Mynd: Heiða Helgadóttir

Greinilegur sálrænn þáttur í grindargliðnun

Eftir því sem íslenskar konur eru lok­aðri til­finn­inga­lega er lík­legra að þær þjá­ist af grind­ar­gliðnun á með­göngu. Þetta var eitt af því sem dokt­ors­rann­sókn Gyðu Eyj­ólfs­dóttur sál­fræð­ings leiddi í ljós. Hún segir sam­spil erf­iðra upp­lif­ana í æsku og lík­am­legra ein­kenna van­metið.

Á fyrstu með­göngu Gyðu Eyj­ólfs­dóttur sál­fræð­ings þjáð­ist hún mjög af grind­ar­gliðnun, strax frá fyrstu vik­unum. Hún bjó þá í Banda­ríkj­unum þar sem hún var í dokt­ors­námi í sál­fræði og leit­aði þar til lækna, las sér til og reyndi hvað hún gat til að kom­ast til botns í því hvað skýrði þessa óbæri­legu verki og hvernig hún gæti brugð­ist við. Hún komst fljótt að því að þar var lítið vitað um þetta ástand sem sumar konur þekkja óþægi­lega vel. Lítið var til ráða, annað en að harka af sér og draga úr sem flestum dag­legum athöfnum, til að kom­ast í gegnum með­göng­una. Hún átti erfitt með að beygja sig, sitja, ganga, halda á ein­hverju þungu, snúa sér í rúm­inu og reglu­lega skekkt­ist á henni grindin og smellu­hljóð heyrð­ust frá líf­bein­inu sem gerðu það að verkum að hún gat ekki gengið. Hún var í sjúkra­þjálfun þrisvar í viku og á end­anum setti …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár