Endurkoma sósíalískra stjórnmála í Bandaríkjunum

Sós­í­al­ismi er skyndi­lega á allra vörum í banda­rískum stjórn­málum, þökk sé for­seta­fram­boði Bernie Sanders 2016, en þó ekki síst Alex­andríu Ocasio-Cortez sem skaust upp á stjörnu­himin banda­rískra stjórn­mála í kjöl­far sig­urs hennar á fram­bjóð­anda flokks­eig­enda­fé­lags Demókra­ta­flokks­ins í próf­kjöri flokks­ins í fyrra­sumar og svo öruggs sig­urs í þing­kosn­ing­unum í nóv­em­ber. Ocasio-Cortez, sem er oft ein­fald­lega kölluð AOC í banda­rískri stjórn­mála­um­ræðu, er yngsta konan sem hefur náð kjöri á Banda­ríkja­þing, hefur sett hug­myndir á dag­skrá sem þóttu fjar­stæðu­kennd rót­tækni fyrir örfáum árum.

Endurkoma sósíalískra stjórnmála í Bandaríkjunum
Alex­andria Ocasio-Cortez

Fyrr í mán­uð­inum frum­sýndu efn­isveit­urnar HBO og Netflix heim­ilda­mynd­ina Knock Down the House þar sem við fylgj­umst með próf­kjörs­bar­áttu fjög­urra rót­tækra kvenna fyrir þing­kosn­ing­arnar 2018. Við fylgj­umst með því hvernig rót­tækir gras­rót­arakti­vistar takast á við fram­bjóð­endur sem njóta stuðn­ings flokksmask­ínu Demókra­ta­flokks­ins auk auð­ugra stuðn­ings­manna og stór­fyr­ir­tækja. Stjarna mynd­ar­innar er sós­í­alist­inn Alex­andria Ocasio-Cortez, þá 28 ára gam­all bar­þjónn og þjónn á Taco-veit­inga­stað í Suður-Bronx. Per­sónu­töfrar hennar og leift­ur­skýr sýn á það verk­efni sem hún hefur tekið að sér og vanda­málin sem blasa við heilla áhorf­endur. Myndin endar með óvæntum og glæsi­legum sigri hennar á Joseph Crowley, fjórða valda­mesta demókrata full­trúa­deild­ar­innar.

Sigurinn á Crowley, sem hafði aldrei fengið trú­verð­ugt mót­fram­boð í próf­kjöri öll þau 20 ár sem hann hafði setið á þingi, klass­ískum flokks­hesti sem minnti um margt á horfna tíma mask­ínu­stjórn­mála New York, gaf mynd­inni yfir­bragð ævin­týris. Henni hefur enda verið lýst sem „feel-good“ mynd fyrir vinstri­menn. En hún er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár