Föst í Kvennaathvarfinu vegna forræðisdeilu

Veröld Maariu Päivinen var umturnað í ágúst síð­ast­liðnum þegar finnskur dóm­stóll komst að þeirri nið­ur­stöðu að end­ur­senda ætti eins og hálfs árs gamlan son hennar til Íslands. Mæðginin hafa dvalið í Kvenna­at­hvarf­inu allar götur síðan. Maaria hefur kært íslenskan barns­föður sinn til lög­reglu fyrir að brjóta á sér, en hann þver­neitar sök og segir hana mis­nota aðstöðu Kvenna­at­hvarfs­ins.

Síðla kvölds þann 4. ágúst síð­ast­lið­inn barði lög­reglan að dyrum á heim­ili Maariu Päivinen rit­höf­undar og ætl­aði að hrifsa eins og hálfs árs gamlan son hennar úr örmum móður sinnar og fara með hann í athvarf. Maaria mætti ekki fylgja honum þangað. Barnið, sem var enn á brjósti og hafði aldrei verið aðskilið móður sinni, skildi ekki hvað var að ger­ast, en Maaria brast í grát. 

„Þetta var mjög erfið lífs­reynsla,“ rifjar hún upp með grát­kæfðri röddu. „Þetta var að kvöldi til, hann var kom­inn í nátt­fötin sín og við vorum að fá okkur kvöld­hress­ingu. Ég hélt að systir mín væri fyrir utan, en þegar ég opn­aði dyrnar var þetta lög­reglan og félags­ráð­gjafi á vegum sveit­ar­fé­lags­ins og þau voru komin til að taka af mér barnið.“

Ástæðan fyrir komu lög­regl­unnar var að fyrr um dag­inn hafði finnskur dóm­stóll kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að end­ur­senda ætti son Maariu til Íslands á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár