Jón Steinar Gunn­laugs­son Hefur gefið út bók með safni skoð­ana­greina sinna. Mynd: Heiða Helgadóttir

Um listamanninn Jón Steinar Gunnlaugsson

Hvað er það sem gerir Jón Steinar Gunn­laugs­son ein­stakan? Karl Th. Birg­is­son rýnir í reynslu og hug­mynda­fræði íhalds- eða frjáls­hyggju­sinn­aða lög­manns­ins og dóm­ar­ans, sem nú hefur gefið út bók.

Eitt sinn orð­aði Vil­mundur Gylfason þá hugsun, að íslenzkum lög­fræð­ingum væri um megn að reifa, hvað þá rök­ræða, hið innra gildi lag­anna. Hina und­ir­liggj­andi heim­speki þeirra. Hvað væri rétt og rangt, og hvers vegna.

Þeir gætu hins vegar rifizt mjög lengi og af inni­legri sann­fær­ingu um hvort þóknun þeirra af fast­eigna­sölu ætti að vera einu pró­sentu­stig­inu hærri eða lægri. Lengra næði svokölluð menntun þeirra ekki.

Nokkru síðar kynnt­ist ég náið amer­ískum pró­fessor mínum, sem hafði sjálfur lokið laga­námi við Harvard og klárað svo dokt­ors­próf frá Oxford.

Mig lang­aði stundum að fara í lög­fræði og þessi pró­fessor hafði það hlut­verk að vera „pre-law advisor“ í háskól­anum mínum. Hann átti sem­sagt að ráð­leggja þeim sem ætl­uðu í laga­nám – og gerði það sann­ar­lega – en hann stopp­aði mig alltaf í sam­tölum okkar:

„Nei, Karl [hann hefur ekki enn lært að segja Kalli]. Lögfræði er ekki akademískt nám. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár