Geislar af gæsku og ískrar af hlátri hvert sem hún fer

Hildur Guðna­dóttir, selló­leik­ari og tón­skáld, hefur und­an­farið ár farið sann­kall­aða sig­ur­för um heim­inn. Í raun hefur ekk­ert tón­skáld haft svona mikil áhrif á eitt kvik­myndaár og Hildur. Hún fékk Emmy-verð­laun fyrir tón­list­ina við sjón­varps­s­er­í­una Chernobyl, Golden Globe, Critic’s Choice og BAFTA-verð­launin fyrir tón­list sína við mynd­ina Joker.

Geislar af gæsku og ískrar af hlátri hvert sem hún fer
Hildur Guðna­dóttir Vinum hennar og sam­starfs­fólki kemur ótrú­legur árangur hennar á alþjóða­vett­vangi ekki á óvart. Mynd: Timothée Lambrecq / Grapevine

Þrátt fyrir að nafn Hildar Guðna­dóttur kunni að vera frekar nýtt fyrir mörgum Íslend­ingum þá hefur Hildur verið í hring­iðu íslensku tón­list­ar­sen­unnar um ára­bil og þá einkum jað­ar­bundna hlut­anum. Hún er fædd árið 1982 í Reykja­vík en faðir hennar er Guðni Franzson klar­inettu­leik­ari og móðir hennar Ing­veldur Guðrún Ólafs­dóttir, útvarps­kona og óperu­söng­kona.

Hildur á syst­ur­ina Guðrúnu Höllu Guðna­dóttur og bræð­urna Þórarinn Guðnason, með­lim Agent Fresco, Óla Guð­munds­son og Finn Torfa Þor­geirs­son. Hún ólst upp í Hafn­ar­firði og gekk í Öldutúns­skóla. Ung að árum, eða árið 1997, stofn­aði Hildur hljóm­sveit­ina Woofer ásamt þremur piltum úr Hafn­ar­firði og tók þátt í Músiktil­raunum við góðar und­ir­tektir. „Báðir for­eldrar mínir eru tón­list­ar­menn og margir í fjöl­skyld­unni. Tónlist hefur verið í kringum mig síðan áður en ég fædd­ist. Ég held ég hafi farið í fyrsta sell­ó­tím­ann fimm ára,“ sagði Hildur í við­tali við Morg­un­blaðið árið 2005 þegar hún braut­skráð­ist úr námi við Lista­há­skóla Íslands …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár