Það skiptir máli að þegja ekki

Í nýju lagi Bubba Morthens býður hann flótta­fólk vel­komið. Hann segir að lagið sé and­svar við ótt­anum sem sé að baki öfga­fullum við­brögðum fólks við komu fólks á flótta hingað til lands. Nú þurfi fólk að taka sér stöðu með ást­inni og kær­leik­anum. Ekkert sé að ótt­ast.

Það skiptir máli að þegja ekki

Tón­list­ar­mað­ur­inn Bubbi Morthens hefur samið nýtt lag til að bregð­ast við áhyggjum sínum af auknum for­dómum gegn hæl­is­leit­endum vegna orð­ræðu áhrifa­fólks um þá.

„Fyrst og fremst er þetta lag um kær­leika og ást, sem er, þegar upp er staðið, það eina sem skiptir máli. Þess vegna getur þetta átt við mig sjálfan, alveg eins og við þig. Við þurfum að bjóða okkur sjálf vel­komin, að elska okkur sjálf skil­yrð­is­laust. Um leið á þetta lag við um alla flótta­menn heims­ins, öll börn heims­ins, og alla þá sem ekki eiga heim­ili og eru á ver­gangi.“

Þetta segir Bubbi Morthens um nýja lagið sitt, Velkomin, sem hann kynnti fyrir vinum sínum á Facebook á mið­viku­dags­kvöldið. Með honum leika Örn Eldjárn gít­ar­leik­ari, Hjörtur Ingvi Jóhanns­son hljóm­borðs­leik­ari, Þor­valdur Þór Þor­valds­son trommu­leik­ari, Guð­mundur Óskar Guð­munds­son bassa­leik­ari, sem syngur jafn­framt bak­raddir með Valdimar, Elísa­betu Ormslev og Stefaníu Svav­ars­dóttur.

Lagið hefur Bubbi flutt á tón­leikum á síð­ustu mán­uðum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár