Dulúðlegur máttur náttúrunnar hafði mikil áhrif

Tísku­ljós­mynd­ar­inn Saga Sig­urð­ar­dóttir hellir sér út í mynd­list, undir áhrifum af æsku í nátt­úru Íslands.

Dulúðlegur máttur náttúrunnar hafði mikil áhrif
Saga Sig Varð leið á sér­hæf­ing­unni í ljós­myndun í London. Mynd: Saga Sig

Saga Sig­urð­ar­dóttir er einn þekkt­asti tísku­ljós­mynd­ari lands­ins og hefur náð langt í sínu fagi á til­tölu­lega ungum aldri. Hún lærði við hinn virta London College of Fashion og starf­aði í London sem ljós­mynd­ari í sjö ár.  Hún hefur myndað her­ferðir fyrir Nike, TopShop, Leica, Coco de Mer og átt mynda­þætti í tíma­ritum líkt og Dazed and Confused og Vogue svo að fáeint sé nefnt. Að und­an­förnu hefur Saga hellt sér út í annað form sköp­un­ar­listar, mál­verkið, en hún opn­aði sína fyrstu einka­sýn­ingu í Reykja­vik síð­ast­lið­inn föstu­dag í Gallerí Bismút. 

Steinn með olíuslettum eftir Kjarval í uppáhaldi

Saga ólst upp á Þing­völlum þar sem móðir hennar var þjóð­garðs­vörður. Hún seg­ist hafa lært að skynja nátt­úr­una, leika við hana en jan­framt bera virð­ingu fyrir henni á unga aldri.  Hún átti ekki langt að sækja list­rænan áhuga sinn. „For­eldrar mínir eru list­ræn og af list­rænu fólki bæði og svo eru systk­ini mín skap­andi líka, tvö þeirra eru að vinna við skap­andi greinar. Þegar maður bjó úti á landi var maður kannski ekki mikið með­vit­aður af því sem var að ger­ast í menn­ing­ar­líf­inu eða út í heimi,” útskýrir Saga. Hún segir  þau systkin hafi lesið mjög mikið. „Það var minn gluggi út í heim­inn og svo teikn­uðum við og bjuggum til okkur eigin ævin­týri út í nátt­úr­unni. Á heim­il­inu voru verk eftir Jóhönnu Boga og Gunnar Örn og svo á sveit­unum í Skafta­fell­sýslu þar sem ég bjó frá 10 ára aldri sá maður verk Kjarvals. Hann var ætt­aður úr sveit­inni og kom seinna á lífs­leið sinni i sveit­ina til þess að mála og greiddi fyrir gist­ingu með verkum. Hann var fyrsti lista­mað­ur­inn sem ég  kynnt­ist  á Þing­völlum þar sem hann mál­aði mikið. Þar er einn steinn með olíu­slettum á sem ein­hver sagði mér að væru eftir Kjarval.  Mér fannst þetta mjög merki­legt og var viss um að þar væri álfa­kirkja og fannst steinn­inn heil­agur.“ 

Saga segir að nátt­úran hafi haft mikil áhrif á sína list­rænu sköpun og að í mál­verkum hennar séu formin mjög lifræn og nátt­úru­tengd. „Til dæmis bláu verkin mín. Ég byrj­aði að mála þau fyrir norðan á Langa­nesi þar sem sjór­inn kemur frá norðr­inu. Hann virð­ist alltaf vera dekkri, svart­ari og villt­ari en ann­ars­staðar á land­inu. Náttúran og dulúð­legur máttur hennar hefur alltaf haft mikil áhrif á mig og hversu lif­andi nátt­úran er. Þegar ég var yngri var maður svo bein­tengdur henni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár