Að virða fyrir sér skúlptúr er eins og að horfa á dans

Skúlp­t­úrar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu skipta hund­ruðum. Þeir eru af öllum stærðum og gerðum en veg­far­endur taka mis­jafn­lega vel eftir þeim þegar þeir sinna sínum dag­legu erindum. Mynd­höggv­ar­inn Carl Boutard bauð blaða­manni og ljós­mynd­ara Stund­ar­innar í bíltúr og opn­aði augu þeirra fyrir ýmsu for­vitni­legu sem farið hafði fram­hjá þeim og eflaust mörgum öðrum á ferð­inni um borg­ar­lands­lagið.

Að virða fyrir sér skúlptúr er eins og að horfa á dans

Sumir segja að bestu lista­verkin í almenn­ings­rými séu einmitt þau sem aldrei verða til. Þau séu of ýkt, of spenn­andi, of við­kvæm, eða of hvað sem er til að verða fyrir val­inu – þau hefð­bundnu og pott­þéttu séu frekar valin.

Hvað sem því líður er stað­reynd að mik­inn fjölda úti­lista­verka er að finna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Flest þeirra er að finna mið­svæðis í Reykja­vík en þau er líka að finna á jaðr­inum og á ólík­legum stöðum, þar sem fáir búast sér­stak­lega við því að rækta and­ann, meðan þeir sinna sínum dag­legu erindum. 

Fólk er líka mis­jafn­lega mót­tæki­legt fyrir list í almanna­rými. Sumir segja hana þjóna litlum til­gangi og telja að ekki eigi að verja almannafé í lista­verk, því sé betur varið í aðra hluti. Aðrir benda á að það megi ekki drekkja líf­inu í stein­steypu. Listina verði að næra í mann­gerðu umhverfi því þannig líði öllum betur. Þessi sjón­ar­mið tók­ust á nýverið, í sam­keppn­inni um úti­lista­verk í Voga­byggð, þar sem margir supu hveljur yfir því að verja ætti 140 millj­ónum í pálma­tré undir gler­hjúp. Aðrir vörðu til­lög­una og bentu á að list í almenn­ings­rými væri fyrir alla til að njóta, óháð efna­hag, stétt og stöðu. 

Ekki þarf að spyrja að því hvorum hópnum Carl Boutard, mynd­höggv­ari og lektor við mynd­list­ar­deild LHÍ, til­heyrir. Hann er mik­ill áhuga­maður um list í almenn­ings­rými og ekki síst kann hann að meta skúlp­t­úra af hinum ýmsu stærðum og gerðum. Að hans mati úir allt og grúir af áhuga­verðum skúlp­t­úrum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, bæði þeirrar teg­undar sem manns­höndin hefur skapað og ann­arra, sem hafa orðið til upp úr þurru, sprottið fram úr veggja­sprungu, eða upp úr teikni­bókum verk­fræð­inga, alveg óvart. Slíkir skúlp­t­úrar séu ekki skil­greindir sem lista­verk en séu það nú samt. Carl bauðst til að sýna ljós­mynd­ara og blaða­manni Stund­ar­innar nokkur af sínum eft­ir­læt­isskúlp­t­úrum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár