Valdastéttin fékk tvöfalda launahækkun kennara og hjúkrunarfræðinga

Þann 31. mars næst­kom­andi losna 152 samn­ingar hjá ríki og sveit­ar­fé­lögum. Stefnt er að enn frek­ari launa­hækkun þing­manna og æðstu emb­ætt­is­manna þann 1. júlí þrátt fyrir að fram­úr­keyrsla und­an­far­inna ára hafi ekki verið leið­rétt.

Valdastéttin fékk tvöfalda launahækkun kennara og hjúkrunarfræðinga
Hækkunin mest á toppnum Þingmenn og æðstu emb­ætt­is­menn hafa hækkað miklu meira í launum, bæði hlut­falls­lega og í krónum talið, heldur en rík­is­starfs­menn á borð við kenn­ara og hjúkr­un­ar­fræð­inga. Mynd: Davíð Þór

Þing­far­ar­kaup hækk­aði um 60 pró­sent á árunum 2014 til 2017 og heild­ar­laun æðstu emb­ætt­is­manna ríkis og sveit­ar­stjórna um 32 pró­sent. Á sama tíma­bili hækk­uðu laun hjúkr­un­ar­fræð­inga um 21 pró­sent og laun grunn­skóla­kenn­ara um 25 pró­sent. 

Þannig hefur þró­unin verið sam­kvæmt upp­lýs­ingum úr launa­rann­sókn Hag­stof­unnar þegar rýnt er í með­al­tal heild­ar­launa full­vinn­andi fólks eftir starfs­stéttum með til­liti til breyt­inga á vísi­tölu neyslu­verðs.

Sam­ræmdar tölur um launa­þróun stétt­anna taka til þess­ara fjög­urra ára en fram kemur á vef Hag­stof­unnar að von sé á sams konar gögnum sem nái lengra aftur í tím­ann.

Þótt laun þing­manna og æðstu emb­ætt­is­manna hafi hækkað umfram laun almenn­ings á und­an­förnum árum og ára­tugum er gert ráð fyrir að þau hækki enn frekar þann 1. júlí næst­kom­andi sam­kvæmt frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra um breytt fyr­ir­komu­lag launa­á­kvarð­ana. Mun þá koma í hlut Fjár­sýslu rík­is­ins að upp­færa krónu­tölu­fjár­hæðir til sam­ræmis við hlut­falls­lega breyt­ingu á með­al­tali reglu­legra launa rík­is­starfs­manna. 

ASÍ hefur gagn­rýnt fyr­ir­hug­aða hækkun harð­lega og hvatt til þess að henni verði frestað; laun þing­manna og æðstu emb­ætt­is­manna verði látin standa í stað til að leið­rétta fram­úr­keyrslu und­an­far­inna ára. Slíkar kröfur hafa ekki fengið hljóm­grunn hjá stjórn­mála­stétt­inni. Við­kvæmar kjara­við­ræður hafa staðið yfir und­an­farnar vikur og bæði tals­menn atvinnu­rek­enda og stjórn­valda hafa brýnt fyrir verka­lýðs­hreyf­ing­unni að stilla kröfum sínum í hóf, ellegar verði efna­hags­legum stöð­ug­leika ógnað. Þann 31. mars næst­kom­andi munu svo losna 152 samn­ingar hjá ríki og sveit­ar­fé­lögum.

Myndin birt­ist í úttekt Stund­ar­innar um kjör þing­manna í fyrra.

Uppi varð fótur og fit þegar kjara­ráð hækk­aði laun þing­manna um 44 pró­sent, 338 þús­und krónur í einu skrefi, þann 29. októ­ber 2016. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son, hvatti þing­heim til að hnekkja ákvörð­un­inni með laga­setn­ingu og ákvað að gefa eigin launa­hækkun til góð­gerð­ar­mála. Alþingi kaus hins vegar að láta ákvörðun kjara­ráðs standa. Með því tryggðu þing­menn­irnir sér betri launa­kjör en kollegar þeirra á Norð­ur­lönd­unum, þing­far­ar­kaup sem var 75 pró­sentum hærra en með­al­þing­far­ar­kaup í ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins í jan­úar 2018. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár