FréttirLaxeldi

For­stjóri Arctic Fish segir skoðun á kyn­þroska eld­is­laxa í slysa­slepp­ingu ólokið

Stein Ove Tveiten, for­stjóri Arctic Fish, getur ekki svarað spurn­ingum um hvort ljós­stýr­ing hafi verið notuð eða ekki í kví félags­ins í Pat­reks­firði. 3500 laxar sluppu úr kvínni í sumar og er grunur um að stór hluti þeirra hafi verið kyn­þroska vegna mis­taka við ljósa­stýr­ingu. Slíkt væri brot á rekstr­ar­leyfi Arctic Fish.
1:04
FréttirLaxeldi

Eld­is­laxar verða „villtir“ við strok sam­kvæmt lögum

Um leið og eld­is­lax sleppur úr kví hefur hann fengið sömu stöðu og villtir frændur hans gagn­vart lögum. Hinn villti eld­is­lax á sér því ekki skjól í dýra­vel­ferð­ar­lögum og er nú skutl­aður til dauða af svart­klæddum frosk­mönnum í vest­firskum ám. Félagar hans sem ekki náðu að strjúka verða hins vegar rot­aðir og blóðg­aðir svo þeir þjá­ist sem minnst við slátrun.
GagnrýniSund Tjarnarbíó

Himnesk í eitt augna­blik

Leikárið er hafið! Þá er kjörið að stinga sér lóð­beint til sunds við Tjörnina, athugið við Tjörnina ekki í Tjörnina. Tjarn­ar­bíó, vett­vangur sjálf­stæðu sviðs­list­anna, þurfti að troða mar­vað­ann í sumar til að halda starf­semi sinni á floti og var tíma­bundið komið í örugga höfn, í bili, eftir að ríki og borg köst­uðu út björg­un­ar­hring. Þetta verður síð­asta sund­lík­ingin í bili. Nú...
FréttirSamráð skipafélaga

SA seg­ist ekki mega reka Pálmar sem neitar að hætta

Samtök atvinnu­lífs­ins telja sér óheim­ilt að víkja Pálmari Óla Magn­ús­syni full­trúa úr stjórn­ar­for­manns­stóli líf­eyr­is­sjóðs­ins Birtu og hafa óskað eftir því að FME end­ur­skoði hæfi hans eftir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið lýsti honum sem lyk­il­manni í ólög­legu sam­ráði skipa­fé­lag­anna. Pálmar hefur sjálfur neitað að víkja.
Viðtal

„Ég vona að ég eigi aldrei eftir að sökkva svo djúpt aftur“

Egill Helgason er á tíma­mótum. Hann er hættur með Silfrið sem lengi var kennt við hann sjálfan, helsta póli­tíska umræðu­þátt lands­ins. Hann seg­ist í upp­hafi hafa skolfið eins og lauf í vindi þegar hann var í sjón­varpi en elski nú að vera í beinni. Egill kynnt­ist eig­in­konu sinni á nekt­ar­stað og þau eign­uð­ust son ári síðar. Hann rifjar upp þegar ölv­aður þing­maður mætti til hans í settið og þegar hann fleygði vatns­könnu út í sal í reiði­kasti. Egill hefur háð sína glímu við kvíða og þung­lyndi, og upp­lifði sinn versta tíma þegar Trump var kos­inn for­seti Banda­ríkj­anna.

16 mín. lestur

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Snjó­hengjan er byrjuð að bráðna yfir heim­ilin

Fast­eigna­bólan er sprungin og verð á íbúðum er nú að lækka að raun­virði. Á sama tíma þurfa þús­undir heim­ila ann­að­hvort að færa sig yfir í verð­tryggð lán í hárri verð­bólgu eða takast á við tvö­földun á greiðslu­byrði íbúða­lána sinna. Ann­að­hvort verður það fólk að sætta sig við að eigið fé þess muni étast hratt upp eða að eiga ekki fyrir næstu mán­aða­mótum.
Spurningaþrautin

Spurn­inga­þraut Illuga 22. sept­em­ber 2023

1.  Hver er vin­sælasta kvik­myndin á alþjóða­vett­vangi það sem af er ári? 2.  Hver leikur aðal­kven­hlut­verkið í þeirri mynd? 3.  Hvað selur fyr­ir­tækið Smith & Norland hér á landi? 4.  En hvað fram­leiðir fyr­ir­tækið Smith & Wesson? 5.  Hver er stærsta eyjan við Ísland? 6.  Banda­rísk yfir­völd aug­lýstu á dög­unum eftir hlut sem hvarf um helg­ina. Athygli vakti að hlut­ur­inn...
FréttirLaxeldi

Slysa­slepp­ing Arctic Fish: Grunur um brot svo eld­is­lax­inn varð kyn­þroska

Mat­væla­stofnun rann­sakar nú hvort Arctic Fish hafi brotið gegn skil­yrði í starfs­leyfi með því að við­hafa ekki ljósa­stýr­ingu í lax­eld­is­kví sinni. Göt komu á kvína og sluppu um 3.500 eld­is­laxar út. Grunur er um að hátt hlut­fall eld­is­lax­anna hafi verið kyn­þroska sem skýrir af hverju þeir leita upp í ár hér á landi í miklum mæli.

Mest lesið undanfarið ár