Mynd: Heiða Helgadóttir

Berst fyrir viðurkenningu á ranglætinu sem fólst í því að vista hann í fangelsi

Ólafur Haf­steinn Ein­ars­son, fatl­aður maður sem var vistaður án dóms í kvenna­fang­elsi, átti fund með dóms­mála­ráð­herra í mars en hefur ekki enn fengið afgreiðslu á máli sínu. Ólafur krefst þess að rann­sókn fari fram á máli hans og ann­arra sem voru vistaðir með honum.

Vonaðist eftir við­ur­kenn­inguÞegar Ólafur fór á fund ráð­herra von­að­ist hann til þess að brugð­ist yrði við frá­sögn hans og rang­lætið sem hann upp­lifði yrði við­ur­kennt, í það minnsta rann­sakað.

Ólafur Haf­steinn Ein­ars­son sendi harð­ort bréf til dóms­mála­ráð­herra þar sem hann kall­aði eftir form­legu svari ráð­herra varð­andi beiðni hans um opin­bera rann­sókn á starf­semi kvenna­fang­els­is­ins Bitru á Suð­ur­landi, þar sem Ólafur og aðrir fatl­aðir ein­stak­lingar voru vistaðir án dóms­úr­skurðar. Bréfið var sent ráð­herra þann 12. mars og óskað eftir svari fyrir 1. júlí. Þann 3. júlí barst bréf frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu þess efnis að vegna sum­ar­fría væri ekki unnt að svara bréf­inu strax, en verið væri að vinna að svari. Tæpum tveimur mán­uðum síðar hefur enn ekk­ert svar borist. Almennt er miðað við að svar við fyr­ir­spurnum ber­ist innan tveggja vikna.

Fatlaðir vist­menn bjuggu í opna fang­els­inu Bitru, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár