Mynd: Shutterstock

Mansal: „Auðvitað er þetta líka að gerast á Íslandi“

Engin áætlun er í gildi um aðgerðir gegn man­sali og engum fjár­munum er varið í mála­flokk­inn í fjár­lögum þeirrar rík­is­stjórnar sem nú kveður. Sér­fræð­ingar í mansals­málum segja ekki hægt að byggja mál ein­ungis á vitn­is­burði þolenda vegna við­kvæmrar stöðu þeirra, en sú aðferð hefur verið farin hér á landi. Aðeins einu sinni hefur verið sak­fellt fyrir man­sal á Íslandi.

Aðgerð­ar­á­ætlun íslenskra stjórn­valda í man­sali rann út um síð­ustu mán­aða­mót og hefur enn ekki verið end­ur­nýjuð. Í dag er því engin áætlun í gildi. Fyrri áætlun fylgdu litlir fjár­munir, og því óger­legt að fylgja henni eftir, og í fjár­lögum þeirrar rík­is­stjórnar sem nú er að kveðja var ekki einni krónu varið í mála­flokk­inn. Á sama tíma hefur Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra áhyggjur af því að rétt­ar­bót fyrir flótta­börn ýti undir man­sal. 

Erlendir sér­fræð­ingar í mansals­málum skora á íslensk stjórn­völd að gera betur í bar­átt­unni gegn man­sali. Á ráð­stefnu um man­sal í síð­asta mán­uði stigu fjöl­margir sér­fræð­ingar á svið og miðl­uðu sinni reynslu af mála­flokknum. Leiðandi stef var að lög­regla, sak­sókn­arar og dóm­arar þyrftu fræðslu í mansals­málum og að eðli máls­ins sam­kvæmt sé ekki hægt að treysta ein­göngu á vitn­is­burð brota­þola í mansals­málum. Málin þurfi að byggja á öðrum sönn­un­ar­gögnum. Þá voru yfir­völd harð­lega gagn­rýnd fyrir að leyfa dæmdum vændis­kaup­endum að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár