22:30
Viðtal

Eins manns harm­leikur er ann­ars afþrey­ing

Inga Krist­jáns­dóttir er ókrýnd saka­mála­hlað­varps­drottn­ing Íslands. Í sumar fór hún til Banda­ríkj­anna og stund­aði myrka ferða­mennsku þegar hún heim­sótti meðal ann­ars heim­ili Ted Bundy og var við­stödd fyr­ir­töku í máli grun­aðs morð­ingja í Idaho. Hún seg­ist skilja þau sem furða sig á því hvernig hún geri afþr­ey­ingu úr harm­leik ann­arra en segir þetta allt snú­ast um for­vitni og að segja sögur.

8 mín. lestur

Flækjusagan

Er „draug­ur­inn“ fund­inn? – Áður óþekkt teg­und manna leynd­ist í helli í Kína

Sú var tíð að for­saga manns­ins virt­ist ein­föld. Frá suð­ur­öpum þró­að­ist homo habilis og síðan kom fram homo erectus og þegar hann hafði gengið sitt skeið birt­ist homo sapi­ens með hlið­ar­grein Neand­er­dals­manna. En vís­inda­menn hafa nú fyrir all­nokkru afskrifað þessa ein­földu mynd eftir að hafa kom­ist á snoðir um að mann­teg­und­irnar voru í raun mun fleiri. Og nú er „ný“ teg­und fundin í Kína sem ekki er gott að segja hvar passar inn í mynd­ina.
FréttirLaxeldi

„Ég held að það sé mik­il­vægt að sveit­ar­fé­lagið standi ekki í skuld við fyr­ir­tæki“

Ásrún Mjöll Stef­áns­dóttir, sveit­ar­stjórn­ar­kona VG í Múla­þingi, segir að það sé mik­il­vægt að settar verði reglur á sveita­stjórn­ar­stig­inu um gjafir frá fyr­ir­tækjum. Nýlega gaf Fiskeldi Aust­fjarða 6 til 8 millj­óna króna gjöf í formi meng­un­ar­varna til Seyð­is­fjarð­ar­bæjar. Yfir­hafn­ar­vörður segir málið verið storm í vatns­glasi þar sem höfnin hafi upp­haf­lega ætlað að kaupa bún­að­inn af Fiskeldi Aust­fjarða.
Fréttir

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hættir og byrjar aftur í fjórða sinn að kanna eigna­tengsl í sjáv­ar­út­vegi

Sam­keppn­is­eft­ir­litið mun halda áfram könnun á eigna­tengslum í sjáv­ar­út­vegi, en án samn­ings og fjár­magns úr ráðu­neyti sjáv­ar­út­vegs­mála. Þetta ger­ist í kjöl­far þess að áfrýj­un­ar­nefnd Sam­keppn­is­mála taldi það ekki sam­rým­ast hlut­verki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að gera slíka rann­sókn, að beiðni og með fjár­mögnun ráðu­neytis.
Viðtal

„Munum aldrei mæta allri orku­þörf allra“

Ef ekki verða sett lög um for­gang almenn­ings að orku verður honum smám saman þrýst út af orku­borð­inu og þá stundum ofan í olíu­tunnu. Því þótt borðið svigni vissu­lega af end­ur­nýj­an­legri orku verður það alltaf tak­markað að stærð. Nú þegar eft­ir­spurnin hefur marg­fald­ast og salan auk­ist er gott að hugsa um „orku­skort hverra“ og þá stað­reynd að almenn­ingur notar aðeins um 5 pró­sent raf­orkunnar, segir Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­stjóri. „Því þetta verður alltaf val – hversu mikið þú ætlir að selja og í hvað.“
Viðtal

„Hlökkum meira til Reykja­vík Bear en til jól­anna“

Gunnar Vermund og Pilu Arnoldi voru á bangsa­há­tíð­inni á Íslandi árið 2015 þegar þeir urðu ást­fangnir. Upp­haf­lega kynnt­ust þeir á stefnu­móta­app­inu Grindr en voru fyrst um sinn bara vinir. Báðir hafa þeir upp­lifað for­dóma frá heit­trú­uðum ætt­ingjum en hafa það gott í Danmörku. Þegar þeir giftu sig voru þeir íklæddir þjóð­bún­ingum heima­landa sinna, Græn­lands og Færeyja.

Mest lesið undanfarið ár