Áhrif loftslagsáætlunar á losun háð mikilli óvissu

Engin rík­is­stjórn hefur sett sér jafn háleit mark­mið í lofts­lags­málum og rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur. En mark­miðin eru fjar­læg og helsta stefnuplaggið, Aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum 2018–2030, hefur sætt harðri gagn­rýni umhverf­is­vernd­ar­sam­taka sem segja stefnu­miðin óljós og ill­mæl­an­leg. Af 34 boð­uðum aðgerðum eru 28 of óskýrar og lítt útfærðar til að unnt sé að fram­reikna vænt­an­legan ávinn­ing í formi sam­dráttar í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Áhrif loftslagsáætlunar á losun háð mikilli óvissu
Stefnt að kolefn­is­hlut­leysi Katrín Jak­obs­dóttir leiðir rík­is­stjórn sem hefur sett sér háleit mark­mið í lofts­lags­málum. En duga boð­aðar aðgerð­irnar til? Mynd: Heiða Helgadóttir / Shutterstock

Aðeins lít­ill hluti aðgerða­á­ætl­unar rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum hefur verið útfærður með nógu skýrum og skil­greindum hætti til að hægt sé að áætla hvaða ávinn­ingi aðgerð­irnar munu skila að því er varðar sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu Umhverf­is­stofn­unar þar sem losun Íslend­inga næstu árin er fram­reiknuð með hlið­sjón af yfir­lýstum áformum rík­is­stjórn­ar­innar.

Óhætt er að full­yrða að engin rík­is­stjórn hafi sett sér jafn háleit mark­mið í lofts­lags­málum og sú sem nú situr. En mark­miðin eru fjar­læg og helsta stefnuplaggið, Aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum 2018–2030, hefur sætt harðri gagn­rýni umhverf­is­vernd­ar­sam­taka sem segja stefnu­miðin óljós og ill­mæl­an­leg.

„Áætlunin er hvorki magn­bundin né tíma­sett,“ segir Auður Önnu Magn­ús­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Land­verndar, í sam­tali við Stundina. „Hún nær til þröngra og ein­angr­aðra sviða, og þar er jafn­vel sneitt hjá sviðum sem ríkið gæti auð­veld­lega stigið inn á, til dæmis að því er varðar land­búnað og fjár­mála­kerfið.“

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamfarahlýnun

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár