„Hundarnir eru mínir heilsuþjálfar og sálfræðingar“

Bróð­ur­part­inn af lífi sínu hefur Edda Janette Sig­urðs­son verið með hund sér við hlið og hún getur varla ímyndað sér lífið án eins slíks. Hún var tví­tug þegar hún eign­að­ist sinn fyrsta og í dag, um sex­tugt, er hún með sex hunda á heim­il­inu á öllum aldri.

„Hundarnir eru mínir heilsuþjálfar og sálfræðingar“
Líf og yndi Hund­arnir eru líf og yndi Eddu. Hún lítur á sig sem for­rétt­inda­mann­eskju að geta leyft sér að hafa þá alla. Mynd: Heiða Helgadóttir

Það hefur verið óvenju líf­legt síð­ustu mán­uð­ina á heim­ili Eddu Janette Sig­urðs­son og manns­ins hennar, Þor­steins Hraundal, því þau hafa verið með þrjá hvolpa með til­heyr­andi gleði og látum. Nú eru þeir hins vegar nýfarnir á ný heim­ili en þrátt fyrir það er enn líf í tusk­unum, enda sex hundar eftir sem eru ekki að fara neitt.

„Ég myndi kannski ekki mæla með því við hvern sem er að vera með sex hunda á heim­il­inu eins og við,“ segir Edda Janette, sem þó þykir það frekar eðli­leg staða að fer­fætling­arnir séu mun fleiri en þeir tví­fættu á heim­il­inu.

Hún hefur átt nokkrar teg­undir hunda í gegnum tíð­ina en að und­an­förnu hefur hún ein­beitt sér að enskum cocker spaniel. Fyrstu tík­ina af þeirri teg­und fékk hún fyrir tíu árum og hún er hjá henni enn. „Hún eign­að­ist svo fimm hvolpa og ég hélt tveimur tíkum eftir af þeim. Nú …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár