Mynd: Heiða Helgadóttir

Vinir sem sameinuðust í matarást

Þegar þeir Bjarki Þór Valdi­mars­son og Anton Levchenko upp­götv­uðu sam­eig­in­lega ástríðu sína fyrir mat varð ekki aftur snúið, en þeir halda nú úti síð­unni Mat­ar­menn þar sem þeir deila upp­skriftum og góðum ráðum með fylgj­endum sínum.

Í eld­hús­inu eru þeir sem einn maður og þá sam­einar óbilandi mat­ar­á­stríða. Annar er fljótur upp eins og hit­inn í grilli – eða fyr­ir­mynd hans úr eld­hús­inu, Gordon Ramsay, en hinn er öllu yfir­veg­aðri og tekur málin í sínar hendur þegar allt virð­ist ætla að sjóða upp úr. Yfir dýr­indis tbone-steik með kart­öflu­sal­ati og ferskum maís, grill­uðum með gnótt af smjöri og salti, skýra þeir félagar og nágrannar, Bjarki Þór Valdi­mars­son og Anton Levchenko, frá upp­haf­inu að vin­skap sem leitt hefur þá í mörg góm­sæt ævin­týri síð­ast­liðin ár. 

„Ég hafði þekkt Unu, kon­una hans Antons, frá blautu barns­beini en við ólumst bæði upp í Keflavík og gengum þar saman í grunn­skóla. Svo flutti hún í bæinn og fór í háskól­ann en ég heyrði út undan mér að hún væri komin með kærasta og hófu þau bæði störf hjá Wow air fljót­lega á eftir mér. Þar með voru örlögin ráðin en …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár