Tekur mál­stað þeirra sem enga rödd hafa Magga Stína segir að sér sé skylt að taka að sér að tala máli þeirra sem minna mega sín, núna þegar hún sjálf hefur safna þreki og dug. Mynd: Davíð Þór

„Núna get ég risið undir sjálfri mér“

Tón­list­ar­konan bros­andi, Magga Stína, flækt­ist í neti ótta og ofbeldis og var í mörg ár aðeins skugg­inn af sjálfri sér. Það tók hana langan tíma að púsla sér saman að nýju og hún er enn að vinna í sjálfri sér en stendur nú upp­rétt. Því telur hún sér bera skyldu til að taka á sig byrðar fyrir aðra sem ekki geta borið hönd fyrir höfuð sér.

Margrét Kristín Blöndal er aldrei kölluð annað en Magga Stína og Íslend­ingar þekkja hana vel flestir, þessa stelpu­legu konu sem virð­ist alltaf bros­andi, full af gleði, lífs­krafti og skap­andi, frjórri hugsun. Og víst er Magga Stína full af lífs­krafti og gleði. En þrátt fyrir að hún birt­ist okkur bros­andi og glöð í fjöl­miðlum hefur Magga Stína þurft að takast á við erf­ið­leika í líf­inu, reiði og upp­reisn, ofbeldi, blank­heit og basl. 

Magga Stína á ýmiss konar reynslu að baki, meðal ann­ars átti hún um tíma í sam­bandi við mann sem beitti ótta­stjórnun og ofbeldi í þeirra sam­bandi. Hún lýsir því sem svo að hún hafi flækst í net, brot­ist þar um, ekki verið með sjálfri sér. „Ég gekk í raun og veru ein­hvern veg­inn við hlið­ina á sjálfri mér á þessum tíma, eins og skugg­inn af sjálfri mér. Hress, bros­andi, harð­dug­legur skuggi sem hafði að mörgu leyti misst …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár