GreiningHátekjulistinn 2023

Miklu betur borgað að gæta hags­muna atvinnu­lífs­ins en launa­fólks

Fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins fékk rúm­lega 4,1 milljón á mán­uði fyrir hags­muna­gæslu og stjórn­ar­for­mennsku í banka á síð­asta ári. Helsti hags­muna­vörður sjáv­ar­út­vegs­ins var með hærri laun í fyrra en fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins. Formaður stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins var með tæp­lega 40 pró­sent af launum hennar á mán­uði á árinu 2022. Heim­ildin birtir lista yfir launa­kjör helstu hags­muna­varða atvinnu­lífs og for­ystu­fólks innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar.
GreiningHátekjulistinn 2023

Ellefu karlar, tvær konur og tveir sem heita Jón Sig­urðs­son á list­anum yfir launa­hæstu for­stjór­ana

For­stjóra­launin eru í flestum til­fellum betri hjá þeim fyr­ir­tækjum sem ekki eru skráð á markað, og eru í eigu erlendra aðila. Alls voru 13 for­stjórar með meira en átta millj­ónir króna á mán­uði í laun á síð­asta ári. Það tók þann sem var með hæstu launin um ell­efu daga að vinna sér inn mið­gildi heild­ar­launa allra Íslend­inga á einu ári. Heim­ildin birtir lista yfir launa­hæstu for­stjóra lands­ins.
Greining

Haraldur þén­aði 46 millj­ónir á mán­uði en launin voru samt helm­ingi lægri en árið áður

Tveir Íslend­ingar þén­uðu yfir 100 millj­ónir króna á mán­uði í laun á árinu 2021. Sá sem var með hæstu launa­tekjur á land­inu á árinu 2021 þén­aði ein­ungis um fjögur pró­sent af þeim í fyrra en var samt með marg­föld reglu­leg íslensk heild­ar­laun. Hinn, Haraldur Ingi Þor­leifs­son, var enn með hæstu launa­tekjur allra Íslend­inga á síð­asta ári, og borg­aði yfir 250 millj­ónir króna í skatta.
Vettvangur

Ráðgáta á Akranesi: Hvaðan er vatnið að koma?

Íbúar á Akranesi eru sumir hverjir ugg­andi yfir kenn­ingum þess efnis að jarð­veg­ur­inn í stórum hluta mið­bæj­ar­ins sé mun blaut­ari en eðli­legt geti talist. Veitur finna engan leka í sínum kerfum. Bærinn hefur ráðið verk­fræði­stofu til að skoða málið. Bæj­ar­full­trúi segir ekki til­efni til að hræða fólk á meðan eng­inn viti neitt. Einn helsti áhrifa­mað­ur­inn í atvinnu­lífi bæj­ar­ins hefur staðið fyrir eigin rann­sóknum á mál­inu.

12 mín. lestur

FréttirPlastbarkamálið

Land­spít­al­inn skilur að ekkja plast­barka­þeg­ans telji sig eiga rétt á skaða­bótum

Land­spít­ali-háskóla­sjúkra­hús harmar aðkomu stofn­un­ar­innar að plast­barka­mál­inu svo­kall­aða. Í júní var ítalski skurð­lækn­ir­inn Paulo Macchiarini dæmdur í tveggja og hálfs árs fang­elsi fyrir að hafa grætt plast­barka í þrjá ein­stak­linga í Svíþjóð. Einn þeirra var Andemariam Beyene sem sendur var frá Land­spít­al­anum til Sví­þjóðar þar sem hann var not­aður sem til­rauna­dýr í aðgerð sem ekki voru lækn­is­fræði­legar for­sendur fyrir.
Greining

F-16 þotur til Úkraínu: Af hverju vill Zelensky hálfrar aldar gamlar þotur?

Banda­ríkja­þing sam­þykkti í gær (fimmtu­dag­inn 17. ágúst) að Dönum og Hol­lend­ingum væri heim­ilt að láta Úkra­ínu­mönnum í té her­þotur af gerð­inni F-16 en þær eru fram­leiddar í Banda­ríkj­unum. Því er fagnað í Úkraínu þótt þar hefðu margir kosið að þessi ákvörðun hefði verið tekin mun fyrr. Í marga mán­uði hafa Úkra­ínu­menn beðið vest­ræna banda­menn sína um þessar F-16 þotur. Rússar...

Mest lesið undanfarið ár