Allt af létta

Vill að unga fólkið taki við kefl­inu í ham­fara­f­rétt­unum

Fréttir af eld­gos­inu sem hófst á mánu­dag hafa verið fyr­ir­ferð­ar­miklar í vik­unni. Fyrir Stöð 2 stendur frétta­mað­ur­inn Kristján Már Unn­ars­son ham­fara­vakt­ina og birt­ist áhorf­endum, oftar en ekki íklæddur gulu vesti á vett­vangi, með nýj­ustu tíð­indi af hraun­flæði og gasmengun. Hann sagði Heim­ild­inni allt af létta um starf frétta­manns í eld­gosa­tíð.
SkýringLaxeldi

Svört skýrsla en áhrifin af stærstu slysa­slepp­ingu sög­unnar hafa ekki komið fram

Haf­rann­sókn­ar­stofnun hefur gefið út skýrslu um erfða­blöndun eld­is­laxa og villtra íslenskra laxa. Þó að erfðla­blönd­unin sem bent er á í skýrsl­unni sé tals­verð þá tekur hún ekki til stærstu slysa­slepp­ingar Íslands­sög­unnar upp á 82 þús­und laxa. Guðni Guð­bergs­son hjá Hafró segir að áhrif þeirrar slysa­slepp­ingar komi ekki fram fyrr en á næstu árum.
Fréttir

Gylfi hefur fengið 50 millj­ónir frá ráðu­neytum og und­ir­stofnun Ásmundar Einars

Á þremur árum hefur Gylfi Arn­björns­son, fyrr­ver­andi for­seti ASÍ, fengið greiddar rúmar 50 millj­ónir króna frá félags­mála­ráðu­neyt­inu, Vinnu­mála­stofnun og mennta­mála­ráðu­neyt­inu. Ásmundur Einar Daðason var félags­mála­ráð­herra þegar greiðslur þaðan og frá Vinnu­mála­stofnun voru inntar af hendi. Þegar Ásmundur Einar fór yfir í mennta­mála­ráðu­neytið fylgdi Gylfi honum þangað.
Fréttir

Borgin standi í vegi fyrir „stór­fjöl­skyldu­húsi“ sem þjóni þörfum sam­fé­lags­ins

Skipu­lags­full­trú­inn í Reykja­vík­ur­borg fékk nýlega inn á sitt borð hug­mynd að húsi á óbyggðri lóð í Blesu­gróf, sem var með átta svefn­her­bergjum. Hvert og eitt her­bergi var með sal­ern­is­að­stöðu, sturtu og eld­hús­krók. Eigandi lóð­ar­innar og arki­tekt hafna því að hug­myndin hafi verið að byggja margar litlar útleigu­ein­ingar og telja emb­ætt­is­menn borg­ar­innar standa í vegi fyrir arki­tektúr sem þjóni þörfum sam­fé­lags­ins.
FréttirBlóðmerahald

Átta fyl­fullar hryssur drápust í tengslum við blóð­töku

Sér­greina­dýra­læknir hrossa hjá MAST segir það „enga kata­st­rófu“ þótt átta fyl­fullar hryssur hafi dáið eftir blóð­töku á vegum Ísteka síð­asta sumar. Staðfest þykir að að minnsta kosti ein hryssa dó vegna stung­unnar og blæddi út og telja bæði MAST og Ísteka reynslu­leysi dýra­lækn­is­ins mögu­lega um að kenna. Hinar fund­ust dauðar 2–3 dögum eftir blóð­tök­una.

9 mín. lestur

ViðtalBlóðmerahald

Ísteka: Reynslu­leysi dýra­lækna lík­leg­asta skýr­ingin

Íslenskir dýra­læknar hættu störfum hjá Ísteka eftir nei­kvæða umfjöllun um starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Þrír pólskir dýra­læknar, sem enga reynslu höfðu af blóð­töku úr fyl­fullum hryssum, voru ráðnir. Þeir fengu þjálfun hjá Ísteka en reynslu­leysi er að mati fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins lík­leg­asta orsök þess að átta hryssur drápust í tengslum við blóð­tök­una í fyrra.
Afhjúpun

„Gjordist Thor­gerður heldur óð“ – Sumar í utan­rík­is­þjón­ustu Samherja

Íslensk stjórn­völd beittu fær­eysk ráðu­neyti miklum þrýst­ingi þegar breyta átti lögum um erlent eign­ar­hald í fær­eyskum sjáv­ar­út­vegi, sem snertu hags­muni eins íslensks fyr­ir­tækis. Þetta sýna gögn sem Heim­ildin fékk afhent úr tveimur fær­eyskum ráðu­neytum og íslensk stjórn­völd vildu ekki að birt­ust almenn­ingi. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, sem fyrir tveimur árum þvertók fyrir að hafa rætt málið við fær­eysk stjórn­völd, gerði það hins vegar og flutti að sögn reiði­lestur yfir fær­eyskum starfs­bróður sínum.

22 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár