Kristín Ýr Gunn­ars­dóttir Lýsir við­brögðum kerf­is­ins við stöðu for­eldra lang­veikra barna. Mynd: Heiða Helgadóttir

Í heimi fatlaðra er ekkert í boði nema að berjast

Kristín Ýr Gunn­ars­dóttir skrifar um reynslu sína og ann­arra mæðra lang­veikra barna. Í stað þess að hlustað væri á áhyggjur hennar af barn­inu var henni sagt að hvíl­ast því þreyta gæti haft þessi áhrif á mæður. Önnur stóð frammi fyrir því að áhyggjur hennar væru afskrif­aðar sem fæð­ing­ar­þung­lyndi. Allar eru þær sam­mála um að kerfið ýti undir félags­lega ein­angrun, grein­ing­ar­ferlið er langt og strangt og engin aðstoð í boði. Þvert á móti er bar­áttan við kerfið jafn­vel stærsti streitu­valdur for­eldra í þess­ari stöðu.

Ég reif dóttur mína upp úr vögg­unni eina nótt­ina. Ég heyrði ein­hver skrítin hljóð í henni og ég hélt að hún væri að deyja. Hún hafði fengið nokkur svona köst áður, þar sem hún blán­aði örlítið og stífn­aði upp. Þegar hjartað barð­ist ótt og títt í brjóst­inu á mér mundi ég eftir orðum lækn­is­ins: „Hún er alheil­brigð, þú sjálf þarft bara að finna leiðir til að hvíl­ast. Þreyta getur haft þessi áhrif.“ Þegar ég róað­ist og sá að hún var komin með eðli­legan lit aftur gat ég ekki hætt að hugsa um að ég væri hrein­lega að missa vitið, að ég væri farin að ímynda mér að dóttir mín væri að deyja.

Það var svo nokkrum vikum seinna að hún var í pössun hjá afa sínum. Hann hringdi í mig um kvöldið í hálf­gerðu áfalli. Hann hafði upp­lifað það sama: hún stífn­aði, blán­aði og það tók hana smá tíma …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár