin þótt við­kom­andi starfi áfram. Þannig háttar til að mynda með Davíð Odds­son, rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Davíð varð 74 ára síð­ast­lið­inn mánu­dag. Davíð hefur getað þegið eft­ir­launin frá 65 ára aldri, eða í níu ár.

Í tekju­blaði Frjálsrar versl­unar sem kom út í fyrra kom fram að Davíð hafi verið að með­al­tali með tæpar 5,5 millj­ónir króna í tekjur á árinu 2020. Þorri þeirrar upp­hæðar kemur til vegna launa sem rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins.

Þegar hann bauð sig fram til for­seta sum­arið 2016 greindi Davíð hins vegar frá því að hann hefði 80 pró­sent af launum for­sæt­is­ráð­herra í eft­ir­laun auk þess sem hann á þeim tíma fékk um 70 þús­und krónur eftir skatt í eft­ir­laun vegna starfa sinna sem seðla­banka­stjóri eftir að hann hætti á þingi. ​​Sam­tals eru laun Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra nú 2.360.053 krónur á mán­uði. Samkvæmt því er Davíð með tæp­lega 1,9 millj­ónir króna í eft­ir­laun á mán­uði vegna ráð­herra­setu hans.

Davíð Oddsson bauð sig fram til forseta Íslands 2016, en hafði ekki erindi sem erfiði. Hann hefur verið ritstjóri Morgunblaðsins frá 2009. Mynd: Bára Huld Beck
Davíð Oddsson bauð sig fram til for­seta Íslands 2016, en hafði ekki erindi sem erf­iði. Hann hefur verið rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins frá 2009. Mynd: Bára Huld Beck

Davíð er eini fyrr­ver­andi ráð­herr­ann sem fær 80 pró­sent af launum eft­ir­manns síns, en aðrir slíkir fá 70 pró­sent þeirra. Ástæðan er sú að sér­stakt ákvæði var sett í lögin sem tryggði for­sæt­is­ráð­herra sem hefði setið lengur en tvö kjör­tíma­bil 80 pró­sent af launum starf­andi for­sæt­is­ráð­herra. Þegar lögin voru sam­þykkt var Davíð að hefja sitt fjórða kjör­tíma­bil sem for­sæt­is­ráð­herra. Hann færði sig skömmu síðar yfir í utan­rík­is­ráðu­neytið og hætti í stjórn­málum árið 2005, þá tæp­lega 58 ára gam­all. Sama ár var hann gerður að seðla­banka­stjóra og starf­aði sem slíkur til 2009. Nokkrum mán­uðum eftir að Davíð var gert að hætta sem seðla­banka­stjóri tók hann við rit­stjórn Morg­un­blaðs­ins og hefur setið í þeim stól alla tíð síðan.

Umdeild lög sem afnumin voru eftir banka­hrun

Greiðsl­­urnar sem raktar eru hér að ofan eru, líkt og áður sagði, sam­­kvæmt rétt­indum sem áunnin voru vegna laga sem sam­­þykkt voru árið 2003 um eft­ir­­laun for­­seta Íslands, ráð­herra, alþing­is­­manna og hæsta­rétt­­ar­­dóm­­ara eða eldri laga um líf­eyr­is­­sjóði alþing­is­­manna og ráð­herra.

Lög­­in, sem voru afar umdeild og juku eft­ir­­launa­rétt­indi þing­­manna og ráð­herra stór­­kost­­lega, voru afnumin með lögum 25. apríl 2009. Því er starf­andi þing­­maður eða ráð­herra ekki lengur að vinna sér inn rétt­indi sam­­kvæmt gömlu og umdeildu eft­ir­­launa­lög­un­­um.

Í dag greiða þing­­menn og ráð­herrar ein­fald­­lega í A-deild LSR og ávinna sér þar sam­s­­konar rétt­indi og allir aðrir sjóðs­fé­lagar.

Þeir sem höfðu áunnið sér rétt til töku líf­eyris áður en eft­ir­­launa­lögin voru afnumin halda þó sínum áunnu rétt­ind­­um. Það á við um alla þing­menn og ráð­herra sem greiddu iðgjöld sam­kvæmt lög­unum frá því að þau tóku gildi 2003 og þangað til að þau voru afnumin skömmu eftir banka­hrun­ið.

Fjöldi þeirra fyrrum þing­­­manna eða vara­­­þing­­­manna sem þiggja eft­ir­­­laun sam­­kvæmt lög­­unum frá 2003 fjölg­aði tölu­vert ár frá ári eftir að lögin voru sam­­þykkt. Árið 2007 voru þeir 129 tals­ins og voru orðnir 218 árið 2013.

Árið 2019 voru þeir 193 og 257 í fyrra. Þeim fjölg­aði því um þriðj­ung á tveimur árum.

Ráð­herrar sem fengu greidd eft­ir­­laun sam­­kvæmt lög­­unum voru 35 árið 2007 og voru orðnir 49 árið 2013. Árið 2019 voru þeir hins vegar 40 tals­ins og 46 í fyrra.

Rýmri eft­ir­launa­réttur vegna þess að það var erfitt að fá vinnu

Frum­varpið umdeilda varð að lögum í des­em­ber 2003. Fyrir utan að það fæli í sér mun rýmri eft­ir­­­launa­rétt­indi fyrir for­­­seta Íslands, ráð­herra, þing­­­menn og hæsta­rétt­ar­dóm­ara en tíð­k­að­ist almennt þá var einnig kveðið á um það að fyrr­ver­andi ráð­herrar sem höfðu setið lengi gætu farið á eft­ir­­laun við 55 ára ald­­ur.

Flutn­ings­­­menn frum­varps­ins voru upp­­­haf­­­lega úr öllum stjórn­­­­­mála­­­flokkum sem þá sátu á Alþingi. Eftir að inn­­i­hald þess komst í umræð­una sner­ist hluti flutn­ings­­­manna gegn því. Hall­­­dór Blöndal mælti fyrir frum­varp­inu, en hann hafði lengi verið þing­­­maður og ráð­herra Sjálf­­­stæð­is­­­flokks­ins.

Í grein­­ar­­gerð frum­varps­ins sagði að skýr­ing þess að umræddur hópur ráða­­manna ætti að fá rýmri eft­ir­­launa­rétt en aðrir væri sú að þetta væru æðstu opin­beru emb­ætti og störf í þjóð­­fé­lag­inu og vanda­­söm eftir því. „For­­seti Íslands og alþing­is­­menn þiggja umboð sitt til starfa beint frá þjóð­inni í almennum kosn­­ingum og sækja end­­ur­nýjun þess á a.m.k. fjög­­urra ára fresti. Sama gildir í raun og veru um ráð­herra. Það er því lýð­ræð­is­­leg nauð­­syn að svo sé búið að þessum emb­ættum og störfum að það hvetji til þátt­­töku í stjórn­­­málum og að þeir sem verja meg­in­hluta starfsævi sinnar til stjórn­­­mála­­starfa á opin­berum vett­vangi og gegna þar trún­­að­­ar- og for­ust­u­­störfum geti dregið sig í hlé og vikið fyrir yngra fólki án þess að hætta fjár­­hags­­legri afkomu sinn­i.“

Þá sagði einnig að það væri mik­ils­vert í lýð­ræð­is­­þjóð­­fé­lagi að ungt efn­is­­fólk gæfi kost á sér til stjórn­­­mála­­starfa og þyrfti ekki að tefla hag sínum í tví­­­sýnu með því þótt um tíma byð­ust betur launuð störf á vinn­u­­mark­aði. „Svo virð­ist sem starfs­­tími manna í stjórn­­­málum sé að stytt­­ast eftir því sem sam­­fé­lagið verður opn­­ara og marg­þætt­­ara og fjöl­miðlun meiri og skarp­­ari. Við því er eðli­­legt að bregð­ast, m.a. með því gera þeim sem lengi hafa verið í for­ust­u­­störfum í stjórn­­­málum kleift að hverfa af vett­vangi með sæmi­­lega örugga afkomu og án þess að þeir þurfi að leita nýrra starfa seint á starfsæv­inn­i.“

Stjórn­ar­þing­menn auk eins ann­ars tryggðu mál­inu fram­gang

Allir þing­­­menn Sjálf­­­stæð­is­­­flokks og Fram­­­sókn­­­ar­­­flokks, sem mynd­uðu rík­­­is­­­stjórn þess tíma, greiddu atkvæði með frum­varp­inu. Aðrir greiddu ýmist atkvæði á móti eða sátu hjá, nema Guð­­­mundur Árni Stef­áns­­­son, þá þing­­­maður Sam­­­fylk­ing­­­ar­inn­­­ar, en hann var einn flutn­ings­­­manna frum­varps­ins. Guð­­­mundur Árni greiddi atkvæði með því að frum­varpið yrði að lög­­­­­um.

Í des­em­ber 2008, fimm árum og einum degi eftir að eft­ir­­­launa­lögin voru sam­­­þykkt, breytti Alþingi þeim og hækk­­­aði meðal ann­­­ars lág­­­marks­aldur við eft­ir­­­launa­­­töku úr 55 árum í 60.

Eftirlaunalögin voru afnumin í tíð vinstri stjórnarinnar sem Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigússon leiddu, og sat á árunum 2009 til 2013.
Eft­ir­launa­lögin voru afnumin í tíð vinstri stjórn­ar­innar sem Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir og Stein­grímur J. Sigússon leiddu, og sat á árunum 2009 til 2013.

Áunnin rétt­indi stóðu hins vegar eftir óskert og því ljóst að margir fyrrum for­víg­is­­­menn stjórn­­­­­mál­anna hafi náð að safna tölu­verðum rétt­indum á meðan að lögin voru í gildi. Lögin umdeildu voru loks afnumin vorið 2009 hvað varðar þing­­­menn og ráð­herra þó kafl­­­arnir um hæsta­rétt­­­ar­­­dóm­­­ara og for­­­seta hafi verið látnir halda sér. Málið var á meðal þeirra sem röt­uðu í verk­efna­­skrá minn­i­hluta­­stjórnar Sam­­fylk­ingar og Vinstri grænna, sem var varin af Fram­­sókn­­ar­­flokkn­um, og sat frá byrjun febr­­úar 2009 og fram að kosn­­ingum í apríl sama ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár