Þrjár kynslóðir gerðu upp Land Rover bíla

Jens Fylk­is­son lag­færði gamlan Land Rover með aðstoð föður síns og sonar, þrátt fyrir litla reynslu af slíkum við­gerðum. Áhuginn á Land Rover hefur smit­ast til sonar hans sem hefur nú lært bif­véla­virkjun.

Þrjár kynslóðir gerðu upp Land Rover bíla
Með dálæti á Land Rover Jens Fylk­is­son verk­fræð­ingur hefur lengi haft dálæti á Land Rover-bíl­unum. Hann gerði upp tvo slíka í sam­starfi við Fylki Þórisson, föður sinn, og Hauk Jensson, son sinn. Mynd: Heiða Helgadóttir

Bresku Land Rover bif­reið­arnar hafa notið mik­illa vin­sælda á Íslandi. Jens Fylk­is­son verk­fræð­ingur hefur mikið dálæti á bíl­unum og gerði upp tvo slíka í sam­starfi við Fylki Þórisson, föður sinn, og Hauk Jensson, son sinn.

„Útlitið er alveg ein­stakt,“ segir Jens. „Þú þekkir hann frá öðrum bílum. Erlendis er hann kall­aður hinn eini sanni safari bíll. Í dag eru bílar meira og meira að líkj­ast hver öðrum og eru eins í lag­inu. En þetta gamla lag á Land Rover sem hefur hald­ist nokkurn veg­inn eins frá 1950 til alda­móta gerir þessa bíla sér­staka.“

Jens eign­að­ist Land Rover bif­reið sína fyrir tæpum ára­tug, en Haukur, sonur hans, keypti sér sjálfur bíl nokkrum árum síðar, áður en hann hafði aldur til að taka bíl­próf. Sá var Series 3 útgáfa frá árinu 1975, sem Jens segir þó ekki gamlan miðað við Land Rover. „Elstu bíl­arnir úr fyrstu seríu eru frá 1948, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár