Götubitahátíð og keppni um besta götubitann

Götu­matur, eða street food, er órjúf­an­leg­fur hluti af mat­ar­menn­ingu margra og ólíkra þjóða. Slíkar kræs­ingar hafa átt miklum vin­sældum að fagna á Íslandi á síð­ustu árum. Námskeið þar sem listin að elda góðan götu­bita fyll­ast, hér hafa sprottið upp mat­hallir sem bjóða upp á fram­andi mat og í sumar verður víða blásið til að minnsta kosti tveggja götu­bita­há­tíða.

Götubitahátíð og keppni um besta götubitann
Borðar alltaf götu­mat á ferða­lögum Götu­matur á rætur sínar að rekja djúpt í menn­ingu þjóða og er oft gerður eftir gömlum upp­skriftum sem hafa lifað lengi með þeim. Þess vegna borðar Sigríður Björk Braga­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Salt eld­húss, alltaf götu­mat á ferða­lögum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Götu­matur, eða street food, hefur átt miklum vin­sældum að fagna á Íslandi síð­ast­liðin ár. Upp hafa sprottið mat­hallir úti á Granda, á Hlemmi, á Bílds­höfða og í  Kringl­unni með ýmiss konar básum þar sem hægt er að gæða sér á góm­sætum og fram­andi mat. Eins hafa mat­ar­mark­aðir og mat­ar­vagnar átt vel­gengni að fagna en meðal þeirra má nefna Reykja­vik Street Food, sem má segja að séu regn­hlíf­ar­sam­tök aðila er selja götu­mat. Á þeirra vegum verður blásið til götu­bita­há­tíðar á Mið­bakk­anum helg­ina 19.–21. júlí og til mat­ar­mark­aðar í Laug­ar­dalnum fyrstu og aðra helg­ina í júlí.

Mat­ar­mark­aður í Laug­ar­dal var ein þeirra hug­mynda sem varð hlut­skörpust í hverfa­kosn­ingu árið 2018 og er sam­starfs­verk­efni Reykja­vík­ur­borgar og Reykja­vík Street Food.  Þar verða sölu­básar og mat­ar­vagnar, bæði með til­búnum mat og matvöru frá býlum og öðrum smærri mat­væla­fram­leið­endum.

Gleði­tíð­indi fyrir götu­bita­að­dá­endurBlásið verður til götu­bita­há­tíðar á Miðbakka 19.–21. júlí og til mat­ar­mark­aðar í Laug­ar­dalnum fyrstu …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár