Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Þegar skrímslið er klætt í pels

Íslensk stjórn­völd eru farin að fram­leiða nýja teg­und af heim­il­is­leysi með stefnu sinni í mál­efnum flótta­fólks. Á sama tíma og atvinnu­leysi er lítið sem ekk­ert og eft­ir­spurn eftir fólki er gríð­ar­leg er verið að ýta ákveðnum hópum í neyð í burtu. Til þess að verja þessa ómann­úð­legu stefnu eru notuð allskyns huggu­leg orð yfir hræði­lega hluti.

11 mín. lestur

8:27
ViðtalLíf með Downs

„Ég safna graf­skriftum“

Flestir Kefl­vík­ingar þekkja Davíð Má Guð­munds­son sem er 41 árs bor­inn og barn­fæddur Kefl­vík­ingur. Bróðir Davíðs segir hann með vin­sælli mönnum í Reykja­nesbæ og að bæj­ar­búar stoppi til að spjalla við hann þegar hann er á ferð­inni. Davíð er mik­ill safn­ari og safnar til að mynda laga­textum, krossum og graf­skriftum. Hann er söng­elskur og hefur tekið lagið með MC Gauta og Sölku Sól.
Fréttir

Skert ferða­frelsi og örygg­is­gæsla í „búsetu­úr­ræði með tak­mörk­unum“

Ferða­frelsi fólks sem hefur verið synjað um vernd hér og fer ekki úr landi verður tak­markað og örygg­is­gæsla við íveru­stað þeirra gangi hug­myndir Guðrúnar Haf­steins­dóttur, dóms­mála­ráð­herra um „búsetu­úr­ræði með tak­mörk­unum“ eftir. Hún segir að laga­legur mis­skiln­ingur sé á milli dóms­mála- og félags­mála­ráðu­neytis hvað varðar þjón­ustu við fólkið sem um ræði.
Fréttir

Kjálka­nes hagn­að­ist um 4,4 millj­arða og á 28 millj­arða í eigið fé

Fjár­fest­inga­fé­lag í eigu Björg­ólfs Jóhanns­sonar og aðila sem tengj­ast honum fjöl­skyldu­böndum er á meðal stærstu eig­enda Síld­ar­vinnsl­unnar og Sjóvá. Þá er félagið stærsti hlut­haf­inn í Norð­ur­böðum, sem eiga Jarð­böðin á Mývatni og Sjóböðin á Húsavík. Það borg­aði hlut­höfum sínum 850 millj­ónir króna í arð vegna síð­asta árs.
FréttirSamherjaskjölin

Inga þakkar Samherja fyrir en telur að kvóta­kerfið hafi lagt landið í auðn

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, seg­ist hafa slíðrað sitt póli­tíska sverð þegar hún söng á Fiskideg­inum mikla á Dalvík um helg­ina. Hún skrifar þakk­ar­grein í Moggann í dag og þakkar Samherja fyrir Fiski­dag­inn. Samkvæmt Ingu kom hún ekki fram á Fiskideg­inum sem stjórn­mála­maður heldur sem mann­eskja í sum­ar­fríi.
Fréttir

Dyrnar á fang­els­inu opnar en engin leið að ganga út um þær

Í dag eru tvö ár liðin síðan talí­banar náðu fullum völdum yfir heima­landi Zöhru Hussaini. Kyn­systrum hennar sem enn búa þar er neitað um sjálf­sögð mann­rétt­indi eins og ferða­frelsi, menntun og atvinnu. Á sama tíma hafa íslensk stjórn­völd hert útlend­inga­lög þannig að Íslend­ingar taka nú jafn illa á móti fólki á flótta og Íranir, að mati Zöhru sem sjálf dvaldi í Íran sem barn á flótta.
Fréttir

Segir fólk sem fær ekki vernd geta sótt um aðstoð hjá sveit­ar­fé­lögum

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra segir skýrt í lögum að ef fólk sem hefur verið synjað um alþjóð­lega vernd vill ekki fara af landi brott geti það sótt um aðstoð hjá sveit­ar­fé­lag­inu sem það dvelur í. „Þó að ein­hver sveit­ar­fé­lög kann­ist ekki við það laga­á­kvæði núna þá var um það fjallað í umræð­unni í vor,“ segir hún. Sveit­ar­fé­lögin gagn­rýna ríkið harð­lega í yfir­lýs­ingu og segja það bera ábyrgð á mála­flokknum.
FréttirBrjóstapúðaveiki

Bumbu­bolta­karlar sleppa með skrekk­inn en ekki brjóstapúða­konur

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, segir fárán­legt að konur þurfi sjálfar að standa straum af kostn­aði við að láta fjar­lægja brjóstapúða sem eru að gera þær veikar. Ekki eigi að refsa fólki fyrir það að veikj­ast, sama hvaða ástæður liggja þar að baki. Aðgerð til þess að fjar­lægja brjóstapúða kostar mörg hund­ruð þús­und krónur og er ekki nið­ur­greidd af Sjúkra­trygg­ingum Íslands.
Fréttir

Sveit­ar­fé­lög gagn­rýna ríkið harð­lega vegna áhrifa þjón­ustu­svipt­ingar

Bæði Samtök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga gagn­rýna stjórn­völd fyrir þau áhrif sem breyt­ingar á útlend­inga­lögum eru nú byrj­aðar að hafa. Sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fara fram á sam­tal við félags­mála­ráð­herra og dóms­mála­ráð­herra án tafar.
FréttirLaxeldi

Höfundur áhættu­mats Hafró hlut­hafi í eld­is­fyr­ir­tæki með stofn­anda Arctic Fish

Rann­sókn­ar­stjóri fisk­eldis hjá Haf­rann­sókn­ar­stofnun á hluta­bréf í eld­is­fyr­ir­tæki í Grinda­vík sem fram­leiðir sæeyru. Stjórn­ar­for­maður fyr­ir­tæk­is­ins, Sigurður Pét­urs­son, er stofn­andi og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Arctic Fish á Ísafirði sem seldi sig út úr fyr­ir­tæk­inu í fyrra fyrir tæpa tvo millj­arða króna. Umræddur starfs­maður Hafró, Ragnar Jóhanns­son er einn af höf­undum stefnu­mark­andi gagns um áhættu­mat erfða­blönd­unar í íslensku lax­eldi. Hann telur teng­ing­una við Sigurð langsótta.

Mest lesið undanfarið ár