Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 4 árum.

Aðstandendur veikjast líka fái þeir ekki stuðning

Sig­ríð­ur Gísla­dótt­ir, stjórn­ar­kona í Geð­hjálp og að­stand­andi sjúk­lings, seg­ir að litla sem enga hjálp sé að fá fyr­ir að­stand­end­ur þeirra sem glíma við sjúk­dóma á geði.

Aðstandendur veikjast líka fái þeir ekki stuðning
Segir aðstandendur ekki fá aðstoð Sigríður segir það sína reynslu, og annarra sem hún hefur rætt við, þarfir aðstandenda geðsjúkra séu hunsaðar og þeim standi ekki stuðningur til boða. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Fyrir alla aðstandendur þeirra sem glíma við geðsjúkdóma, foreldra, maka, börn, systkini eða aðra, þá held ég að tilfinningarnar séu svipaðar. Það er mikil meðvirkni með þeim sem eru veik og fólk sjálft verður í raun og veru veikt sjálft. Í erfiðum aðstæðum, þar sem fólk fær ekki aðstoð, stuðning og hjálp, þá veikjast aðstandendur hreinlega líka. Þetta verður fjölskyldusjúkdómur.“ Þetta segir Sigríður Gísladóttir, stjórnarkona í Geðhjálp og aðstandandi. Sigríður bjó árum saman með veikri móður sinni án þess að fá aðstoð eða stuðning. Álagið sem Sigríður bjó þar við og hinar erfiðu aðstæður ollu því að sautján ára veiktist hún einnig af geðsjúkdómi, alvarlegri átröskun, auk þess sem hún hefur glímt við þunglyndi, kvíða og áfallastreituröskun.

Í bók Auðar Styrkársdóttur, Helga sögu, og í viðtali við hana hér í blaðinu lýsir hún því hversu hart andleg veikindi Helga bróður …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu