Banki sagði Samherja tengjast félagi í skattaskjóli sem útgerðin sver af sér
Samherji sver af sér tengsl við eignarhaldsfélag í skattaskjólinu Marshall-eyjum sem notað var til að greiða laun starfsmanna útgerðarinnar í Afríku. Gögn frá DNB-bankanum sýna hins vegar að fjármálastjóri hjá Samherja hafði réttindi til að stýra bankareikningi félagsins og að bankinn taldi félagið lúta stjórn Samherja.